Fréttablaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 77
„Þeir sem keppa til úrslita eru, og
fyrst ber að nefna sjálfa stjörnuna
Kristján Þorvaldsson, en aðrir eru
Einar Örn Konráðsson, Andri Már
Sigurðsson og síðust til að kom-
ast í úrslitin er Ísabella Magnús-
dóttir,“ segir Friðrik Indriðason,
blaðamaður og helsti skipuleggj-
andi Stóru trúbadorkeppninnar á
Sportbarnum.
Keppnin sú hefur nú staðið yfir
í rúman mánuð fyrir troðfullu húsi
að sögn Friðriks. Haldin hafa verið
fjögur undanúrslitakvöld og nú er
komið að sjálfu úrslitakvöldinu.
Sem haldið verður með pomp og
prakt næsta laugardagskvöld.
Að sögn Friðriks stefnir í hörku-
keppni. Sjálfur á hann vart orð í
eigu sinni þegar hæfileikar Ísa-
bellu koma til tals. „Gríðarlegt
efni þar á ferð og leikur aðeins
frumsamið. Hún er með hundrað
tattú um allan líkamann og algört
beib. Þú verður bara að sjá þetta
til að trúa því.“
Dúettinn Sviðin jörð, frændurn-
ir Magnús Einarsson og Freyr
Eyjólfsson, skemmta gestum
keppninnar ásamt Hirti Howser
harmónikuleikara með meiru.
Friðrik hvetur menn til að mæta
tímanlega því hann býst við troð-
fullu húsi. Friðrik, sem hefur að
undanförnu einbeitt sér að störf-
um sem falla undir verksvið
skemmtanastjóra, hefur ýmis járn
í eldinum til skemmtunar barflug-
um borgarinnar. Þannig er hann
nú að undirbúa sviðakjamma-
keppni sem ekki er tímabært að
greina frá að svo stöddu.
Kristján í úrslit
trúbadorkeppni
Ofurfyrirsætan Kate Moss kom
kærastanum Pete Doherty á óvart
á afmæli hans á mánudaginn. Kate
leigði þyrlu fyrir þau skötuhjúin
sem flutti þau á rólegan stað úti á
landi þar sem þau fóru í lautarferð.
Breskir fjölmiðlar greina frá því
að Kate og Pete, sem lengi hefur
barist við eiturlyfjafíkn sína, hafi
lagt af stað með körfu fulla af góð-
gæti fyrir lautarferðina. Sjálfur
hélt Pete á flösku af kampavíni en
Moss var með myndbandstökuvél
til að festa atburðinn á filmu. Pete
varð 28 ára á mánudaginn og af-
sannaði þar með kenningu margra
að hans biðu sömu örlög og rokk-
aranna Jimi Hendrix og Jim
Morrison, en hraður lífsstíll þeirra
dró þá til dauða 27 ára gamla.
Rómantískt
afmæli Pete
Hljómsveitin R.E.M. er á leiðinni í
hljóðver til að taka upp sína fyrstu
plötu síðan Around the Sun kom út
árið 2004. Upptökustjóri verður
Írinn Jacknife Lee, sem er þekkt-
astur fyrir að hafa tekið upp How
to Dismantle an Atomic Bomb
með U2 og Final Straw með Snow
Patrol.
Platan, sem verður fjórtánda
hljóðversplata R.E.M., er væntan-
leg í búðir í lok ársins. Around the
Sun fékk slæmar viðtökur á sínum
tíma og seldist aðeins í rúmum 230
þúsund eintökum í Bandaríkjun-
um.
R.E.M. á leið
í hljóðver
Það er lag á nýju Kaiser Chiefs-
plötunni sem heitir Everything
Is Average Nowadays og ég
er svona að reyna að gera það
upp við mig hvort þeim finnist
það bara hið besta mál eða ekki,
því lagið, platan og þessi bless-
aða hljómsveit er akkúrat það, í
meðallagi.
Ég veit ekki alveg hvað gerð-
ist með breskt vinsældarokk, en
þær sveitir sem gera það best
þessa dagana eru byrjaðar að
minna mig meira og meira á
pöbbasveitir. Það virðist ekki
vera neitt rými lengur á bresk-
um vinsældalistum fyrir ný-
breytni.
Það væri aldrei hægt að segja
um Kaiser Chiefs að tónlistin
risti djúpt, eða að það sé hægt að
taka hana alvarlega. Það er allt-
af einhver svona „hey, ég er svo
fullur og það er svo ógeðslega
gaman“ blær yfir þeim. Sem er
eflaust frábært þegar maður er
búinn að belgja sig út af bjór og
vill gera heiðarlegar tilraunir til
þess að sjá hversu mikið maður
þarf að hrista búkinn til þess að
pissa froðu. Eflaust mjög auð-
velt og gaman að hoppa og
skoppa við þessa tónlist á pöbb.
En þegar maður er eini edrú
gæinn í hópnum sér maður betur
hversu fáránlegir allir hinir eru.
Vitið þið hvað ég á við? Það er
akkúrat þannig sem mér líður
þegar ég hlusta á Kaiser Chiefs.
Sem fylgifiskur Employment
er ...Angry Mob fín. Hér er
nægilega mikið af sæmilega
grípandi lögum til þess að
tryggja það að maður sleppur
ekki frá því að heyra í, eða af
þessari sveit, út árið. Ricky Wil-
son er enn að reyna að vera
skondinn en tekst misvel upp.
Hann er vissulega enginn Jarvis
Cocker þegar kemur að texta-
smíð, þó hann langi til þess að
vera það.
Þetta er tónlist sem kristallar
hversu óspennandi megin-
straumsrokk er orðið. Kaiser
Chiefs er sveit sem er troðið inn
í eyrun á okkur og sum okkar
eiga eflaust eftir að dilla sér við
sum af þessum lögum einhvers
staðar í gleðskap. En daginn
eftir, þegar gleðskapurinn er
búinn, verðum við búin að
gleyma því að hafa heyrt þessi
lög, alveg eins og við verðum
búin að gleyma þessari sveit
eftir þrjú ár.
Lifi meðalmennskan