Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 40

Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 40
 15. MARS 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið heilsa og lífsstíll Marín Þrastardóttir fimleika- þjálfari spáir Íslendingum góðu gengi á Norðurlanda- mótinu. „Íslendingar munu í fyrsta sinn eignast fulltrúa í mix-liðum á erlendu fimleikamóti þegar Stjarnan/Björk og Grótta/Ármann taka þátt í Norðurlandamóti í Stokkhólmi næstkomandi apríl,“ útskýrir Marín Þrastadóttir, afrekskona úr fimleikum og einn þjálfari liðanna. „Bæði liðin unnu sér inn þátt- tökurétt á Norðurlandamótinu, eftir frækilega framgöngu á Bik- armóti FSí sem fór fram 16. febrú- ar í íþróttahúsinu við Ásgarð í Garðabæ,“ heldur hún áfram. „Þar kvað sérstök tækninefnd upp úrskurðinn um hvaða lið fengi þátttökurétt.“ Eins og fyrr sagði er þetta í fyrsta sinn sem Íslendingar senda mix-lið á erlent mót, en með mix- liði er átt við kynjablandað lið þar sem stúlkur og strákar keppa saman. „Þetta er í takt við þá þróun sem hefur átt sér stað, þar sem strákum hefur fjölgað mikið í greininni,“ segir Marín. „Fimleik- ar eru á heildina séð á mikilli upp- leið á Íslandi. Sem dæmi má nefna gott gengi Gerplu á Evrópumót- inu 2006, en þar hafnaði liðið í öðru sæti. Ekkert annað íslenskt lið hefur náð svona langt á jafn erfiðu móti.“ Marín segir krakkana vart hafa ráðið sér fyrir kæti þegar ljóst var að þau yrðu í fyrstu mix-lið- unum á leið á erlend mót. „Þau voru alveg í skýjunum. Svo glitti í tár á nokkrum stöðum. Sumir eru náttúrulega að fara í fyrsta sinn á stórmót. Mikil spenna fylgir jafn- framt þátttökunni, ekki síst í ljósi þess hversu góða möguleika liðin fjögur, það er að segja blönduðu liðin , Gerpla og stúlknalið Stjörn- unnar/Bjarkar, eiga að ná langt á mótinu.“ roald@frettabladid.is Hér sjást strákarnir gera þrekæfingu, í þessu tilviki viðnámsæfingu. Sá sem liggur á bakinu reynir að ýta höndunum upp á meðan hinn veitir viðnám. Krakkar úr Gróttu-Ármanni sýna hér lyftu. Æfingar af þessu tagi byggja á styrk, jafnvægi og síðast en ekki síst góðri samvinnu. Þess má geta að krakkarnir í liðunum eru á aldursbilinu 15-31 ára. Margir þeirra eru fyrrverandi landsliðmenn í áhaldafim- leikum. Eigum góða möguleika Hér sést Marín veita Önnu Rúnu þjálfara hjá Stjörnunni/Björk viðnám þegar hin síðarnefnda reynir að teygja úr höndunum. Þessir hressu krakkar eru úr kynjablönduðu eða mix-liði Stjörnunnar/Bjarkar og sýna hér lyftu, sem eru algengar í fimleikum. Paræfing af þessu tagi er skylduæfing í dansi hjá kynjablönduðu liðunum. Þessi litla stelpa æfir fimleika hjá Ármanni og sést hér gera trampólín-æfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ORKUMEIRI MORGUN- STUND Íslendingar þekkja það mæta vel að lifa í myrkri. Þá getur verið óskaplega erfitt að fara á fætur á morgnana og dagurinn allur einkennist af sleni og drunga. Góð leið til að auka orkuna á morgnana er að drífa sig út þegar sólin er á lofti. Stuttur göngutúr rétt fyrir mat getur gert kraftaverk og eykur orkuna til allra verka það sem eftir er dagsins auk þess sem auðveldara verður að vakna daginn eftir. EKKI VERA SÚR Eru tennurnar í sýrubaði oft á dag? Sýran í sykruðum og sykurlausum gos- drykkjum getur eytt glerungi tannanna – og hann kemur aldrei aftur. Drekktu vatn – líka kolsýrt vatn!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.