Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 78

Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 78
B ill Gates, stjórnar- formaður hugbúnað- arrisans Microsoft, kynnti nýjustu útgáfu Windows- stýrikerfisins í New York á mánudaginn var. Hann fór yfir helstu nýjungar og lýsti því hvers vegna nýjasta útgáfan, sem ber nafnið Windows Vista, væri verðugur arftaki Windows XP, sem er vinsælasta stýrikerfi í heimi. „The wow starts now,“ var einn frasanna sem hann notaði. Í Vista er urmull af nýjungum og breytingum, margar þeirra sýni- legar og aðrar ekki. Meðal sýni- legustu breytinganna er endur- hannað notendaviðmót sem ætlað er að vera auðveldara í notkun og líta betur út. Leitina er einnig búið að stór- bæta og tekur nú minna en eina sekúndu að leita að möppum og skjölum sem áður tók tugi sek- úndna eða jafnvel heilu mínút- urnar. Ástæðan fyrir þessum stór- aukna hraða er að leitin rennir reglulega yfir allan harða diskinn á tölvunni og gerir tilvísunarlista yfir allar skrár, möppur og forrit. Þegar notandinn leitar er síðan flett upp í þessum lista í stað þess að leita á öllum harða disknum. Þetta leitarfyrirkomulag er mjög svipað því sem hefur verið til staðar í Apple-stýrikerfinu OS X í nokkur ár. Öryggi er eitt af þeim atriðum sem Bill Gates lagði áherslu á í kynningu sinni á Vista, en stýri- kerfið ku vera betur varið gegn árásum og vírusum en nokkru sinni fyrr. Sérstök óværuvörn, Windows Defender, fylgir með Vista og hafa strangari reglur verið settar varðandi uppsetn- ingu á forritum. Með því móti á að gera óvelkomnum forritum erfiðara að koma sér fyrir á tölvu notandans. Annars konar öryggi var einn- ig sett á oddinn í Windows Vista, eða öryggi varðandi net- og tölvu- notkun barna. Foreldrum er gert auðvelt að skilgreina nákvæm- lega á hvaða tímum barnið má vera í tölvunni, hvaða leiki það má spila og hvaða síður það má skoða á netinu. Myndband með kynningu starfs- manns Microsoft á raddgreining- arhluta Vista fór eins og eldur í sinu um internetið seinasta sumar. Kynnirinn ætlaði að sýna hversu auðvelt það væri að lesa upp texta fyrir tölvuna, en sýn- ingin fór ekki betur en svo að tölvan misskildi allt. Eftir fjölmargar tilraunir til þess að láta tölvuna skilja ein- földu setninguna „Dear mom“ skrifaði hugbúnaðurinn „Dear Aunt, let‘s set so double the killer select all“ á skjá. Þegar reynt var að leiðrétta eða stroka út villur varð misskilningurinn bara verri. Í tilkynningu frá fyrirtækinu stuttu eftir kynninguna sagði að vegna aðstæðna hefði hugbúnað- urinn ekki virkað sem skyldi, hann væri mjög góður í raun. Svo virðist sem raddgreiningarforrit- ið hafi verið endurbætt því ekki hafa fleiri misskilningssögur bor- ist af raddgreiningunni í Wind- ows Vista. Hún mun þó nýtast Íslendingum frekar takmarkað þar sem hún skilur aðeins ensku. Fyrir hverja nýjung eða breyt- ingu sem tölvunotandinn tekur eftir eru margar sem hann veit ekki af. Til dæmis er búið að end- urskrifa frá grunni þann hluta stýrikerfisins sem sér um net- samskipti, sem ætti að skila sér í hraðari samskiptum milli tölva á heimaneti. Einnig hefur skráa- kerfið verið endurbætt ásamt stuðningi fyrir þráðlaus net. Sé leitað enn betur undir vél- arhlífinni má finna endurskrifað- an kjarna, bætta minnisstjórnun og nýtt reklakerfi. Allt þetta miðar að því að gera tölvuna hraðvirkari og þægilegri í vinnslu. Fyrir þá sem eru ánægðir með Windows XP og lítið spenntir fyrir þeim nýjungum sem Vista hefur í för með sér er í raun engin ástæða til þess að uppfæra, Wind- ows XP verður ekki úrelt á næst- unni. Microsoft hefur heitið því að styðja Windows XP í nokkur ár í viðbót þannig að enginn þarf að flýta sér. Þeir sem eru hins vegar spenntir fyrir nýju stýrikerfi með fersku viðmóti, hraðari leit og bættu öryggi, auk allra hinna breytinganna, hafa góða ástæðu til þess að fara út í búð og ná sér í eintak. Aðrir bíða sennilega með að fá sér Vista þar til kemur að næstu tölvukaupum, þar sem stýrikerf- ið fylgir með í kaupunum. Verðugur arftaki Windows XP? Eftir tæp sex ár í þró- un er arftaki vinsæl- asta stýrkerfis í heimi, Windows XP, kominn út. Gripurinn heitir Windows Vista. Breytt viðmót og aukið öryggi er meðal helstu nýjung- anna sem stýrikerfið býður upp á. „The wow starts now,“ sagði Bill Gates þegar Vista var kynnt í New York. Salvar Þór Sigurðarson skoðaði helstu nýjungar og breytingar stýrikerf- isins sem svo lengi hefur verið beðið eftir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.