Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 1

Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 1
Guðrún Gunnarsdóttir dvaldist í París í fjögur ár og sneri til baka, reynslunni ríkari. „Ég held að amma mín hafi upphaflega vakið áhuga minn á tískunni, en hún var mikið fyrir það að klæðast fallegum flík- um. Ég fékk stundum að fara í fataskápana hennar til að prófa, máta og skoða,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir, viðskiptafræð- ingur og starfsmaður í Sævari Karli. „Amma og afi voru lengi með undirfataverslunina Ólympíu. Hún seldi lífstykki, magabelti, slankbelti og allt hvað eina og nú stend ég í Sævari Karli og er orðin spesíalisti í að láta konur vita hvernig slankbelti þær þurfa með kjólunum,“ segir Guð- rún og hlær. „Ég lærði líka í París að það er nauðsynlegt að vera fín í gegn. Ef maður er að klæða sig upp á annað borð, þá er jafn mikilvægt að vera í fallegum undirfötum og fallegum kjól. Jafnvel korsiletti og sokkaböndum ef því er að skipta,“ segir hún, en Parísardömur eru jú þekktar fyrir þetta. Þar eru einnig sérstakar verslanir þar sem konur selja gjafir frá fyrr- verandi ástmönnum sínum. „Eins og flestir vita eru Frakkar fremur frjálslegir í þessum efnum og konur eiga jafnvel tvo ástmenn fyrir utan eigin- manninn. Gjafirnar frá ástmönnunum segja náttúrlega til um hversu mikið þeir elska þær, en þegar sambandið slitnar þá er hefð fyrir því að gjafirnar séu allar seldar og þá fara þær í svokallaðar dépôt-vente búðir. Í slíkum verslunum er oft hægt að gera mjög góð kaup á vönduðum fatnaði og vörum, en ég veit sjálf fátt skemmtilegra en að finna fína hluti eftir óhefð- bundnum leiðum. Þannig er hægt að vera fín og hafa klassa, án þess að fara á kúpuna um leið.“ segir þessi skemmtilega kona að lokum. Teygjubelti kr. 1.990,- Skart Hárskraut FermingarhárskrautNý sending f Í flíkum frá ástmönn- um franskra kvenna heilsa og lífsstíll FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 -gerir bragðið betra! Einungis helmingur hitaeininga en sama ljúffenga bragðið. PARKI.IS / DALVEGl 10 - 14 / SÍMI 564 3500 FRÁBÆR OPNUNARTILBOÐ 20-50% AFSLÁTTUR AF NÝJUM VÖRUM Fimmtudag til sunnudags Opið til 21 í kvöld „Ég held að ég geti verið stoltur yfir að ná inn á þenn- an lista,“ segir Einar Örn Bene- diktsson, fyrrum söngvari Sykur- molanna, sem valinn var fimmti versti söngvari sögunnar í breska blaðinu Q. Einar kom á hæla Mariuh Carey, Céline Dion, Freds Durst og Ozzys Osbourne, sem þótti versti söngvarinn. Við sama tækifæri voru vald- ir 100 bestu söngvarar allra tíma. Jón Þór Birgisson úr Sigur Rós hafnaði í hundraðasta sæti. Björk Guðmundsdóttir hafnaði í 35. sæti. Elvis Presley var valinn besti söngvari sögunnar. Valinn fimmti versti söngvari allra tíma Ekkert líf án gönguskíða Hraðamælingar þar sem lögreglubíll í vegkanti mælir hraða bíls, eltir hann með blikk- ljós og ræðir við ökumanninn heyra brátt sögunni til. Ný tækni í hraðamælingum gerir lögreglunni kleift að setja upp sérstaka mynda- vélabíla sem mynda alla bíla sem aka fram hjá yfir hámarkshraða. Þegar myndirnar hafa verið unnar fá ökumenn sekt í pósti. Svipuð tækni er notuð í myndavél- um sem settar hafa verið upp við gatnamót, en þær mæla hraða auk þess að fylgjast með þeim sem aka yfir á rauðu ljósi. Sem dæmi um afköst mynda- vélabíls voru yfir hundrað öku- menn myndaðir við of hraðan akstur á einum klukkutíma á Dal- vegi í gær. Það er um fjórðungur þeirra 386 bíla sem voru vaktaðir. Meðalhraði þeirra sem óku of hratt var 64 kílómetrar á klukku- stund, en hámarkshraði á Dalvegi er 50. „Þetta kemur ekki í stað sýni- legrar löggæslu, en þetta er klár- lega framtíðin,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar. „Með þessu móti þurfa lögregluþjónar ekki að hafa bein afskipti af öku- mönnunum og geta notað tímann betur.“ Lögreglan hefur tvo myndavéla- bíla til umráða, einn í Reykjavík og einn á Akureyri. Framtíðin í hraðamælingum Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Fjölgreiðslumiðl- un hf. í gær. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins telur að leitin sé framhald á rannsókn Samkeppnis- eftirlitsins á kortafélögunum VISA og Kreditkortum. Fjölgreiðslumiðlun sér meðal annars um rekstur greiðslurásar fyrir greiðslukortaviðskipti, hið svokallaða Posa-kerfi. Hluthafar þess eru Greiðslumiðlun, Lands- banki Íslands, Glitnir, Samband íslenskra sparisjóða, Kaupþing banki, Kreditkort og Seðlabanki Íslands. Hinn 13. júní í fyrra gerði Sam- keppniseftirlitið húsleit í höfuð- stöðvum VISA og Kreditkortum hf., umboðsaðila Mastercard á Íslandi. Tilefnið var rökstuddur grunur um brot á ákvæðum sam- keppnislaga, einkum misnotkun á markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir færsluhirðingu, sem er inn- lausn færsluávísana til kaup- manna. „Eins og ég les úr þessum úrskurði þá er ekki verið að skoða okkar félag sérstaklega, heldur er þetta einhvers konar framhald af rannsókninni á kortafyrirtækjun- um. Menn vilji gera betur og skoða meira en var gert þá,“ segir Logi Ragnarsson, framkvæmdastjóri Fjölgreiðslumiðlunar. „Þeir komu með húsleitarheimild, yfirfóru gögn og tóku með sér afrit af tölvu- gögnum.“ Logi segist ekki ósáttur þó „vissulega sé alltaf sérstakt að fá menn í heimsókn sem eru með heimild til að fara í gegnum gögn- in þín“. „Þetta er bara partur af þeirra hlutverki í okkar samfélagi, og eitthvað sem fyrirtæki á sam- keppnismarkaði geta átt von á.“ Ekki náðist í Pál Gunnar Páls- son, forstjóra Samkeppniseftirlits- ins, við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Húsleit hjá fyrirtæki í eigu allra bankanna Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Fjölgreiðslumiðlun hf. í gær. Fyrirtækið sér um Posa-kerfið og er í eigu bankanna, Seðlabankans og fleiri. Framkvæmdastjóri telur leitina vera framhald á rannsókn eftirlitsins á VISA og Kreditkortum hf. Íslenska kvenna- landsliðið í knattspyrnu tryggði sér níunda sætið á Algarve-Cup í Portúgal með glæsilegum 4-1 sigri á Kínverjum í gær. „Þetta var að mínu mati ein bestu úrslit kvennalandsliðsins frá upphafi,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari eftir leikinn. Eftir markalausan fyrri hálf- leik skoraði íslenska liðið fjögur mörk áður en það kínverska náði að klóra í bakkann með marki á lokamínútu leiksins. Marka- drottningin Margrét Lára Viðars- dóttir skoraði tvö marka íslenska liðsins í gær. Ein bestu úrslit frá upphafi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.