Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 25

Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 25
Icelandair stefnir á fjölgun ferða til og frá landinu í vor. Bæta á við ferðum til Bandaríkjanna klukkan 10 að morgni og ferðum til Íslands frá Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og Ósló klukkan átta á morgnana. Finnur Ingólfsson, stjórnarfor- maður Icelandair Group, upplýsti um fyrirætlanir félagsins á aðal- fundi þess á þriðjudag. Leiðarkerfi flugfélagsins hefur byggst á ferð- um til Evrópu að morgni og síðdeg- is til Bandaríkjanna. Því er hér um speglun á hluta leiðarkerfisins að ræða. Finnur segir að með þessu sé lagður enn frekari grunnur að fjölgun ferðamanna hingað til lands. Eftir breytinguna verða vikulega 160 ferðir til og frá Íslandi á vegum félagsins. Finnur segir ekki standa til að breyta Icelandair Group í alhliða fjárfestingafélag til að nýta lausa- fjárstreymi þess. „Við sem komum upphaflega að félaginu teljum það einmitt styrk að vera fjárfestar í margþættu framleiðslu- og þjón- ustufyrirtæki á afmörkuðu sviði eins og Icelandair Group er. Það muni strax og í framtíðinni skila eigendunum góðum arði af fjár- festingunni.“ Finnur segir hér allar aðstæður til áframhaldandi vaxtar og hag- sældar næstu ár sem tryggja megi með stuðningi við útrásarfyrirtæk- in „en ekki leggja stein í götu þeirra eða óska þeim úr landi“. Samhliða segir Finnur að ýta eigi undir erlenda fjárfestingu hér. Vikulega verða 160 ferðir til og frá landinu „Lítill áhugi er eðlilega á að fjár- festa í grein sem fær ekki að dafna vegna þess að vöxtur hennar verður skattlagður af ríkinu sérstaklega. Með öðrum orðum, fjármagnið flýr greinina,“ skrifar Sigurgeir Brynj- ar Kristgeirsson, framkvæmda- stjóri Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum, í kafla sem birtist í ritinu Þjóðareign sem Rannsóknar- miðstöðvar um samfélags- og efna- hagsmál gaf út í gær. Sigurgeir kemst að þeirri niður- stöðu um auðlindagjald og áhrif þess á virði hlutafjár að með því að leggja 5,6 krónur á hvert þorskígildi hefði heildarmarkaðsvirði eigin fjár sjáv- arútvegsfélaga verið komið nánast niður í ekki neitt í árslok 2005. Borin er saman þróun eigin fjár sjávarútvegsins við viðskiptabank- ana og Bakkavör árin 2001 til 2005. Sigurgeir bendir á að árið 2001 hafi eigið fé sjávarútvegsins verið margfalt meira en eigið fé hvers banka, en í árslok 2005 hafi eigið fé Bakkavarar verið orðið meira en eigið fé útvegsins. Fjármagn flýr sjávarútveginn Bandarísku fjárfestingasjóðirnir Texas Pacific Group og Cerberus eru sagðir hafa lagt fram tilboð í meirihluta hlutafjár í japanska fyrirtækið JVC, sem þekkt er fyrir samnefnd hljómtæki og aðrar tæknivörur. Fyrirtækið hefur átt við rekstrar- vanda að stríða um nokkurt skeið og greindi frá því fyrir skömmu að áætlaður taprekstur á fyrsta ársfjórðungi muni nema um sjö milljörðum jena, rétt rúmlega fjórum milljörðum króna. Þetta er rúmlega tvöfalt meira en upphaf- legar áætlanir gerðu ráð fyrir, Kaupverð er talið nema um 81 milljarði jena, rúmum 43 milljörð- um íslenskra króna. JVC er til sölu Gengi hlutabréfa í bresku dagvöru- verslanakeðjunni Sainsbury, þriðju stærstu verslanakeðju Bretlands, hækkaði í Bretlandi í gær eftir að breska dagblaðið Times greindi frá því að þrír fjárfestahópar undir for- ystu fjárfestingasjóðsins CVC hafi hug á að gera yfirtökutilboð. Samkvæmt fréttum Times eru líkur á að tilboð fjárfestahópsins hljóði upp á rúm 550 pens á hlut sem metur keðjuna á 9,5 milljarða punda, jafnvirði rúmra 1.240 millj- arða íslenskra króna. Til saman- burðar stendur gengið nálægt 527 pensum á hlut í dag. Times segir viðræður þó á byrj- unarstigi og því geti allt eins farið svo að verðmiðinn fyrir keðjuna breytist eftir því sem viðræðurnar þróist. Skýrist yfirtak- an á Sainsbury vaxtaauki! 10% Skráðu þig í Fótboltaklúbb MasterCard og notaðu MasterCard kortið þitt frá 15. mars - 30. apríl og þú gætir unnið það sem alla fótboltaáhugamenn dreymir um: Ferð fyrir tvo á úrslitaleik UEFA Champions League í Aþenu 23. maí 2007. Í hvert skipti sem félagi í Fótboltaklúbbi MasterCard notar MasterCard kortið sitt á tímabilinu fer nafn hans í pottinn sem vinningarnir verða dregnir út. Því oftar sem þú notar MasterCard kortið þitt, því meiri líkur á að þú farir á úrslitaleikinn! Meira á www.kreditkort.is. FÓTBOLTAFÁR taktu þátt í því ! Notaðu MasterCard® kortið þitt og þú gætir verið á leið á úrslitaleik UEFA Champions League í Aþenu 23. maí! Ferð, gisting og miðar í boði MasterCard.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.