Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 44
15. MARS 2007 FIMMTUDAGUR6 fréttablaðið heilsa og lífsstíll
Ófáir þjást af verkjum í baki og
hálsi alla daga. Verkir og stífni í
vöðvum, sérstaklega í kringum
háls og bak, er góð vísbending
um vöðvabólgu. Margir kljást
við þennan leiðindakvilla
árum saman án þess að gera
nokkuð í sínum málum en ým-
islegt er hægt að gera sjálfur
sem þarf ekki að kosta mikið.
Í fyrsta lagi er nauðsynlegt reyna
að átta sig á ástæðu bólgunnar og
einbeita sér svo að úrræðum.
Algengt er að fólk noti ranga lík-
amsbeitingu við vinnu og þarf þá
að gera breytingu á vinnuað-
stöðu. Eins getur streita á vinnu-
stað verið ástæðan og þá þarf að
finna leiðir til þess að draga úr
henni. Ef enga augljósa skýringu
er að finna ætti að leita til læknis
sem oft vísar áfram til sjúkra-
þjálfara.
Mikilvægt að ná góðri slökun
eins oft og mögulegt er. Það er til
dæmis hægt að gera með því að
fara í sund, gönguferðir eða
leggjast í heitt bað. Einnig er gott
að leggja heita bakstra á auma
svæðið. Sjúkranudd getur verið
nauðsynlegt til þess að ná
bólgunni og sjúkraþjálfari getur
bent á rétta líkamsstöðu og við-
eigandi æfingar fyrir hvern og
einn. Einnig getur verið gott að
fara annað slagið í slökunar-
nudd.
Þjálfun er jafn nauðsynleg
hvíldinni. Styktarþjálfun og
teygjuæfingar á aumum vöðvum
eru lykilatriði í baráttunni við
vöðvabólgu. Það sem ætti hins
vegar að forðast í lengstu lög er
ofnotkun og ofreynsla á vöðva og
viðvarandi streita en einnig getur
kuldi aukið á bólguna.
Edda Lúvísa Blöndal, sjúkra-
þjálfari hjá Sjúkraþjálfun Kópa-
vogs, sýndi okkur nokkrar styrkt-
ar- og teyjuæfingar sem hafa
reynst gagnlegar við stífum
vöðvum.
„Fyrsta æfingin gæti verið að
standa upp úr stólnum og setjast
niður aftur fimmtán sinnum. Hlé-
æfingar sem þessar hafa helst
áhrif ef þær eru gerðar reglulega,
minnst einu sinni á dag, og helst
oftar. Þörfin á þeim eykst í jöfnu
hlutfalli við kyrrsetu í vinnunni,
svo og streitu.“ - árá
Teygt á stífum vöðvum
Teygja: Pressa niður öxlina án þess að
skekkja líkamann, snúa höfðinu frá
og halla því fram svo að hakan nálgist
viðbeinið. Ýkja hreyfinguna með því að
draga létt í höfuðið, halda í 30 sekúndur
og gera svo eins á hinni hliðinni.
Liðkandi æfingar sem auka blóðflæði
kringum axlargrind: Búa til stóran hring
með öxlum, 10 í hvora átt. Athuga að
hreyfa axlir, ekki bara handleggi.
Teygja: Pressa niður öxlina án þess að
skekkja líkamann, halla höfðinu frá
svo að eyrað nálgist gagnstæða öxl og
draga létt í höfuðið með gagnstæðri
hönd. Halda í 30 sekúndur og gera svo
eins á hinni hliðinni.
Styrkjandi æfingar fyrir herðablaðs-
vöðva, vinnur á móti hoknum brjóst-
hrygg: Draga herðablöð nær hvort öðru,
ímynda sér að hneta sé brotin milli
herðablaðanna. 20 endurtekningar.
Tómatar eru geysilega góðir og fullir af vítamínum og hollustu.
Íslendingar hafa löngum látið nægja að sneiða tómata ofan á
brauð eða brytja þá í salat en til eru ýmsar matreiðsluaðferðir
við tómata sem bíða þess að kynnast þér. Hér er ein þeirra:
8-10 íslenskir tómatar
1 tsk. kummin (cumin)
1 tsk. sykur
nýmalaður pipar
salt
6 msk. ólífuolía
1 poki salatblanda, t.d.
íslenskt klettasalat
parmesanostur (biti)
Ofninn er hitaður í
220°C. Tómatarnir
skornir í helminga
og þeim raðað í eld-
fast fat með skurð-
flötinn upp. Krydd-
aðir með kummini,
sykri, pipar og salti.
Settir í ofninn og
bakaðir í um 45 mínútur. Þá er olíunni dreypt jafnt yfir þá og þeir
bakaðir í 10-15 mínútur í viðbót. Látnir kólna þar til þeir eru
volgir. Salatblandan sett í skál eða á fat, tómötunum blandað
saman við og olíunni úr mótinu hellt yfir. Nokkrar flögur skornar
af parmesanosti og dreift yfir.
Hollt tómatasalat
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska