Fréttablaðið - 14.04.2007, Page 2
Lögmenn stóru olíufélaganna þriggja; Olís,
Kers, áður Olíufélagsins, og Skeljungs, hafa farið
fram á það að Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari
víki úr dómnum í máli félaganna gegn íslenska
ríkinu og Samkeppniseftirlitinu. Þetta fóru þeir fram
á þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykja-
víkur fyrr í vikunni.
Sigrún tók dómarasæti í málinu eftir að Skúli
Magnússon dómari þurfti frá að hverfa en hann
hefur ráðið sig til starfa hjá EFTA-dómstólnum í
Lúxemborg frá og með morgundeginum. Sigrún var
meðal dómara í málum sem til hefur komið vegna
óumdeilds samráðs olíufélaganna á tímabilinu 1993
til og með meirihluta ársins 2001.
Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður og stjórnarfor-
maður Olís, lagði fram bókun um að Sigrún skyldi
víkja úr dómnum er málið var tekið fyrir. Kristinn
Hallgrímsson, lögmaður Kers, og Hörður F. Harðar-
son, lögmaður Skeljungs, samþykktu bókunina fyrir
sitt leyti.
Telja þeir Sigrúnu hafa með orðum sínum í dómum
héraðsdóms í máli Reykjavíkurborgar, og fyrirtækja
hennar, gegn olíufélögunum og máli Sigurðar Hreins-
sonar, smiðs frá Húsavík, gegn Keri, gert sig
vanhæfa til þess að dæma í fyrrnefndu máli með
hlutlausum hætti. Málflutningur vegna þessarar
kröfu fer fram 23. apríl.
Olíufélögin voru dæmd til þess að greiða Reykja-
víkurborg og fyrirtækjum hennar 78 milljónir króna
í bætur vegna verðsamráðs fyrir útboð.
Þá var Ker dæmt til þess að greiða Sigurði
Hreinssyni fimmtán þúsund krónur í skaðabætur
vegna samráðsins og áhrifa sem það hafði á verðlag
á fyrrnefndu tímabili.
Mál olíufélaganna byggir öðru fremur á því að stór
hluti þeirra brota sem sektað var vegna, að lokum
um 1,5 milljarðar, hafi verið fyrndur þegar sektirnar
komu til; auk þess telja félögin ýmsa annmarka hafa
verið á meðferð málsins sem ekki standist lög. Þessu
eru samkeppnisyfirvöld og íslenska ríkið algjörlega
ósammála. Heimir Örn Herbertsson er lögmaður
ríkisins og Samkeppniseftirlitsins.
Lögmennirnir höfðu ekki, áður en bókunin var lögð
fram, farið fram á að Skúli Magnússon viki sæti en
hann var meðal dómara í þeim málum sem Sigrún
dæmdi er tengdust samráði olíufélaganna.
Vilja að Sigrún víki
sæti í dómnum
Lögmenn stóru olíufélaganna þriggja hafa farið fram á að Sigrún Guðmunds-
dóttir héraðsdómari víki sæti í máli félaganna gegn ríkinu og Samkeppniseftir-
litinu. Þess er krafist að ákvörðun um sekt vegna samráðs verði dæmd ógild.
Lést í sjóslysi
við Vopnafjörð
Trillusjómaðurinn sem lést af
slysförum aðfaranótt fimmtu-
dags hét Guðmundur Ragnars-
son, til heimilis að Hafnar-
byggð 23 á Vopnafirði.
Guðmundur var 65 ára að aldri
og lætur eftir sig eiginkonu og
fjögur uppkomin börn.
Talið er að Guðmundur hafi
fallið frá borði á bát sínum við
að leggja grásleppunet.
Björgunarskip Slysavarna-
félagsins Landsbjargar,
Hafbjörg frá Neskaupstað,
fann Guðmund í sjónum um
eina og hálfa sjómílu úti af
Kollumúla við Vopnafjörð.
Hann var látinn þegar að var
komið. Að ósk aðstandenda er
ekki birt mynd af Guðmundi.
„Ég vaknaði við læti
um klukkan hálf tvö í nótt og
heyrði að það voru einhverjir
gaurar úti á götu með læti. Svo
þegar ég vaknaði í nótt sá ég að
búið var að skemma bílinn minn,“
segir Pétur O. Heimisson, íbúi á
Vesturgötu í Reykjavík.
Aðfaranótt föstudagsins var átt
við fjörutíu bíla á Framnesvegi
og Vesturgötu og voru 27 þeirra
skemmdir töluvert. Talið er að
tveir menn hafi verið þarna á
ferð og náði lögreglan að góma
annan þeirra. Að sögn lögreglu
var hann mjög drukkinn.
„Bíllinn er svo sem ekkert
stórskemmdur en ég varð samt
virkilega reiður. Það er óþolandi
að fólk geti ekki borið virðingu
fyrir eigum annarra,“ segir Pétur.
Tjón sem þetta fæst bætt úr
kaskótryggingu bifreiðaeigenda.
Sparkað í spegla
og lakk rispað
Heildarágóði Reykja-
víkurborgar af því að flytja
Reykjavíkurflugvöll á Hólms-
heiði austan Rauðavatns er sagð-
ur vera 38,3 milljarðar króna í
skýrslu starfshóps sem fjallað
hefur um málefni Reykjavíkur-
flugvallar og hefur nú lokið
störfum.
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu í gær telur hópurinn
hagkvæmast fyrir borgina að
hafa flugvöllinn á Hólmsheiði,
og færa hann þar með úr Vatns-
mýrinni. Færsla flugvallarins
til Keflavíkur er sögð gefa borg-
inni 37,4 milljarða í aðra hönd en
uppbygging vallarins á Löngu-
skerjum 33,3 milljarða króna.
Uppbygging vallarins á
Lönguskerjum fékk besta ein-
kunn starfshópsins, samkvæmt
bráðabirgðamati, þegar metnir
voru kostir þess og gallar, út frá
völdum flugeiginleikum, hvar
hægt væri að hafa flugvöllinn.
Mona Sahlin, formaður
sænskra jafnaðarmanna, og Helle
Thorning-Schmidt, formaður
danska jafnaðarmannaflokksins,
ávörpuðu landsfund Samfylkingar-
innar í Egilshöll í gær. Þær lögðu
meðal annars áherslu á velferðar-
mál, jafnréttismál og umhverfis-
mál.
„Velferðarsamfélagið hótar
ekki efnahagslegum vexti heldur
er forsenda þess. Hægriflokkar
segja að ekki sé hægt að byggja
velferðarsamfélagið meira upp
um leið og skattar séu lækkaðir.
Jafnaðarstefnan verður að sýna
að þetta sé hægt að sameina,“
segir Mona Sahlin.
Hún telur baráttuna gegn lofts-
lagsbreytingunni mikilvæga.
„Jafnaðarstefnan hefur ekki alltaf
verið græn hreyfing en nú verð-
um við að sýna fram á að þessi
barátta er jafn mikilvæg og bar-
áttan gegn stéttasamfélaginu var
fyrir hundrað árum,“ segir hún.
Helle Thornton-Schmidt telur
að jafnaðarstefnan hafi lausnirnar
í stefnu sinni. Flokkarnir þurfi að
berjast fyrir því að bæta aðstæður
þeirra sem standa halloka. Hún
telur að ESB sé mikilvægt fyrir
norrænu löndin og jafnaðarstefn-
una.
„Við upplifum allar þrjár í
augnablikinu að borgaralegu
flokkarnir eru ekki góðir í að berj-
ast fyrir þá sem standa illa því
þeir fylgja ekki eftir orðum með
gjörðum,“ segir hún.
Velferðarmál eru forsendan
Ómar Ragnarsson,
formaður Íslandshreyfingarinnar,
ætlar ekki að verða við hvatningu
Hjörleifs Guttormssonar, félaga í
VG og fyrrverandi þingmanns, um
að hætta við
þingframboð.
„Það væri hreint
ábyrgðarleysi að
hætta núna,“ segir
Ómar og ítrekar
það mat sitt að eina
leiðin til að fella
ríkisstjórnina og
koma í veg fyrir
stóriðjustjórn
stjórnarflokkanna með Frjálslynd-
um sé að Íslandshreyfingin fái
menn kjörna. Ómar segir Íslands-
hreyfinguna njóta fylgis beggja
vegna miðju og vísar á bug
kenningu Hjörleifs um að
hreyfingin taki fylgi af VG fremur
en Sjálfstæðisflokki.
Ómar segir framboðslista
Íslandshreyfingarinnar líklega
kynntan eftir helgi.
Verða ekki við
óskum Hjörleifs
Ragnheiður, viljið þið Mos-
fellingar ekki sjá himnaríki á
jörðu?
Alls sjö bílar lentu í
árekstri þegar tvær ungar
stúlkur urðu bensínlausar á
Miklubraut við Grensásveg um
fimmleytið í gær.
Stúlkurnar kveiktu á neyðar-
ljósum en fóru ekki út úr bílnum,
enda mikil umferð á veginum og
áttatíu kílómetra hámarkshraði.
Þrír bílar keyrðu aftan á bíl
stúlknanna.
Sá fjórði náði að stoppa en ekki
vildi betur til en að aftan á hann
keyrði sá fimmti og síðan sjötti
bíllinn aftan á hann.
Enginn slasaðist, en tveir
kenndu smávægilegra eymsla í
hálsi.
Sjö bíla árekst-
ur á Miklubraut