Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 18

Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 18
fréttir og fróðleikur Upplýsa um kosti og galla Aftur komnar á dagskrá Sérnefnd um stjórnarskrár- mál hefur frumvarp Geirs H. Haarde forsætisráðherra til skoðunar, sem kveður á um að náttúruauðlindir landsins skuli vera í þjóðar- eign. Er frumvarpið merk- ingarlaust? Eiga pólitískar yfirlýsingar heima í stjórn- arskrá? Þessar spurning- ar voru meðal þeirra sem ræddar voru á fundi í Há- skólanum í Reykjavík í gær. „Lagalega gengur það ekki upp að villt og vörslulaus dýr, þar á meðal fiskar, séu undirorpin einhvers konar einstaklingseignarrétti (eða sameignarrétti). Til að eignast villt dýr verður maður fyrst að veiða það. „Sameign þjóðarinnar“ eða „þjóðareign“ á nytjastofnum getur af þessum sökum ekki vísað til „eignar“, hvorki eignar ein- staklinga né ríkisins [...] Með stjórnarskrárákvæði um „sam- eign þjóðarinnar“ eða „þjóðar- eign“ er boltinn gefinn upp fyrir ágreining og illdeilur, enda getur hver sem er gefið hugtökum sem þessum merkingu af pólitískri vild.“ Svo segir í grein Skúla Magnússonar héraðsdómara, Auglýst eftir efnislegu inntaki!, sem birtist í Fréttablaðinu 7. mars. Þar færði hann fyrir því rök, í stuttu máli, að auðlindaákvæði sem ríkisstjórnarflokkarnir stefna að því að setja í stjórnar- skrána, sé merkingarlaust og til þess fallið að skapa réttaróvissu sem sé óheppileg. „Hefði verið hægt að ná fram sama tilgangi með frumvarpinu, sem stjórnarflokkarnir vildu ná fram, með því að komast undan því að nota hugtakið þjóðareign?“ spurði Guðrún Gauksdóttir dós- ent í inngangserindi sínu á fund- inum í gær. „Þetta er fyrst og fremst pólitísk stefnuyfirlýsing,“ sagði Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks og einn nefndar- manna í sérnefnd um stjórnar- skrármál, í framsöguerindi sínu í gær. „Það er hlutverk þingsins að reyna að lágmarka alla réttar- óvissu í tengslum við breytingar á stjórnarskránni, og útrýma henni ef hægt er. Það er að mörgu að hyggja í þessu máli og ég útiloka ekki að frumvarpið taki breyting- um áður en það verður samþykkt,“ sagði Bjarni enn fremur. Hann sagði kjarnann í frumvarpinu vera pólitíska yfirlýsingu um „áréttingu á fullveldisrétti“ yfir auðlindum landsins. „Pólitískar yfirlýsingar eiga ekkert erindi í stjórnarskrá,“ sagði Kristrún Heimisdóttir, full- trúi Samfylkingarinnar í stjórnar- skrárnefnd, í erindi sínu. Hún lagði áherslu á að Samfylkingin styddi tillögur sem fram hefðu komið í starfi auðlindanefndar árið 2000 en í starfi þeirrar nefnd- ar kom fram sú stefna að stjórn- arskrárfesta þjóðareign á auð- lindum og taka upp gjaldtöku fyrir nýtingu, svokallað auðlinda- gjald. Hún sagðist enn fremur líta svo á að hugtakinu þjóðareign væri gefið efnismeira inntak í tillögum auðlindanefndar heldur en í því Sátt um auðlindaákvæði fjarlæg Höfðabakka 3 • Borgartúni 29 • Glerárgötu 34 Satellite Pro A120-163 Intel Core Duo T2050 512MB vinnsluminni 15,4” skjár 60GB harður diskur Aðeins 89.900kr./stgr. Áður 119.866kr. Fermingartilboð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.