Fréttablaðið - 24.03.2007, Qupperneq 28
Kjarvalsstaðir opnaðir í Reykjavík
„Þau verk sem ég fæst við þá og
þá stundina eiga hug minn allan
og réttast að einblína á það sem
maður er að gera í augnablikinu.
Ég hef aldrei gengið með neitt í
maganum um mína framtíð.“
Hinrik Einarsson
frá Hömrum, Þverárhlíð,
sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi
miðvikudaginn 21. mars, verður jarðsunginn frá
Borgarneskirkju þriðjudaginn 27. mars kl. 14.00.
Aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
Hólmfríðar Sigurðardóttur
(Lillu Lúthers frá Fosshóli).
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Hlíð og Lyflækningadeildar F.S.A. fyrir góða umönnun.
Svava Sigurðardóttir Hilmar Sæmundsson
Sif Sigurðardóttir Rúnar Jóhannesson
Sigurður Lúther Gestsson Valgerður Kr. Guðbjörnsdóttir
Guðbjörg Birgisdóttir Guðmundur G. Norðdahl
og ömmubörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
bróðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Baldvinsson
frá Hofsósi, Blesugróf 40, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hofsóskirkju í dag,
laugardaginn 24. mars, kl 14:00.
Margrét Þorgrímsdóttir
Trausti Baldvins Gunnarsson Jóhanna Clausen
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir Steinn Márus Guðmundsson
Gunnar Heiðar Gunnarsson Sólveig Ingunn Skúladóttir
Friðrikka Baldvinsdóttir Heimir Jóhannsson
barnabörn og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Einar Pálmi Ottesen
Keilugranda 4, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, mánudag-
inn 19. mars. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju,
mánudaginn 26. mars, kl. 13:30.
Guðrún Ragna Einarsdóttir Þorsteinn V. Snædal
Sveinbjörn Baldur Einarsson
Vilhjálmur Pálmi, Ásta Lilja, Aron Víðir, Steinar Smári
og aðrir ástvinir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, sonar, föður okkar, fóstur-
föður, tengdaföður, afa og tengdasonar,
Jóns Magnúsar Steingrímssonar
pípulagningameistara, Skagaseli 2,
Reykjavík.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar LSH fyrir frábæra
umönnun og þeirra sem vöktu yfir honum dag og nótt
síðustu ævidaga hans.
Guðrún Hugborg Marinósdóttir
Margrét Hjartardóttir
börn, afabörn, tengdaforeldrar
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Einar Guðmundsson
verkfræðingur, Hrauntungu 37, Kópavogi,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt 16. mars, verður jarð-
sunginn frá Digraneskirkju mánudaginn 26. mars kl. 13.
Sólveig Kristinsdóttir
Guðmundur Konráð Einarsson
Helga Einarsdóttir
Kristín Andrea Einarsdóttir Jóhann Ingibergsson
Berghildur Ýr Einarsdóttir Haukur Einarsson
Ásdís Erla, Sigrún Björk, Einar Aron og Hilmir Nói.
Innilega þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Þorkelssonar
Kjarrhólma 22, Kópavogi.
Kristrún Jóhanna Ásgeirsdóttir
Guðný Ásgerður Sigurðardóttir
Þorkell J. Sigurðsson Gróa Halldórsdóttir
Hrönn Sigurðardóttir Ægir Björgvinsson
Brynja Sigurðardóttir
Gunnar Sigurðsson Guðrún Margrét Einarsdóttir
Hörður Sigurðsson Ingibjörg Jóhannesdóttir
Sigurður Þór Sigurðsson Sigrún Magnúsdóttir
Hallfríður S. Sigurðardóttir Ómar Elíasson
Elías Sigurðsson Emilía Bergljót Ólafsdóttir
Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir Finnur Einarsson
Ásgeir Sigurðsson Svala Steina Ásbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og frænka,
Kristín Baldursdóttir
(Diddín), Melasíðu 4e, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 11. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug.
Guðmundur Svavarsson Líney Arnardóttir
Elvar Guðmundsson
Laufey Kristjánsdóttir
Í gær voru liðin sjötíu ár frá því Sund-
höllin í Reykjavík var vígð og opnuð al-
menningi. Sundhöllin hafði þá verið í
byggingu í níu ár. Guðjón Samúelsson
arkitekt á heiðurinn af byggingunni,
eins og svo mörgum öðrum í borginni.
Hann teiknaði meðal annars Þjóðleik-
húsið, aðalbyggingu Háskóla Íslands,
Hallgrímskirkju og Hótel Borg.
Arkitektúrinn er hluti af aðdráttar-
afli Sundhallarinnar enn þann dag í dag,
en á síðasta ári sóttu 140.000 manns
laugina. „Hún er sérstakt mannvirki,“
sagði Katrín Lovísa Irvin, rekstrar-
stjóri Sundhallarinnar, þegar Frétta-
blaðið náði tali af henni í gær. „Hing-
að koma margir nemar sem vilja fá að
teikna. Þau voru hérna síðast í gær frá
Listaháskólanum,“ sagði hún. Katrín
sagði Sundhöllina jafnframt vera vin-
sæla fyrir ljósmyndatökur og auglýs-
ingatökur. „Svo hafa verið haldnir tón-
leikar hérna, það er svo góður hljóm-
burður í laugarsalnum,“ bætti hún við.
Katrín hefur starfað í Sundhöll-
inni hátt í þrjátíu ár, og gegnt starfi
rekstrarstjóra í tvö ár. „Það má eigin-
lega segja að ég sé alin upp hérna. Ég
hef verið hér alveg frá blautu barns-
beini: í skólasundi, og svo vann móðir
mín hérna. Ég var hér öllum stundum,“
sagði Katrín, sem þykir því orðið veru-
lega vænt um húsið. Hún er þó ekki ein
um það, því Sundhöllin státar af trygg-
um fastakúnnahópi. „Það er morgun-
hópur, hádegishópur og svo hópur sem
kemur seinni partinn,“ sagði Katrín.
Hjá mörgum eldri borgurum er heim-
sókn í Sundhöllina ómissandi liður í
deginum. „Það var einmitt einn gestur
hérna hjá okkur í morgun, sem sagð-
ist hafa komið fyrsta daginn sem Sund-
höllin var opin og kemur enn reglu-
lega,“ sagði hún. „Okkur þótti gaman
að því.“
Í tilefni af afmælinu fengu sundlaug-
argestir frítt ofan í laugina, og bauðst
jafnframt að gæða sér á afmælisköku
og kaffi.