Fréttablaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 1
hús&heimiliLAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007
SÝNING
Húsgagnaarkitekt ÍslandsHÖNNUN
Leikmyndin í LegiGARÐURINN
Garðhola fyrir grænmetið
Hjólh
ýsa-
sýnin
g um
helgin
a
2007
www.xf.is
AFNEMUM LEIGUFORRÉTTINDI KVÓTA-
EIGENDA. FÆRUM VEIÐIRÉTTINN AFTUR
TIL BYGGÐANNA! framsokn.is
Árangur áfram
- ekkert stopp
Rannsóknarnefnd sjóslysa er
að skoða hvort reglur um línu-
ívilnun, sem gera ráð fyrir því að
því að bátur komi til hafnar innan
24 klukkustunda á sama stað og
haldið var til veiða, hafi spilað inn
í ákvarðanatöku manna sem leiddu
til sjóslyss úti fyrir Ísafirði 14.
mars síðastliðinn. Þetta staðfesti
Jón Ingólfsson, forstöðumaður
rannsóknarnefndar sjóslysa við
Fréttablaðið. „Það eru ýmsir sam-
verkandi þættir sem valda sjóslys-
um. Í þessu tilfelli var nokkuð
styttra að fara með bátinn í höfn í
Súgandafirði en til Ísafjarðar.
Samkvæmt reglugerð um línu-
ívilnun þarf að landa [aflanum] á
sama stað og lagt er upp í ferðina
innan sólarhrings. Mér finnst lík-
legt að þess verði getið í skýrslu
okkar vegna slyssins að þetta geti
verið til þess að fallið að skapa
óöryggi þegar taka þarf ákvarðan-
ir á skömmum tíma, og skipstjórar
eru alltaf að gera það,“ sagði
Ingólfur.
Tveir sjómenn, Eiríkur Þórðar-
son og Unnar Rafn Jóhannsson,
létust er bátnum Björg Hauks ÍS
127 hvolfdi úti fyrir Stigahlíð í
mynni Ísafjarðardjúps.
Arthur Bogason, formaður
Landssambands smábátaeigenda,
segir ítrekað hafa verið gerðar
athugasemdir við reglugerðina.
„Við höfum frá upphafi bent á
þetta sem stórkostlegan galla á
fyrirkomulaginu. Það liggur fyrir
að þessi staða getur orðið til þess
að skapa óöryggi, sem síðan getur
leitt til stórkostlegra slysa. Þessu
þarf að breyta, það gefur auga
leið.“
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra telur vel koma til
greina að breyta lögunum. „Að
sjálfsögðu viljum við ekki að fyrir-
komulag í fiskveiðistjórnunarlög-
unum verði til þess að draga úr
öryggi sjómanna. Sem sjávarútvegs-
ráðherra myndi ég tvímælalaust
beita mér fyrir þess háttar breyt-
ingum, ef þörf er talin á þeim.“
Umdeildar reglur hugsanlega
þáttur í banaslysi fyrir vestan
Rannsóknarnefnd sjóslysa rannsakar hvort krafa um löndun í sömu höfn og lagt var upp frá hafi verið þátt-
ur í banaslysi við mynni Ísafjarðardjúps 14. mars. Smábátaeigendur hafa margsinnis kvartað yfir reglunum.
Kostnaður við rekstur sendiráða,
fastanefnda og sendiræðisskrifstofa hefur aukist
um 83 prósent á núvirði frá því að núverandi
stjórnarflokkar tóku við völdum árið 1995. Það ár
nam kostnaðurinn 970 milljónum króna á núvirði
en er áætlaður 1.773 milljónir á fjárlögum ársins
2007.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í fjórðu
kosningagrein Fréttablaðsins af átta. Þar eru
áherslur stjórnmálaflokkanna í utanríkismálum
reifaðar og kastljósi varpað á stærstu málin. Í
komandi kosningum verða Evrópumál og umfang
utanríkisþjónustunnar ofarlega á baugi.
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði,
segir að pólitískar stöðuveitingar í utanríkisþjón-
ustunni hafi dregið úr trúverðugleika hennar meðal
kjósenda og að þeim verði að linna. „Það hafa
ítrekað verið ráðnir inn sendiherrar sem hafa verið
pólitískt skipaðir og það hefur orðið til þess að fólk
hefur brenglaða mynd af þjónustunni.“
Hörður Arnarson, forstjóri Marels, segir
starfsemi íslenskra stjórnvalda á erlendum
vettvangi skipta sköpum og að starfsmenn sendi-
ráðanna vinni mikilvægt starf. „Sérstaklega hefur
þetta skipt miklu máli þegar fyrirtæki eru að koma
inn á nýja markaði.“
Fjölskylda stýrir
landsfundum
„Ég stökk bara inn í þetta,“
segir Sólveig Arnarsdóttir, leik-
kona og frambjóðandi, sem er
fjölmiðlafulltrúi á landsfundi
Samfylkingarinnar.
Móðir Sólveigar, Þórhildur
Þorleifsdóttir leikstjóri, er sömu-
leiðis í stóru hlutverki á fundin-
um. Þórhildur er í raun að leik-
stýra fundinum. Svo vill til að
sonur Þórhildar, Þorleifur Örn
Arnarsson leikstjóri, er þessa
sömu helgi að „leikstýra“ lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins.
„Það þarf gott fólk til að halda
utan um svona samkomu svo það
er ekki skrítið að í það starf velj-
ist einhver sem hefur að atvinnu
að stýra og púsla saman stórum
sýningum,“ segir Sólveig.
„Það skiptir máli hvar hlutirn-
ir og ræðumenn eru. Þetta er alls
ekki svo ólíkt leikhúsinu þar sem
sviðsmunir og leikarar þurfa að
vera á réttum stað,“ segir Þor-
leifur.