Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 76

Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 76
Leikkon- an Salma Hayek á von á sínu fyrsta barni með franska við- skiptajöfr- inum Fran- cois-Henri Pinault. Að auki eru þau skötu- hjú búin að setja upp hringana. Ekki hefur verið gefið upp hvenær barnið kemur í heiminn. Hayek, sem er fertug, hefur leikið í myndum á borð við Frida, After The Sunset og Desperado. Hún hefur undanfarið notið vel- gengni sem aðstoðarframleiðandi og aukaleikkona í sjónvarpsþætt- inum Ugly Betty, sem er sýndur í Ríkissjónvarpinu. Hayek ófrísk Leikarinn Atli Rafn Sigurð- arson má teljast heppinn að vera á lífi. Hann fékk borð í höfuðið, sem fauk ofan af Þjóðleikhúsinu úr um 30 metra hæð, og hlaut við það stóran skurð sem saumaður var saman með 30 sporum. „Já, það má segja það. Að ég hafi fengið leikhúsið í hausinn. Heavy,“ segir Atli Rafn Sigurðarson leik- ari. Sem teljast má heppinn að vera á lífi. Síðla að kvöldi þriðju- dags var Atli Rafn að ganga hjá Þjóðleikhúsinu og sveif þá borð alla leið ofan af þaki. Ígildi fimm hæða húss. Og fór beint í höfuð Atla. Leikarinn góðkunni heyrði bara smellinn. Þeir á slysavarðstofunni sögðu þetta sár dagsins þann dag- inn. Tuttugu sentimetra langur skurður. 30 spor í hausinn. Atli Rafn hafði verið að horfa á síðustu sýningu á verkinu Patrekur einn og hálfur. Var einn á ferð. Og eng- inn nálægur. Leikarinn rotaðist sem betur fer ekki. Atli Rafn vill ekki tjá sig nánar um málið. „Nei, enda á hann ekkert að vera að því,“ segir Stefán Jónsson sem leikstýrir Legi þar sem Atli Rafn er meðal leikara. „Hann á að vera að hvíla sig fyrir sýninguna í kvöld [gærkvöldi].“ Nú standa yfir endurbætur á Þjóðleikhúsinu og stillansar um- lykja húsið. Spýtan sem fór í höfuð Atla var engin smásmíði að sögn upplýsingastjóra Þjóðleikhússins, Páls Ásgeirs Ásgeirssonar. „Þetta er borð sem notað er til að slá upp vinnupöllum. Hann er heppinn að vera á lífi. Þetta borð kom fljúgandi úr um 30 metra hæð. En slík er harka Atla Rafns að hann ætlar að sýna í kvöld,“ segir Páll Ásgeir. Leikstjórinn Stefán dregur ekki úr þeim orðum Páls Ásgeirs nema síður sé. Segir þetta vera eins og atriði úr Omen. „Kom borð af himnum ofan og hitti þennan eina mann sem þarna var á rölti. Ég er búinn að sjá mynd af sárinu. Nei, sú mynd verður ekki birt, því þá myndi Femínistafélagið álykta. Því þetta sár er þess eðlis, blasir við eins og risavaxin skessusköp og fermingarbæklingur Smára- lindar bliknar í samanburði.“ Stefán segir Atla Rafn sannkall- að hörkutól. Hann ætli að leika í Legi í kvöld [gærkvöld]. En hann hafi ekki verið látinn einn um þá ákvörðun. „Þó þetta lendi nú alltaf hjá leikaranum á endanum. Við fengum sérfræðiálit og þeir lögðu ekki blátt bann við þessu þótt hann eigi náttúrlega að hvíla sig sem kostur er. Það er einu sinni þannig að íslenskt leikhúslíf þrífst vegna dugnaðar og eldmóðs listamann- anna.“ Í Legi eru dansatriði sem Atla Rafni verður hlíft við og hleypur sjálfur danshöfundurinn, Svein- björg Þórhallsdóttir, í skarðið og dansar í hópatriðum. Og Stefán segir svo vel vilja til að í sýning- unni sé Atli Rafn með hárkollu sem nú þjónar því aukahlutverki að hylja þetta hroðalega sár og vernda í senn. BMW 3 lína www.bmw.is Sheer Driving Pleasure B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 575 1200 - www.bl.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.