Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 81
Atvinnukylfingurinn Birgir
Leifur Hafþórsson hóf í nótt leik á
TCL Classic-mótinu sem fram fer
í Hanian í Kína en mótið er liður í
Evrópumótaröðinni eins furðu-
lega og það kann nú að hljóma.
Fréttablaðið heyrði hljóðið í Birgi
Leifi í gær áður en hann lagðist til
rekkju en hann lauk fyrsta hring í
nótt.
„Það er fínt að vera hérna. Frá-
bært veður, hótel og góður golf-
völlur,“ sagði Birgir léttur en hann
var enn að venjast tímamismunin-
um í gær. „Þegar maður fer að
sofa er tilfinningin líkt og maður
ætlaði að sér lúr. Svo vaknar
maður hress um miðjar nætur.“
Birgir Leifur hefur ekki sett sér
nein sérstök markmið fyrir mótið
heldur ætlar hann að nálgast það
eins og önnur mót sem hann tekur
þátt í.
„Leikformið er ekki upp á sitt
besta en það getur líka verið ágætt
því þá mætir maður slakur og
ferskur. Ég hef aðeins verið að
burðast með meiðsli í mjöðm og
því hef ég ekki alveg getað æft
eins og ég vildi,“ sagði Birgir Leif-
ur. „Fyrsta daginn reyni ég að
spila mig í gírinn og passa upp á
að spila mig ekki út úr mótinu.“
Má ekki spila mig út úr
mótinu á fyrsta degi
Aganefnd UEFA úr-
skurðaði í máli Valencia og Inter
í gær en upp úr sauð eftir leik lið-
anna í Meistaradeildinni á dögun-
um þar sem leikmenn hreinlega
slógust.
Sá sem gekk hvað harðast
fram var David Navarro, leik-
maður Valencia, en hann kýldi Ni-
colas Burdisso í andlitið og nef-
braut hann. Hann var dæmdur í
sjö mánaða keppnisbann. UEFA
hefur mælst til við FIFA að það
samþykki bannið þannig að hann
geti ekki leikið landsleiki heldur.
Félagi hans Carlos Mar-
chena fékk fjögurra leikja bann
en Inter-mennirnir Burdisso og
Maicon voru báðir dæmdir í sex
leikja bann. Ivan Cordoba fékk
þriggja leikja bann og Julio Cruz
tveggja.
Bæði lið voru síðan sektuð um
rúmlega þrjár milljónir króna
vegna hegðunar leikmannanna.
Navarro í sjö
mánaða bann
Guðjón Baldvinsson er
á leið frá Stjörnunni. Þetta stað-
festi hann í samtali við Frétta-
blaðið í gær. „Það lítur út fyrir
að ég verði seldur frá Stjörnunni.
Mér skilst að félagið sé í viðræð-
um við Fylki og Víking,“ sagði
Guðjón.
Hann var til reynslu hjá
norska úrvalsdeildarfélaginu Ála-
sundi fyrr í mánuðinum. Félag-
ið ákvað að fá hann ekki til sín nú
en að forráðamenn þess myndu
fylgjast með Guðjóni í sumar.
Guðjón til Fylk-
is eða Víkings
Argentína komst í gær
í efsta sæti Styrkleikalista Al-
þjóðaknattspyrnusambandsins í
fyrsta sinn. Listinn hefur verið
settur saman frá 1993 og þessi
mikla knattspyrnuþjóð hafði
aldrei áður verið í 1. sætinu
Argentína fór upp fyrir heims-
meistara Ítala sem voru aðeins í
einn mánuð í heiðurssæti listans
en þeir fóru upp fyrir Brasilíu-
menn í síðasta mánuði. Brassarn-
ir höfðu þá verið í efsta sætinu í
55 mánuði í röð.
Íslenska landsliðið hækkaði
sig um 9 sæti, upp í það 86., þrátt
fyrir að spila engan leik.
Argentína upp í
efsta sætið
25%
AFSLÁTTUR
Foot-Joy Contour
Góður skór fyrir þá sem eru með breiðan
eða viðkvæman fót. Mjúkur og þægilegur.
Verð: 9.675.-
Verð áður: 12.900.-
45%
AFSLÁTTUR
Top-flite XL Distance
Top flite XL eru ódýrar en vandaðar
golfkúlur sem standa fyrir sínu
Verð: 1.3863.-
Verð áður: 2.520.-
Verið velkomin
og skoðið mörg
önnur frábær
afmælistilboð
Opnunartími:
Mán - fös.....................
Laugardaga..................
Sunnudaga..................
10 - 18
10 - 16
12 - 16
Bæjarlind 1-3 • 201 Kópavogur • Sími: 577 4040 • www.holeinone.is
FRÁ 14. TIL 18. MARS
VIÐ ERUM 5 ÁRA
5-55% AFSLÁTTUR Í 5 DAGA
AFMÆLISVEISLU!
15%
AFSLÁTTUR
Callaway X-20 Sett
Callaway járnasett með stálsköftum
#4-Pw, þetta er ein nýjasta afurðin í
flórunni frá Callaway.
Verð: 58.310.-
Verð áður: 68.600.-
55%
AFSLÁTTUR
Golfkerra úr stáli
Einföld, létt og sterkbyggð stálkerra
á sannkölluðu afmælisverði
Verð: 1.630.-
Verð áður: 3.600.-
35%
AFSLÁTTUR
Ping G5 hybrid
Ping G5 hálfvitar eru til í 16,19,22 og
25 gráðum karla. Kvenna eru þeir til 26
og 30 gráður.
Verð: 14.235.-
Verð áður: 21.900.-
5 spennandi tilboð