Fréttablaðið - 14.04.2007, Side 80
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Með miklum húmor og skemmtilegu
innsæi ... ...tekst þessari sýningu að
hlæja bæði að þeim sem eru með og
þeim sem mótmæla stóriðjuvæðingu
Íslands... notið tækifærið segi ég.
Martin Regal Mbl.
Má vel ráðleggja þeim sérstaklega að sjá
þessa sýningu sem ekki hafa lesið
bókina, þeim mun verða dillað.
Umgerðin er mögnuð og tónlistin
áhrifarík.
Silja Aðalsteinsdóttir TMM.
Sýningin er allt í senn stórskemmtileg,
háalvarleg og hárbeitt. Ef þú ætlar bara
einu sinni í leikhús á þessu ári sjáðu þá
Þröstur Sverrisson
Ómar Ragnarsson
… býsna áhrifamikil… á köflum dásam
-leg… einhver heillandi blær yfir þessari
leikmynd. Smellpassar inní tíðarandann.
Þorgerður E. Sigurðardóttir Víðsjá
Draumalandið – Tær snilld.
Sara Dögg Jónsdóttir
Strandgata 50, Hafnarfirði.
Miðasala í síma 555 2222 og á www.midi.is
Hálsfestin hennar Helenu
er meira en skartgripur;
hún er kannski myllusteinn,
jafnvel lausnargjald. Harm-
urinn er þó að hálsfestin er
týnd og eigandinn næstum
týndari í framandi borg
sem er full af sársauka.
Leikrit Carole Fréchette, Háls-
festi Helenu, hefur hlotið frábær-
ar viðtökur úti um allan heim. Höf-
undurinn, sem er margverðlaun-
að leikskáld frá Kanada, er stödd
hér á landi í tilefni frumsýningar
Þjóðleikhússins á verkinu í kvöld.
Verkið skrifaði Fréchette eftir
dvöl sína í Líbanon árið 2000 en
þangað bauðst henni að fara ásamt
átta kollegum sínum með það að
augnamiði að skrifa leikverk um þá
reynslu sína. „Þessi ferð hafði mjög
djúpstæð áhrif á mig,“ útskýrir
Fréchette en þetta var í fyrsta sinn
sem hún ferðaðist til Mið-Austur-
landa eða til stríðshrjáðrar borgar.
„Hugmyndin var að við kynntum
okkur land og þjóð en við ferðuð-
umst mikið um, heimsóttum meðal
annars palestínskar flóttamanna-
búðir. Fólkið sem við hittum átti
ólíka reynslu að baki og fyrir mig
var þessi heimsókn ákveðið áfall.“
Átöki ólíkra menningarheima, þess
vestræna og arabíska, eru bakland
leikritsins, sem er bæði hádramat-
ísk og spaugilegt.
Aðalpersónan Helena kemur til
framandi borgar og verður fyrir
því að týna hálsfestinni sinni
en það sama henti Fréchette. „Í
fyrstu hvarflaði að mér að fara
og leita að henni en það var nátt-
úrlega alveg absúrd hugmynd -
að leita að svo litlum hlut í þess-
ari óreiðukenndu borg.“ Í verk-
inu ferðast Helena um borgina
og hittir fyrir alls konar fólk og
þegar á líður verður sífellt óljós-
ara að hverju hún leitar og skiln-
ingur hennar á aðstæðum og sárs-
auka fólksins í borginni eykst.
„Áhorfendur verða síðan sjálfir
að ákveða hvað hálsfestin þýðir,“
segir leikskáldið lúmskt.
Fréchette ákvað strax að skrifa
verkið frá sjónarhóli gestsins en
Hálsfesti Helenu verður að telj-
ast mjög persónulegt verk. „Það
var eina sanngjarna sjónarhornið
því ég vissi ekki mikið um landið.
Ég vildi ekki aðeins ræða um sárs-
auka fólksins heldur einnig sárs-
auka einstaklingins. Ég fann mjög
sterkt fyrir minni eigin nostalgíu
og sársauka og mér fannst mikil-
vægt að koma því fram af hrein-
skilni. Fyrir mér er það spennan í
verkinu - þessar andstæður milli
einstaklingsins og aðstæðnanna í
borginni.“
Fréchette útskýrir að hún hafi
ekki viljað gleyma því hver hún
er. „Ég er frá Kanada, frá frið-
sælli borg og ríku landi, og get því
ekki talað fyrir hönd fólksins sem
lifir við allt aðrar aðstæður. Þetta
er ekki pólitískt verk í venjuleg-
um skilningi því ég horfi meira á
dramatíkina út frá fólkinu og lífi
þess. Samhengið er vissulega pól-
itískt því þarna geisaði stríð og
þarna eru flóttamenn. Mín spurn-
ing er hins vegar hvort við getum
deilt sársauka annarra. Það besta
sem ég get gert sem listamaður
er að tjá það af hreinskilni sem ég
upplifði.“
Þjóðleikhúsið frumsýnir verkið
á Smíðaverkstæðinu í kvöld. Leik-
stjóri þess er María Sigurðardótt-
ir, sem nú leikstýrir í fyrsta sinn
í Þjóðleikhúsinu en hún hefur sett
upp tugi leiksýninga, þar á meðal
í Borgarleikhúsinu. Með aðahlut-
verkið fer Edda Arnljótsdóttir en
en með önnur hlutverk fara Arnar
Jónsson og Guðrún Snæfríður
Gísladóttir. Leikmynd og bún-
inga gerir Helga I. Stefánsdótt-
ir, lýsingu annast Lárus Björns-
son og Ester Ásgeirsdóttir hannar
hljóðmynd. Þýðandi leikritsins er
Hrafnhildur Hagalín.
Kl. 14.00
Árni Rúnar Sverrisson opnar mál-
verkasýningu í gallerí Art-Iceland.
com á Skólavörðustíg 1a. Verk lista-
mannsins eru undir sterkum áhrifum
frá litbrigðum og formum frumgróð-
urs jarðar.
Sýningin stendur til 28. apríl.
Dreymir um stóra vinninginn
Kammertónleikaröð Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands, Kristall,
heldur áfram göngu sinni í Lista-
safni Íslands í dag. Þá munu þau
Sif Tulinius fiðluleikari, Þórunn
Ósk Marinósdóttir víóluleikari
og Sigurður Bjarki Gunnarsson
sellóleikari flytja verk eftir Moz-
art og Brahms ásamt sérstökum
gesti, píanóleikaranum Steinunni
Birnu Ragnarsdóttur.
Flytjendurnir koma úr röðum
færustu tónlistarmanna landsins
og er mikill fengur af þessu fram-
taki Sinfóníunnar. Gerður hefur
verið góður rómur að kammer-
tónleikaröðinni en tónlistin þykir
njóta sín vel í fallegu umhverfi
Listasafnsins við Fríkirkjuveg.
Snillingar þessir, sem allir
koma úr röðum færustu hljóð-
færaleikara landsins, flytja á tón-
leikunum undurfagran kvartett
í Es-dúr eftir Mozart og Píanó-
kvartett í c-moll op. 60 eftir Jo-
hannes Brahms sem er háróm-
antískt verk enda samið á miklum
átakatímum í lífi tónskáldsins.
Tónleikarnir hefjast kl. 17 og er
miðasala við innganginn.
Kristallinn hljómar
Hinn geðþekki óperusöngv-
ari Kristinn Sigmundsson æfir
nú hlutverk Mefistós fyrir upp-
færslu Semperóperunnar í Dres-
den í Þýskalandi á óperunni For-
dæmingu Fásts eftir Hector
Berlioz. Verkið byggir á sorgar-
leik Goethes um eitt þekktasta
fall bókmenntasögunnar þar sem
Kristinn leikur hinn illa en óum-
ræðanlega heillandi Mefistó sem
verður örlagavaldur Fásts.
Óperuhús þetta er með þeim
frægustu í heimi og er iðulega upp-
selt á sýningar þar. Fyrirhyggju-
samir Þýskalandsfarar geta hins
vegar reynt á heppni sína á heima-
síðunni www.semperoper.de.
Verkið verður frumsýnt á
morgun.
Ekki springa!