Fréttablaðið - 14.04.2007, Side 46
hús&heimili
Áhugi Íslendinga á hönnun hefur farið stór-
vaxandi undanfarin ár en þó höfum við átt
okkar hönnuði um margra áratuga skeið.
Meðal þeirra er Hjalti Geir Kristjánsson,
sem með sanni má kalla einn af frumkvöðl-
unum á sviði íslenskrar húsgagnahönnunar.
REYKJAVÍK, ZÜRICH, STOKKHÓLMUR
OG NEW YORK
Hjalti Geir, sem fæddist árið 1926, vissi það
frá fyrstu tíð að fyrir honum lægi að starfa
við fyrirtæki föður síns, Húsgagnaverslun
og vinnustofu Kristjáns Siggeirssonar. Að
loknu Verslunarskólaprófi komst hann þó
að því, að til að fá að starfa við fagið þurfti
hann einnig að ljúka prófi frá Iðnskólanum.
„Ég nam húsgagnasmíði við Iðnskólann í
fjögur ár og tók sveinspróf árið 1948. Þegar
líða tók að námslokum fór það að krauma
í mér að halda í hönnunarnám og úr varð
að árið 1950 lauk ég tveggja ára námi frá
Kunstgewerbeschule der Stadt Zürich. Í
framhaldi af því fór ég til Stokkhólms þar
sem ég hélt áfram að læra en starfaði jafn-
framt á teiknistofu hjá Nordíska Kompaní-
inu þar sem ég fékk mjög góðar undirstöð-
ur fyrir það sem koma skyldi,“ segir Hjalti
Geir sem þó var ekki alveg búinn að ljúka
námi sínu eftir Svíþjóðarferðina.
„Ég vissi að eftir að maður væri kominn
heim þá væri ekki svo auðvelt að taka sig
upp og fara aftur út, svo að vorið 1951 datt
mér í hug að fara til Ameríku. Ég skrifaði
Kólumbíuháskóla bréf og fékk inni á kúrs
um framleiðslustýringu, lét fólkið mitt vita
að ég kæmi ekki fyrr en um áramót og tók
svo skip til New York.“
GÓÐ TÍMASETNING
Hjalti sneri aftur til Íslands á tilsettum
tíma með mikið af hugmyndum og teikning-
um í farteskinu, þá búinn að vera á fjórða
ár erlendis án þess að koma heim. Eitt af
hans fyrstu verkum við heimkomuna var
að setja upp teiknistofu á verkstæði föður
síns. Fljótlega tók við undirbúningur fyrir
stóra iðnsýningu sem haldin var haustið
1952, í tilefni af því að tvöhundruð ár voru
liðin frá Innréttingum Skúla Magnússonar.
„Tímasetningin var mjög góð og fátt
hefði getað komið okkur betur en þessi
sýning á þessum ákveðna tímapunkti. Hús-
gögnum okkar var mjög vel tekið og ýmsir
vildu fá að nýta sér kunnáttuna sem ég bjó
yfir. Ég fékk meðal annars stórt verkefni
frá Vinnuveitendasambandi Íslands þegar
þá vantaði ný húsgögn fyrir fundarsalinn
þeirra. Ég smíðaði fyrir þá fundarborð og
stóla og skemmtilegt er frá því að segja
að þegar Samtök atvinnulífsins fluttu með
skrifstofur sínar í Borgartún á síðasta ári,
þá var ákveðið að láta bólstra gömlu stólana
síðan 1953 í stað þess að kaupa nýtt, enda
eru þetta konstrúktívir gripir og hönnunin
í góðu lagi.“
SÝNINGAR OG GULLVERÐLAUN
Hvernig var þessi bransi fyrir tæpum 60
árum. Voru margir að selja húsgögn og var
eitthvað flutt inn?
„Innflutningur á húsgögnum var sáralít-
ill og þeir sem voru að framleiða húsgögn
gerðu töluvert af því að leika eftir það sem
var gert á Norðurlöndunum. Við lögðum
það á hilluna og einbeittum okkur að eigin
hönnun,“ segir Hjalti. Hann bætir því við að
margt hafi breyst þegar húsgagnaarkitekt-
ar, eða hönnuðir eins og þeir kallast í dag,
tóku sig saman og stofnuðu með sér félag
árið 1955.
„Við vorum sex í þessu félagi til að byrja
með og þar af höfðu fæstir kost á því að láta
framleiða fyrir sig húsgögn. Af einhverjum
ástæðum voru framleiðendur líka seinir að
átta sig á því að nýta sér þekkingu hönnuð-
anna. Þegar félagið var fimm ára ákváðum við
að halda sýningu á verkum okkar og hana sett-
um við upp í nýbyggingu við Pósthússtræti.
Sýningin vakti mikla lukku og við komumst
á flug vegna þess að einstaka verkstæði fór að
leita til húsgagnaarkitekta í kjölfarið. Ári síðar
vorum við orðnir aðeins fleiri og þar sem fyrri
sýning hafði tekist svo vel var ákveðið að halda
aðra. Um fjögurþúsund manns sóttu þá sýningu
og hún leiddi meðal annars til þess að okkur
var boðið að taka þátt í alþjóðlegri iðnsýningu í
München í Þýskalandi. Þar sem ég var formað-
ur félagsins og kunni tungumálið var ég feng-
inn til að fara út með sýninguna. Það sem kom
út úr þessari ferð okkar voru gullverðlaun fyrir
stól sem Gunnar H. Guðmundsson hafði teikn-
að. Stóll þessi var svo framleiddur af Kristjáni
Siggeirssyni í mörg ár þar á eftir og gekk undir
nafninu gullstóllinn,“ segir Hjalti Geir.
GOTT AÐ LEITAÐ SÉ TIL HÖNNUÐA
Árið 1970 tók Hjalti Geir við rekstri fyrirtæk-
is föður síns og við tóku margvíslegar breyt-
ingar. Áherslur breyttust, fyrirtækið sam-
einaðist öðrum sambærilegum og að lokum
endaði sá samruni í Pennanum sem í dag
framleiðir skrifstofuhúsgögn, en smátt og
smátt hafði framleiðsla þeirra feðga færst
yfir á það svið. Í dag skemmtir Hjalti Geir
sér einna helst við að hanna muni fyrir börn-
in sín en er jafnframt áhugasamur um það
sem er að gerast í málum Íslenskra hönn-
uða og fylgist vel með. Spurður að því hvaða
álit hann hafi á auknum áhuga Íslendinga á
almennri hönnun segir hann það leggjast
óhemju vel í sig. „Fólk hefur það orðið betra
og getur hugsað meira um hluti eins og hvað
það borðar, hvernig fötum það klæðist og
hvernig híbýlum það býr í. Fólk hefur líka
meiri fjárráð og þannig er almenningur far-
inn að leita meira til hönnuða til að njóta góðs
af reynslu þeirra og þekkingu og það finnst
mér góðs viti,“ segir Hjalti Geir að lokum.
Sýningin á verkum Hjalta Geirs stend-
ur til 21. apríl í Galleríi 101 við Hverfisgötu
18a og er opin frá þriðjudegi til sunnudags
milli kl. 14 og 18. mhg@frettabladid.is
Húsgagna-
arkitekt
Íslands
Hjalti Geir Kristjánsson húsgagnahönnuður sýnir stóla í Galleríi 101.
Hjalti Geir Kristjánsson: „Fólk hefur það orðið betra og getur hugsað meira um hluti eins og hvað það
borðar, hvernig fötum það klæðist og hvernig híbýlum það býr í. Fólk hefur líka meiri fjárráð og þannig er
almenningur farinn að leita meira til hönnuða til að njóta góðs af reynslu þeirra og þekkingu og það finnst
mér góðs viti.“
Þegar Hjalti Geir
sýndi þessar
hansahillur á fimmta
áratugnum varð
einhverjum að orði
að þessar hillur
héldu engu. Hjalti
afsannaði það með
því að vippa sér upp
á eina og fá sér sæti.
Efasemdamaðurinn
sagði ekki mikið
eftir það.
Stóll hannaður
fyrir Verslunar-
ráð Íslands eftir
byggingu Húss
verslunar árið
1978. Nýjung er að
fundarstóllinn er á
snúningsfæti.
Þegar Samtök atvinnu-
lífsins skiptu um húsnæði
á síðasta ári var ákveðið
að halda í fundarstóla þá
sem Hjalti Geir hannaði
árið 1953, en þeir voru
yfirfarnir og bólstraðir
upp á nýtt.
14. APRÍL 2007 LAUGARDAGUR6