Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 78

Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 78
!óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á VENUS kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 5.30, 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA NOTES ON A SCANDAL** kl. 6 og 8 B.I. 12 ÁRA PAN´S LABYRINTH ** kl. 10.30 B.I. 16 ÁRA LITTLE MISS SUNSHINE ** kl. 10 B.I. 7 ÁRA THE PURSUIT OF HAPPYNESS ** kl. 5.30 og 8 ** SÍÐUSTU SÝNINGAR NORBIT kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 NORBIT SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 THE NUMBER 23 kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 5.20, 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND NIGHT AT THE MUSEUM kl. 3.30 og 5.40 NORBIT kl. 6, 8 og 10 SMOKIN ́ACES kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA GHOST RIDER kl. 6 B.I. 12 ÁRA Tónlistarkonan Fabúla er á leið- inni í tónleikaferðalag til Kanada í lok apríl. Hún mun spila á listahá- tíð í Winnipeg sem henni var boðið á auk þess sem hún ætlar að halda tónleika í Calgary og hugsanlega í Toronto. „Þetta verður mjög spennandi. Ég vona að ég geti farið með alla hljómsveitina með mér, ég veit það bara ekki enn þá,“ segir Fa- búla, sem heitir réttu nafni Mar- grét Kristín Sigurðardóttir. Mun hún dvelja í Kanada í tíu daga. Þetta verður fyrsta tónleikaferð Fabúlu erlendis en í janúar síðast- liðnum kom hún fram á Midem- tónlistarráðstefnunni í Cannes í Frakklandi. Þar átti hún í viðræð- um við evrópsk plötufyrirtæki og eru góðar líkur á að plötur hennar verði gefnar út í Evrópu á næst- unni. Til að hita upp fyrir Kanadatúr- inn heldur Fabúla tónleika á Rós- enberg í kvöld þar sem hún mun spila ný lög í bland við eldri. Með henni spila Jökull Jörgensson, Birkir Rafn Gíslason, Björgvin Ploder og Ingunn Hallgrímsdóttir. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30 og er miðaverð 500 krónur. Fabúla til Kanada Hljómsveitin Spaðar heldur sitt árlega ball á Nasa á föstudags- kvöld. Sveitin sendi frá sér plöt- una Stundaglasaglaum fyrir síð- ustu jól og hefur hún hlotið góðar viðtökur. Verða bæði spiluð lög af henni og gamlir og góðir slagarar. „Við erum í geysilega góðu formi, eða alla vega í góðu skapi,“ segir rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson sem spilar á gítar og syngur. „Undanfarin ár hefur verið fullt af fólki á þessum böll- um og allir í miklu stuði.“ Hljómsveitin Spaðar hóf göngu sína árið 1983 og hefur verið starf- andi allar götur síðan með hléum. Á sumrin hefur sveitin stundum haldið ball í Flatey og vonast Guð- mundur Andri til að sú verði raun- in næsta sumar. Auk þess spilar sveitin af og til í afmælum og brúð- kaupum fyrir vini og vandamenn. Tónlist Spaða hefur ævinlega verið blanda af frumsömdum dæg- urlögum í gömlum íslenskum stíl, staðfærðum lögum frá Grikklandi, sígaunaljóðum Evrópu og bernskri bítlastemningu. Auk Guðmundar Andra eru meðlimir Spaða: Dr. Gunnar Helgi Kristinsson harm- ónika, Aðalgeir Arason, söngur og mandólín, Guðmundur Pálsson fiðla, Magnús Haraldsson, söngur og gítar, Guðmundur Ingólfsson, kontrabassi og söngur, og Sigurður G. Valgeirsson, trommur og ein- staka hróp. Nasa verður opnað kl. 22.00 og um 23.00 stíga Spaðar á svið. Miða- verð er 1.500 krónur og fer forsala fram í 12 Tónum. Alltaf í góðu skapi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.