Fréttablaðið - 15.03.2007, Síða 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég er í alveg rosalega fínum hópi.
Ég held að ég geti verið stoltur yfir
að ná inn á þennan lista,“ segir
Einar Örn Benediktsson, fyrrver-
andi söngvari Sykurmolanna, sem
hefur verði kjörinn fimmti versti
söngvari allra tíma af breska tón-
listartímaritinu Q. Á meðal fleiri
söngvara á listanum eru Yoko Ono,
Fred Durst úr Limp Bizkit, Mariah
Carey, Celine Dion, Bobby Gilles-
pie og Ozzy Osbourne, sem situr í
toppsætinu.
„Ég held að íslenska þjóðin geti
verið stolt af því að eiga þvílíkan
stórsöngvara sem ég er. Þetta gefur
tilefni til að það verði gefinn frí-
dagur það sem eftir verður, þetta
er alveg stórkostlegt. Þrátt fyrir
allt og allt þá er enn þá munað eftir
manni úti í hinum stóra heimi.
Margir menn hafa reynt mjög lengi
að ná athygli en hér hef ég ekkert
annað til saka unnið en að gefa út
plötur. Ég hef ekki einu sinni verið
í raunveruleikaþætti,“ segir Einar
Örn.
Í greininni segir m.a. að Björk og
félagar í Sykurmolunum hafi búið
til undurfagurt indípopp á níunda
áratugnum en Einar Örn hafi eyði-
lagt það allt saman með leiðinda-
söng sínum. Sömu ummæli eru í
grein annars staðar í tímaritinu þar
sem Björk er valin 35. besta söng-
kona allra tíma. Þar segir að hún
hafi sungið frábærlega með Syk-
urmolunum á sama tíma og Einar
Örn öskraði sífellt inn í lögin á sinn
pirrandi hátt. „Þetta er orðin svo
gömul tugga og þreytt. Ég held að
maður hafi eiginlega ekkert um
það að segja hvort maður hafi eyði-
legt fyrir henni eða ekki. Í grein
um Sykurmolatónleikana í Mojo
kemur í ljós að Björk væri ekkert
án mín. Ég og Björk erum búin að
kljá þetta út og höfum komist að
því að við stígum ekki á tær hvort
annars eða skyggjum hvort á
annað,“ segir Einar Örn og bætir
við: „Fjórtán árum eftir að hljóm-
sveitin hætti, að þeir skuli taka
fram að ég hafi verið að eyðileggja
fyrir Björk er svo þreytt og leiðin-
legt að það ber vott um þeirra eigin
hugmyndaleysi.“
Á listanum yfir bestu söngvar-
ana kemst Jónsi úr Sigur Rós jafn-
framt í 100. sætið. Þar segir að rödd
hans sé einstök og að söngur hans
virki sem annað hljóðfæri. Einar
Örn er sjálfur á því að sín rödd sé
einstök og enginn annar geti kom-
ist með tærnar þar sem hann hafi
hælana. „Það sem ég geri, geri ég
langbest af öllum. Það getur enginn
annar sungið eins ég og það gerir
mig einstakan og þess vegna á ég
heima á öllum þessum listum.“
Nýstofnað hagsmunafélag íslenskra
Daða er ein nýjasta viðbótin í sí-
breytilega Myspace-flóruna. Á vin-
alista félagsins má nú þegar finna
tæplega þrjátíu Daða, og frá því að
síðan fór í loftið í síðustu viku hefur
hún verið heimsótt yfir 3.000 sinn-
um, að sögn forsvarsmannsins Daða
Rúnars Péturssonar. „Við sam-
þykkjum bara Daða sem vini á síð-
unni, fyrir utan Arnþór Jón Þor-
varðsson, sem er guðfaðir samtak-
anna,“ sagði Daði Rúnar.
Markmið félagsins eru misalvar-
leg, en á meðal þeirra er að stuðla
að betri kjörum allra Daða. „Aðal-
baráttumálið okkar er samt að við
heitum ekki Davíð. Við höfum allir
lent í þeim misskilningi, og ég per-
sónulega bara síðast núna á sunnu-
daginn,“ sagði Daði Rúnar, sem
segir Döðum finnast á sér brotið.
„Það eru líka miklar umræður um
þetta í gangi á síðunni núna,“ benti
hann á.
Samkvæmt tölum frá Hagstofu
Íslands, sem miðast við 31. desem-
ber 2004, bera 267 drengir á Íslandi
nafnið Daði sem eiginnafn. Sé miðað
við þær tölur hefur félagið á fyrstu
starfsdögum sínum náð um tíu pró-
sentum allra Daða á sitt band. Daði
Rúnar var að vonum ánægður með
árangurinn, en setur markið enn
hærra. „Myspace er frekar þöngur
hópur, svo við ætlum að stofna aðra
heimasíðu. Þá ætlum við að hringja
í alla Daða landsins og fá þá til að
skrá sig,“ sagði hann.
Daðar Íslands stofna hagsmunafélag
„Það er Ab-mjólk og All Bran,
þegar ég man það. Ef ég fæ mér
morgunverð þá er það þetta.“
„Þessa kæru lagði ég fram í dag
[í gær] eftir að hafa gefið lög-
reglunni nákvæma skýrslu um
umfjallanir Mannlífs og Ísafold-
ar um áfengi. Ég kæri forsvars-
menn ÁTVR og þar með íslenska
ríkið fyrir áfengisauglýsingar,“
segir Reynir Traustason, ritstjóri
Mannlífs.
Í kæru sinni vísar Reynir til
þess að ÁTVR, sem einokunar-
aðili á markaði, auglýsi sína vöru
grimmt meðal annars í bækling-
um sem þeir gefi út og á netinu.
Reynir segir rannsóknarlögregl-
una hafa tekið vel í kæruna og sé
nú að skoða útgefið efni ríkisins í
þessum efnum en þar má finna
nöfn ábyrgðarmanna sem vænt-
anlega svara þá til saka. Sjálfur
var Reynir tekinn til yfirheyrslu
vegna þess sem hann kallar
meintar áfengisauglýsingar í
tímaritum sem hann hefur stýrt.
En er það ekki að fara á svig
við lögin að tala um seldar um-
fjallanir um áfengi sem efni en
ekki auglýsingar?
„Það má örugglega túlka það
þannig. Umfjöllun okkar um kok-
teila og slíkt. En lögin eru þannig
að öll tímarit mega birta áfengis-
auglýsingar en þá að því tilskildu
að þær séu á ensku. Þessi tímarit
eru seld í Eymundsson. Sem er
mismunun á forsendum tungu-
málsins. Það er verið að mismuna
Íslendingum og útlendingum.
Þetta er gölluð löggjöf og engin
leið að bera virðingu fyrir slíku.
Allir leita leiða til að auglýsa
áfengi. Í hvert skipti klagar Lýð-
heilsustofnun okkur.“
Reynir segir gott og vel. Það
skuli þá þannig vera að stærsti
auglýsandi á markaði, ríkið, sé
rannsakað einnig. Ekki dugi að
velja eitthvert eitt fórnarlamb
úr. „Ég skal koma í yfirheyrslur
vegna meintra áfengisauglýsinga
en í hvert skipti sem ég verð kall-
aður til yfirheyrslu mun ég kæra
einhvern einn í leiðinni. Næst
verður það hugsanlega, uhhh …
Vanity Fair.“
Reynir kærir ríkið fyrir áfengisauglýsingar
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is