Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 24
[Hlutabréf]
Kaupþing, ástralska verðbréfafyr-
irtækið Macquarie Bank og nokkrir
fjárfestingasjóðir hafa fest kaup á
bandaríska fasteignafélaginu Spirit
Finance í Scottsdale, Arizona. Kaup-
verðið nemur tæpum 238 milljörð-
um króna auk vaxtaberandi skulda
að upphæð 129 milljarða króna og
verður félagið afskráð úr Kauphöll-
inni í New York.
Helgi Þór Bergs, framkvæmda-
stjóri Kaupþings í Lundúnum, segir
að Spirit kaupi fasteignir af fyrir-
tækjum, til dæmis verslanakeðjum,
og leigi þær aftur til seljenda.
Þannig býðst fyrirtækjunum að
fjármagna sig á hagkvæmari hátt.
„Við höfum verið í rekstri sem
þessum í Bretlandi þar sem hlut-
irnir eru þróaðri en í Bandaríkjun-
um. Það eru mjög öflugir stjórn-
endur á bak við fyrirtækið sem
hefur stækkað hratt á tiltölulega
skömmum tíma. Við sjáum ákveðin
tækifæri í því að skoða með þeim
hluti í Evrópu og teljum að það sé
hægt að stækka fyrirtækið enn
frekar.“
Eignir Spirit námu 190 milljörð-
um króna um síðustu áramót.
Tækifæri í Evrópu
Kaupþing tekur þátt í 238 milljarða kaupum í BNA.
Hagnaður Byrs sparisjóðs, sem er
sameinaður sparisjóður SPH og
SPV, var meiri en ráð var fyrir
gert en hann skilaði 2.678 milljóna
króna hagnaði í fyrra. Þetta kom
fram í máli Jóns Þorsteins Jóns-
sonar, stjórnarformanns Byrs, á
fyrsta aðalfundi nýja sparisjóðs-
ins í vikunni. Var starfsfólki
greiddur 250 þúsund króna bónus
fyrir vel unnin störf á síðasta ári.
Á fundinum var stjórn veitt
heimild, sem gildir til fimm ára,
til að auka stofnfé sparisjóðsins í
allt að þrjátíu milljarða króna.
Fram kom hjá Jóni Þorsteini að
stjórn hafi hug á því að nýta
fimmtung þeirrar heimildar á
seinni hluta þessa árs til að styrkja
eiginfjárgrunn sparisjóðsins.
Stofnfé Byrs stendur í rúmum
240 milljónum króna og því myndi
vera um 25-földun að ræða gangi
áform stjórnarinnar eftir.
Samið hefur verið við MP Fjár-
festingarbanka um að hann annist
viðskipti með stofnfjárhluti Byrs
á skipulögðum markaði.
Stjórn Byrs var endurkjörin en
hana skipa, auk Jóns Þorsteins,
Egill Ágústsson, Magnús Ármann,
Matthías Páll Imsland og Styrmir
Þór Bragason.
Byr í seglin hjá
Byr - sparisjóði
Gengi hlutabréfa lækk-
aði nokkuð á helstu fjár-
málamörkuðum í gær.
Aukin vanskil á kóln-
andi fasteignamarkaði í
Bandaríkjunum hreyfði
við viðkvæmum fjár-
málamarkaði, að sögn
greinenda.
Gengi hlutabréfa lækkaði um allt
að 2,9 prósent á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum í Evrópu og Asíu í
gær. Lækkanir á bandarískum
hlutabréfamörkuðum leiddu lækk-
anaferlið en helstu vísitölur fóru
niður um tæp tvö prósent við lokun
markaða á þriðjudag.
Íslenska úrvalsvísitalan fór ekki
varhluta af lækkunum. Vísitalan
lækkaði strax við opnun Kauphall-
ar Íslands í gærmorgun og endaði
í 7.331 stigi sem er 2,13 prósentu-
stiga lækkun á milli daga. Gengi
allra hutabréfa tók dýfu og hækk-
aði ekkert félag í Úrvalsvísitöl-
unni.
Ástæðan fyrir lækkununum í
Bandaríkjunum voru aukin van-
skil einstaklinga á sérstökum
íbúðalánamarkaði sem lánar til
þeirra sem átt hafa í greiðsluerfið-
leikum og eru á svörtum lista hjá
bönkum og fjármálastofnunum. Á
sama tíma er talið að einhver fyr-
irtækja í þessum lánageira hafi
falsað afkomutölur sínar.
Kristján Bragason, sérfræðing-
ur hjá greiningardeild Landsbank-
ans, bendir á að gengi bréfa í
bandaríska fyrirtækinu Accredit-
ed Home Lenders Holding, sem
veitir fasteignalán á þessum mark-
aði, hafi fallið um 65 prósent á
markaði á þriðjudag. Vart var á
bætandi því gengi bréfa í félaginu
féll um heil 28 prósent á mánudag
eftir að það greindi frá versnandi
afkomu.
„Markaðirnir eru mjög við-
kvæmir. Þeir eru óöryggir fyrir og
því þarf lítið til að hreyfa við
þeim,“ segir Kristján og bendir á
að ekki sé nema hálfur mánuður
síðan alþjóðlegir markaðir tóku
síðast dýfu.
Hann bætir því hins vegar við
að gengi hlutabréfa hafi hækkað
mikið, ekki síst í Kína, og hafi
dýfan undir lok febrúar verið
ákveðin leiðrétting sem margir
hafi búist við.
Hagvaxtarspá í Bandaríkjunum
á sömuleiðis hlut að máli en hún
hefur verið lægri en fyrri spár
gerðu ráð fyrir. Menn eru ekki á
einu máli um hagvaxtarþróun
vestra, að sögn Kristjáns. Hann
segir greinendur á meginlandinu
telja hagvöxt í Bandaríkjunum á
góðu róli. Bandarískir fjárfestar
óttast hins vegar snarpa kreppu.
„Ef það hægist mjög mikið á banda-
ríska hagkerfinu telja menn að það
muni hafa áhrif á öðrum mörkuð-
um,“ segir hann.