Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 82

Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 82
 Fjórir áhorfendur fá að reyna við borgarskotið í hverj- um leik í úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla sem hefst í kvöld. Sá sem hittir úr skotinu sínu vinnur sér inn ferð með Ice- land Express til einhverrar af þeim borgum sem félagið flýgur til. Fjórir reyna við borgarskotið Fjórir af þjálfurum liðanna í átta liða úrslitum Ice- land Express-deildar karla hafa gert lið að Íslandsmeisturum. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, hefur gert Keflavík fjórum sinnum að meist- urum og Njarðvík vann titil- inn þrisvar sinnum undir stjórn bróður hans Vals, sem nú þjálfar Skallagrím. Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, hefur tvisv- ar gert Njarðvík að Íslandsmeist- urum og þá vann Einar Árni Jó- hannsson titilinn með Njarðvík í fyrra. Geof Kotila er á sínu fyrsta ári með Snæfell en hann hefur gert lið þrisvar sinnum að Danmerk- urmeisturum. Fimm hafa unnið titilinn Suðurnesjarisarnir Njarðvík og Keflavík hafa unnið 16 af síðustu 16 Íslandsmeistara- titlum í körfuboltanum og alla titl- ana síðan árið 2000. Bæði lið hafa unnið 43 fleiri leiki í úrslitakeppni en önnur lið og geta unnið titilinn í tímamótasigurleik gangi allt upp í úrslitakeppni Iceland Express- deild karla sem hefst í kvöld. Mikil spenna er fyrir úrslita- keppnina enda hefur deildin verið jöfn og skemmtileg í vetur. Njarðvík og Keflavík eru átta sigrum frá því að vinna 100 leiki í úrslitakeppni og það eru einmitt átta sigurleikir sem standa á milli þeirra og Íslandsmeistaratitilsins 2007. Það verður þó að segjast að á meðan allt gengur upp hjá Njarðvíkingum þá fellur fátt fyrir erkifjendur þeirra úr Keflavík. Njarðvíkingar eru sigurstrang- legasta liðið í úrslitakeppni karla í ár. Liðið var aðeins annað liðið í sögunni sem vinnur 20 af 22 leikj- um undir núverandi fyrirkomu- lagi og varð fyrsta liðið til að vinna 15 síðustu leiki sína fyrir úrslitakeppni frá því að deildin tók á sig þessa mynd árið 1996. Njarðvík þarf að vinna alla heimaleiki sína til þess að verja titilinn og það ætti að hrella and- stæðingana að liðið hefur unnið síðustu 24 leiki sína í Ljónagryfj- unni. Hamar/Selfoss ætti ekki að verða mikil fyrirstaða fyrir Njarð- víkinga í 8 liða úrslitunum enda Njarðvíkingar ekki búnir að gleyma þegar þeir töpuðu 0-2 fyrir ÍR í 8 liða úrslitunum fyrir tveimur árum, slys sem þeir láta ekki endurtaka sig. KR-ingar urðu í 2. sæti í deild- inni en duttu samt ekkert í lukku- pottinn með mótherja í fyrstu um- ferð því bikarmeistarar ÍR-inga eru á mikill siglingu. ÍR-ingar þurfa hins vegar að brjótast í gegnum tvo sögulega múra ætli þeir sér í undanúrslitin, þeir þurfa að vinna sinn fyrsta sigur í DHL- höllinni og þá hefur liðið í 7. sæti aldrei slegið út liðið í 2. sæti. Þetta er einvígi sem ætti að fara í odda- leik. Keflvíkingar eru í fyrsta sinn í mörg ár ekki meðal þeirra liða sem menn spá Íslandsmeistara- titlinum. Keflavíkurliðið hefur ekki verið neðar í deildinni í sjö ár og er í fyrsta sinn frá árinu 2000 ekki með heimavallarrétt í fyrstu umferð. Það eru slæmar fréttir fyrir Keflvíkinga því það er einkum á útivelli sem vandamál liðsins hafa kristallast í vetur. Snæfell leitar enn eftir hefndum fyrir tvö töp fyrir Keflavík í lokaúrslitum (2004 og 2005) og tækifærið til þess hefur aldrei verið eins gott og nú. Keflavík hefur ekki unnið á Vesturlandi síðustu tvö tímabil og þeir þurfa sigur í Hólminum til að komast áfram. Einvígi Skallagríms og Grinda- víkur er eitt það mest spennandi, Grindavík er á mikilli uppleið og Borgnesingar hafa eitthvað verið að gefa eftir í síðustu leikjum. Fé- lögin mætast nú í fjórða sinn en einvígi þeirra hafa aldrei farið í oddaleik. Það er líklegt að það breytist nú. Keflavík og Njarðvík hafa bæði unnið 92 leiki í sögu úrslitakeppni karla í körfubolta. Það þarf að vinna átta leiki til þess að vinna titilinn og bæði lið geta því orðið meistarar í ár í sínum hundraðasta sigurleik.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.