Fréttablaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 38
Ég vil þakka lesendum Fréttablaðsins fyrir frábærar móttökur á þessum pistlaskrifum mínum,
en ekki munu verða fleiri pistlar frá mér að sinni.
Sitkalús er af víðilúsarætt og er önnur af tveimur
tegundum hér á landi sem lifir á greni. Hin lúsin er
grenisprotalús. Talið er að hún hafi borist hingað til
lands í kringum 1960 frá Evrópu.
Sitkalúsin er græn með rauð augu og er 1,5-1,8
mm að lengd. Hér á landi hafa eingöngu fundist
kvendýr þannig að um svo kallaða meyfæðingu er
að ræða. Sitkalúsin fæðir lifandi afkvæmi og eign-
ast hver lús um 15 afkvæmi á ævinni.
Sitkalúsin veldur miklum skaða í grenitrjám, sér-
staklega á sitkagreni og blágreni, en þessar amer-
ísku grenitegundir hafa ekki náð að aðlagast lúsinni
og verða því ansi hart úti þegar lúsafaraldur geisar.
Eini möguleikinn til að drepa lúsina er að úða skor-
dýralyfi á trén að hausti eða eftir árferði í febrúar
og mars. Skordýralyf sem notað er, og hefur reynst
vel, myndar vaxkennda filmu á sprotana og fælir
lúsina frá.
Til þess að lúsin drepist af sjálfsdáðum þarf að
gera verulegt frost, allt að 15 stigum, um tíma eða
frost og vindkælingu en þá frostspringa egg lús-
arinnar. Hún leggst ekki í dvala yfir veturinn og
skemmir trén meðan frostlaust er.
Þegar fólk þarf að fá til sín meindýraeyði eða garð-
úðara þá skal alltaf óska eftir að fá að sjá starfsskír-
teini útgefið af Umhverfisstofnun og eiturefnaleyfi
gefið út af lögreglustjóra/sýslumanni og það mikil-
vægasta er að viðkomandi hafi starfsleyfi frá við-
komandi sveitarfélagi. Ein og sér hafa starfsréttindi
meindýraeyða og garðúðara ekkert gildi. Athugaðu
hvort öll skírteini séu í gildi. Félagar í Félagi mein-
dýraeyða eru með félagsskírteini á sér, í ár eru skír-
teinin gul. Fáðu alltaf nótu vegna viðskiptanna.
Réttindi meindýraeyða og garðúðara frá erlend-
um ríkjum og félagasamtökum gilda ekki á Íslandi.
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að að senda
fyrirspurn á netfangið: gudmunduroli@simnet.is
Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
2004, Guðmundur Óli Scheving.
Meindýr í húsum og gróðri 1944, Geir Gígja.
Bannað!
Er orð sem við
þekkjum ekki.
Upptökur úr þættinum
er að finna á FM957.is
Zúúber – morgunþáttur
alla virka morgna frá
kl. 7.00–10.00.