Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 48

Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 48
fréttablaðið heilsa og lífsstíll 15. MARS 2007 FIMMTUDAGUR10 Rafsegulmengun er fyrirbæri sem sífellt fleiri eru farnir að velta fyrir sér. Getur verið að rafsegulsvið í húsum og híbýlum hafi skaðleg áhrif á heilsu manna? Valdemar Gísli Valdemarsson rafeindavirkja- meistari telur svo vera en hann hefur kynnt sér þetta málefni allt frá árinu 1991. „Rétt eins og margir finna fyrir óþægindum vegna svifryksmeng- unar geta sumir fundið fyrir van- líðan vegna rafsegulmengunar. Vanlíðanin getur lýst sér sem höfuðverkur, þreyta og slen, vöðvaverkir eða sviði og roði í húð sem kemur eftir viðveru fyrir framan sjónvarps- eða tölvuskjá. Einnig þorsti, pirringur í augum og einbeitingarskortur. Þeir sem eru allra viðkvæmastir fyrir raf- segulmengun geta upplifað lam- andi þreytu þannig að þeir geta vart gengið upp stiga,“ segir Valdemar Gísli Valdemarsson raf- eindavirkjameistari sem þekkir vel til málsins. Algengt er að fólk vakni þreytt með þungan höfuðverk ef það sefur við hlið rafmagnsvekjara- klukku að sögn Valdemars sem ræður fólki frá því að hafa raf- magnstæki inni í svefnher- bergjum. „Sérstaklega getur verið varasamt að hafa móðurstöð þráð- lausra síma inni í svefnherberg- um. Móðurstöðin sendir frá sér stöðuga hátíðnigeislun alveg óháð því hvort síminn er í notkun eða ekki. Öllu skárra er meira að segja að hafa farsíma á náttborðin.“ Einnig bendir Valdemar á að „babysitter“ tæki geti valdið vand- ræðum. Þau virka á svipaðan hátt og þráðlausu símarnir og dæmi eru um að börn sem áður hafa sofið illa hafi snarlagast við það eitt að fjarlægja tækið úr herberginu. Langtímaáhrif rafsegulmeng- unar á fólk getur í sumum tilfell- um leitt til örorku. Valdemar segir einkenni rafmagnsóþols vera á margan hátt svipuð og einkenni vefjagigtar. Ekki sé því ólíklegt að sumir séu ranglega greindir með vefjagigt þegar það er í raun raf- magnsóþol sem þjakar þá. „Í Háskólanum í Malmö hafa verið gerðar viðamiklar rannsóknir sem sýnt hafa fram á að þegar fólk er í návígi við rafsegulsvið verður það fyrir miklum sinduráhrifum. Sind- uráhrif er þegar orkubúskapur frumulíkamans fer úr skorðum og fruman getur ekki losað sig við óæskilegar pósitívar jónir sem myndast í henni,“ segir Valdemar og bætir við að með því að neyta matar sem hafi andoxandi áhrif geti maður minnkað slík einkenni og stuðlað að heilbrigðari frum- um. En af hverju stafar rafsegul- mengun? Frá öllu rafmagni streymir rafsegulsvið sem hingað til hefur verið talið skaðlaust af meirihluta vísindasamfélagsins en sífellt fleiri hallast nú að því að rafsegulsvið í of miklum mæli geti verið skaðleg heilsu manna. „Í Sví- þjóð hefur til dæmis risið samfé- lag manna sem allir eiga það sam- eiginlegt að geta ekki lifað við rafsegulmengun inni í bæjunum. Þetta fólk býr í hjólhýsum og notar gas við kyndingu og eldamennsku,” segir Valdemar. „Oft er jarðsamband rafmagns í húsum lélegt og rafsegulgeislun getur komið í gegnum ýmsar leiðslur í veggjum sem ekki eru sjáanlegar berum augum eins og heita- eða kaldavatnsrör eða jafn- vel í gegnum steypustyrktargrind hússins. Það er því erfitt fyrir leikmann að leggja mat á það hvort um rafsegulmengun sé að ræða.“ Ef grunur leikur á því að raf- segulmengun sé ástæða vanlíðun- ar er ráð að kalla á fagmann sem getur jarðtengt rafmagnstæki hússins með fyrirhafnarlítilli aðgerð. -árá Rafmögnuð vanlíðan Ýmislegt bendir til að rafsegulmengun geti valdið fólki vanlíðan. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES Hraustar frumur með hollum mat Með því að að borða mat sem er ríkur af andoxunarefnum hjálpum við frumum líkamans að halda heilbrigði sínu lengur. Andoxunarefni hindra efnahvörf í frumum líkamans sem annars gefa frá sér skaðleg eiturefni. Andoxunarefni geta því styrkt ónæmiskerfið, komið í veg fyrir sjúkdóma, dregið úr hættu á æðakölkun og blóðtappa og jafnvel minnkað hrukkumyndun. Best er að fá andoxunarefnin beint úr fæðunni en rannsóknir hafa sýnt að rándýr fæðubótaefni skila ekki jafn góðum árangri og matur úr ríki náttúrunnar. Áhrifarík andoxunarefni eru t.d. C-vítamín, E- vítamín, beta karotín og selen. Við fáum heilmikið af C-vítamíni úr sítrónum, appelsínum, kíví, greipaldin og mangó en einnig úr berjum eins og sólberjum og jarð- arberjum. Apríkósur og plómur gefa okkur beta karotín en E-vítamín fáum við t.d. úr grófu mjöli, jurtaolíum, eggjum, sojabaunum og grænu grænmeti eins og spínati. Selen fáum við svo helst í tómötum, spergilkáli og lauki, hveitikími og parahnetum en einnig í kjötmeti eins og túnfiski, kjúklingi, laxi og lifur. - árá

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.