Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 102

Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 102
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég held að þetta séu nú mínar fimmtán sekúndur af frægð. Ég fæ að segja einhverjar tvær setn- ingar og svo er sýnt brot úr Kast- ljósinu,“ segir sjónvarpsmaðurinn Sigmar Guðmundsson en honum bregður fyrir í næsta þætti 60 Minutes. Þátturinn verður sýndur á sunnudagskvöld á Stöð 2 en til umfjöllunar er Daniel Tammet, einhverfur strákur sem er þeim hæfileikum gæddur að geta lært framandi tungumál á örskots- stundu. Og íslenskan er þar engin undantekning. „Þannig var að breskir kvik- myndagerðarmenn voru að gera heimildarmynd um Tammet og létu hann læra íslensku,“ útskýrir Sigmar. „Hann fékk viku til undir- búnings heima hjá sér og kom svo hingað þar sem við í Kastljósinu ræddum við hann,“ heldur sjón- varpsmaðurinn áfram. „Hann fór síðan í stutta ferð um landið og þegar hann kom til baka vorum við fengin til að meta kunnáttu hans í málinu,“ segir Sigmar og niðurstöðurnar komu honum glettilega á óvart. „Þá gat hann orðið tjáð sig á sæmilegri íslensku,“ segir hann en eftir því sem Fréttablaðið kemst næst þá þótti íslenskum þýðanda þáttanna ekki taka því að þýða íslensku setningarnar sem Daniel mælir í þættinum yfir á hið ylhýra. Sigmar hefur fengið þó nokkur viðbrögð eftir að þátturinn var sýndur vestra fyrir tæpri viku. „Ég hef fengið tölvu- póst frá Íslendingum sem búa þarna úti og hafa látið mig vita. Og einhverjir hafa tekið upp símann og hringt í mig,“ útskýrir Sigmar. „Tammet er hins vegar ansi magnaður strákur og gat þulið upp 22 þúsund auka- stafi tölunnar pí en það tók hann fimm klukkustund- ir,“ bætir hann við. Íslenskur sjónvarpsmaður í 60 mínútum ... fær Egill Jóhannsson sem samdi nýtt og velheppnað stef fyrir fréttir Ríkisútvarpsins. „Þetta er alvarlegt hlutverk sem ég fer með. Mjög alvarlegt því ég kem útgrátinn af hverri æfingu,” segir Ómar Ragnarsson frétta- maður með meiru. Grallaralegur. Ómar er að æfa í söngleik sem frumsýndur verður í Borgarleik- húsinu 1. mars. Ómar hefur ekki farið með hlutverk í leikhúsi í 38 ár. Verkið er nýtt, gengur undir vinnuheitinu Ást eða Elliheimilið og fjallar um ástir á elliheimili. Að sýningunni stendur Vest- urport í samstarfi við Leikfélag Reykjavíkur. Gísli Örn Garðars- son leikstýrir og semur með hlið- sjón af hlutverkaskipan. Engir aukvisar eru í sýningunni. Sann- kallað stórskotalið: Ómar, Krist- björg Kjeld, Magnús Ólafsson, Theodór Júlíusson, Pétur Einars- son, Hanna María Karlsdóttir auk Skapta Ólafssonar. Þá koma fram félagar úr Álafosskórnum. „Hugsaðu þér,“ segir leikstjór- inn Gísli Örn. „Eins og með hann Skapta sem verður 80 ára á árinu. Hann var með gigg á Þingvöllum árið 1944! Það er svo mikil saga í þessu fólki.“ Söngleikurinn gerist á elliheim- ili og fjallar um ástir vistmanna. Að sögn Gísla höfum við séð svo marga söngleiki sem fjalla um ástir þeirra sem eru sextán ára og það blásið upp eins og það sé hin eina sanna ást. „En hvað gerist þegar ástin hitt- ir fyrir fólk sem er sjötíu ára? Mér fannst einnig áhugavert að taka þetta gamla klassíska söngleikja- form og setja það í allt annað sam- hengi,“ segir Gísli sem á reyndar í stökustu vandræðum með að skil- greina hvers konar sýningu er um að ræða. Því þarna er tekið á alvar- legum málum og oft erfiðum. Nokkrar ástarsögur eru í gangi og fjallað um atriði eins og þau þegar börnin brjálast þegar öldruð móðir þeirra er komin með nýjan kær- asta. Og svo, þegar menn geta ekki komið orðum að því sem þeir vilja segja, er brostið í söng. „Í sýningunni eru lög sem fólk þekkir, gömul og frá minni kynslóð. Lög með Bítlunum, Írafári, Presley, Sálinni hans Jóns míns... en sett í nýtt samhengi. Til dæmis er sungið um mann sem er með Alsheimer: He’s a real Nowhere man. Lag sem fólk þekkir úr öðru samhengi.“ Tíðindum sætir að Ómar skuli nú stíga á svið í leiksýningu. Ómar segir að fyrsta hlutverkið sem hann lék í leiksýningu hafi verið alvarlegs eðlis. En þá var hann tólf ára gamall og því sé þetta skemmti- leg áskorun. „Þetta er ekki stórt hlutverk. Og sérkennilegt. En ég má ekkert segja meira um það. Þetta verður að koma á óvart,” segir Ómar. Leikhúsmaðurinn Garðar Örn dregur hvergi úr lofsyrðum um Ómar, fer um hann svo fögrum orðum að Ómar fer hjá sér. „Þetta er eitthvert best geymda leikaraefni landsins. Alveg ótrú- lega fallegur leikari. Hann hefur ekki farið á leiksvið síðan 1969 þannig að tími er til kominn. Þegar jafn þjóðþekkt fígúra og Ómar er settur á svið eftir tæplega fjörutíu ára hlé þarf að hugsa það vandlega hvernig hlutverk það er sem maður vill sjá hann í. Dæmigert væri að sjá hann í hlutverki grall- arans en áskorunin eina rétta felst í að láta hann fara með alvarlegt hlutverk. Sem hann er að skila með stæl.“ „Hugmyndin að þessu kviknaði þegar að ég sat á kaffihúsi með Snæbirni vini mínum og við fórum að tala um hvað langt var síðan við fórum á þorrablót og ákváðum bara að halda eitt slíkt,“ segir Sindri Kjartansson kvikmynda- gerðarmaður. Hann lét ekki sitja við orðin tóm tóm heldur boðaði til þorra- blóts á Prikinu á fimmtudags- kvöld sem tókst að hans sögn vonum fram- ar. „Það mætti hellingur af stuðfólki, þar á meðal þeir Óttar Proppé og Bóbó Blöndal úr Ham, Heiðar í Botnleðju, Þorsteinn Guð- mundsson, Gunnar Jónsson Fóst- bróðir og Helgi Seljan Kastljóss- maður svo fáir séu nefndir.“ Gestir þorrablótsins eru flestir hverjir kunnar miðbæjarrottur en Sindri segir að þeir hafi látið sér súrmetið vel líka og gröðguðu það í sig. Að ógleymdum guðaveig- unm. „Stuðið hófst klukkan sex þegar harmóníkuspilari mætti á svæðið og stóð fram á kvöld. Á tímabili hélt ég að þakið myndi rifna af Prikinu.“ Sindri segir að lagt hafi verið upp með að ná sannkallaðri lands- byggðarstemningu á blótið. „Við vorum með sérstaka skemmti- nefnd og hvaðeina sem skipulagði öll atriðin og þetta heppnaðist ótrúlega vel. Það er ljóst að þetta er komið til að vera því við stefn- um ótrauðir á að halda annað þorrablót að ári.“ Þorrablót á Prikinu MARKAÐURINN á www.visir alla daga
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.