Fréttablaðið - 03.02.2007, Síða 97

Fréttablaðið - 03.02.2007, Síða 97
FORELDRAR ÓSKARSVERÐLAUNA5TILNEFNINGAR TIL ER ÞETTA ... NÆSTI FORSETI ? FRÁ HANDRITSHÖFUNDI RAIN MAN OG GOOD MORNING VIETNAM Christopher Walken Robin Williams FRÉTTABLAÐIÐ raunverulega S.V. MBL Frá leikstjóra The Last Samurai Ævintýraleg spenna og hasar Háskólabíó THE CHILDREN OF MEN kl. 8 B.i.16 FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 B.i. 16 THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16 DREAMGIRLS kl. 6 - 9 - 10:20 Leyfð BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i.16 FORELDRAR kl. 6 - 8 Leyfð BABEL kl. 6 - 9 B.i.16 5 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARS SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínu-gulu á laugardögum og sunnudögum 20% AFSLÁTTUR EF GREITT ER MEÐ SPRON-KORTI 3 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARS 2 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARS 1 TILNEFNING TIL ÓSKARS ÓSKARSVERÐLAUNA8TILNEFNINGAR TIL / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI THE PRESTIGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 STRANGER THAN FICTION kl. 10:10 Leyfð FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 1 - 2 - 3:20 Leyfð HAPPY FEET M/-Ensk tal kl. 3:20 Leyfð SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal kl. 1:30 - 3:20 Leyfð ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal kl. 1:30 Leyfð MAN OF THE YEAR kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i.7 BLOOD DIAMOND kl. 5:30 - 8 - 10:50 B.i.16 BLOOD DIAMOND VIP kl. 2 - 8 - 10:50 VEFURINN HENN... M/- Ísl tal kl. 2 - 4:10 - 5:50 Leyfð BABEL kl. 8 - 10:50 B.i.16 BABEL VIP kl. 5 FORELDRAR kl. 4:10 - 8:15 Leyfð MAN OF THE YEAR kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.7 BLOOD DIAMOND kl. 8 - 10:50 B.i.16 VEFURINN HE... M/- Ísl tal kl. 1:40 - 3:50 - 6 Leyfð CHARLOTT... M/-Ensk tal kl. 3:50 - 6 - 8 Leyfð THE PRESTIGE kl. 10 B.i.12 FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl.1:30 - 3:40 Leyfð SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal kl.1:40 Leyfð CHARLOTTE´S WEB m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 Leyfð BLOOD DIAMOND kl 8 - 10:30 B.i.16 FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2 - 4 Leyfð SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 6 Leyfð FORELDRAR kl 8 - 10 Leyfð APOCALYPTO kl. 8 B.i.16 BABEL kl. 8 B.i.16 VEFUR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 Leyfð NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5:30 Leyfð FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2 Leyfð DIGITAL DIGITAL DIGITAL DIGITAL DIGITAL SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínu-gulu á laugardögum og sunnudögum 7 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARS GOLDE GLOBE BESTA MYND ÁRSINS Sýnd í Háskólabíói Sýnd í Háskólabíói Sýnd í Háskólabíói Bandaríska dauðarokkshljóm- sveitin Cannibal Corpse heldur tvenna tónleika á Nasa dagana 30. júní og 1. júlí og verða seinni tón- leikarnir fyrir alla aldurshópa. „Þeir hafa lengi verið mjög spenntir fyrir Íslandi og þeir meira að segja fóru fram á að lækka sig í verði. Þeir eru ekki að koma hingað peninganna vegna heldur vilja þeir sjá landið og spila fyrir Íslendinga,“ segir Smári Jós- epsson, sem á þátt í skipulagningu tónleikanna. „Það var dauðarokks- sena í gangi hérna á tíunda ára- tugnum með hljómsveitum eins og Sororicide og því er þetta kær- komið tækifæri fyrir fólk að rifja upp gömul dauðarokks- dansspor.“ Cannibal Corpse, sem hefur gefið út tíu hljóð- versplötur, er söluhæsta dauðarokkshljómsveit allra tíma. Sveitin er fyrsta dauðarokkssveit sögunnar til að hljóta platínusölu í heim- inum og fyrsta sveitin til að koma dauðarokks-plötu á vinsældalista Billboard Magazine í Bandaríkjunum. Hugmyndaheimur Cannibal Corpse leitar fanga hjá raðmorð- ingjum, uppvakningum og hryll- ingi af öllum toga. Plötur sveitar- innar voru á sínum tíma bannaðar í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Kóreu. Í Þýskalandi var platan Butchered at Birth bönnuð með öllu og flutningur á lögum af fyrstu þremur plötum sveitarinnar bannaður. Það var ekki fyrr en í júní á síðasta ári að bannið var afnumið. Þess má geta að hljómsveitin kom fram í gamanmyndinni Ace Ventura: Pet Detective í atriði þar sem Jim Carrey fer á næturklúbb til að hitta vísindamann. „Það er líka til aukaefni þar sem Jim Carrey tekur lagið með Cannibal Corpse. Hann bað sérstaklega um að þeir yrðu í myndinni,“ segir Smári. Stuðningsaðilar tónleikanna eru Tónastöðin og Xið 977. Miða- verð er 2.500 krónur. Cannibal Corpse til Íslands Það er alltaf eitthvað yndislega bjart yfir The Shins. Þeir virðast alltaf jafn hamingjusamir, hvort sem þeir eru að róta græjum sínum sjálfir upp á svið (eins og ég sá þá gera á Hróarskeldu fyrir tveimur árum) eða leika fyrir fjöldann. Þetta er ein af þessum fáu sveitum sem geta unnið hörðustu andstæðinga sína yfir á sitt band bara ef þeir fá örstutt tækifæri til þess að smita aðra með áru sinni. Á sviði sér bassaleikarinn um að koma hópnum í gott stuð, á meðan lagahöfundurinn og söngvarinn feimni James Mercer hlær af vit- leysunni í félaga sínum en þegir þess á milli sem hann sker sig inn að kjarna hlustanda með ótrúlegri rödd sinni. Virkilega sætt allt saman. Það virðist þó sem það sé eitt- hvað að skyggja yfir sálu James. Á þessari þriðju plötu þeirra er að minnsta kosti ekki eins stór hluti laganna á uppsveiflunni og áður. Laglínurnar prentast heldur ekki eins langt inn í heilahvelið og eldri lög þeirra á borð við Saint Simon gera. Hér er þó samt vænn skammt- ur af afbragðs lagasmíðum. Öldu- legur hrynjandinn og strengjaút- setningarnar í Sea Legs gera það að betri lögum sem The Shins hafa gert. Að minnsta kosti það sval- asta. Þeir ná svo að viðhalda barns- legum sjarma sínum með lögum á borð við Red Rabbits og Turn on Me. Önnur lög hafa töluvert dekkra yfirbragð, eins og hið draumkennda Black Wave og hið örstutta Pam Berry, sem mér finnst ekki henta sveitinni sér- staklega vel. En kannski er það nú bara vegna þess að ég hef alltaf séð tónlist The Shins eins og vor- boða, sett hana í samhengi við þá tíma er laufin byrja að smeygja sér út úr fingrum trjánna, og kann því illa við að heyra þá á bláu nót- unum. Það er samt alveg augljóst að The Shins eru ekkert að tapa skyn- bragði sínu á góðar laglínur og áhugaverðar útsetningar. Þetta er þó án efa erfiðasta plata þeirra að melta. Hún krefst meira af hlust- andanum en fyrri plötur og að hlusta á hana í gegn getur dregið óþarflega mikla orku frá manni. Í bláum skugga Viðskiptavinir SPRON fá 20% afslátt af miðaverði ef greitt er með SPRON-korti A RG U S / 07 -0 03 6 Golden Globe- verðlaun3ÓSKARs-TILNEFNINGAR8 EKKI VERA SÚR Eru tennurnar í sýrubaði oft á dag? Sýran í sykruðum og sykurlausum gos- drykkjum getur eytt glerungi tannanna – og hann kemur aldrei aftur. Það er ekki bara súrt heldur líka sárt. Drekktu vatn – líka kolsýrt vatn!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.