Fréttablaðið - 14.04.2007, Side 90
Stuðningsmenn Manchest-
er United áttu kannski ekki von á
frábær vika yrði enn betri eftir 7-
1 sigur á Roma á þriðjudagskvöld-
ið en fréttirnar af nýjum samningi
Cristiano Ronaldo sáu þó til þess.
Ronaldo, sem hefur margoft
verið orðaður við spænska liðið
Real Madrid, skrifaði undir nýjan
fimm ára samning sem heldur
honum á Old Trafford til ársins
2012.
„Ég er mjög ánægður því það
vissu allir að ég vildi vera hér
áfram. Mér líður mjög vel hjá
Manchester United, ég vil vinna
titla og vonandi náum við því á
þessu tímabili,“ sagði Ronaldo.
„Þetta eru frábærar fréttir og
sýna það og sanna að Cristiano er
ánægður hjá okkur og að hann sé
í rétta klúbbnum,“ sagði stjórinn
Sir Alex Ferguson.
„Hann hefur gott samband við
alla hjá félaginu og verður einn
af bestu leikmönnum félagsins
frá upphafi,“ bætti Sir Alex við.
Ferguson telur ennfremur að Ron-
aldo eigi möguleika að komast
í hóp með tveimur bestu knatt-
spyrnumönnum allra tíma, þeirra
Pele og Diego Maradona.
Það kættust fleiri við fréttirn-
ar. Ryan Giggs sinnir fyrirliða-
störfum Manchester United í fjar-
veru Gary Neville og spáir Ron-
aldo miklum frama.
„Það er enginn í heimi sem á
möguleika á að velta honum úr
sessi sem besta knattspyrnumann
heims. Það er einstakt að sjá hvað
hann hefur náð miklum stöðug-
leika þrátt fyrir ungan aldur og þá
stöðu sem hann spilar á vellinum.
Þetta eru frábærar fréttir,“ sagði
Giggs en Ronaldo hefur skoraði
20 mörk í 50 leikjum með United
á þessu tímabili. Ronaldo kom 17
ára gamall til Man. Utd sumarið
2003.
Ronaldo samdi til ársins 2012
Hollenski þjálfarinn
Guus Hiddink ítrekaði í viðtali í
gær að hann væri ekki að taka við
Chelsea í sumar.
Orðrómur þess efnis að hann
taki við af José Mourinho í sumar
hefur verið þrálátur síðan talið
var að kastast hefði í kekki á milli
Mourinho og eiganda Chelsea,
Roman Abramovich.
„Það kemur ekki til greina. Ég
á enn eftir ár af samningi mínum
við rússneska knattspyrnusam-
bandið. Ég er að vonast til að
komast á EM 2008 með Rússum,“
sagði Hiddink, sem vonast til að
gera álíka góða hluti með Rússa
og Suður-Kóreumenn.
Er ekki að taka
við Chelsea
Diego Armando Mara-
dona er kominn aftur á spítala
með kviðverki aðeins tveim
dögum eftir að hafa losnað úr
tveggja vikna vist.
Læknar á Buenos Aires-spít-
alanum segja að líf Maradona
sé ekki í hættu. Maradona byrj-
aði aftur að drekka á dögunum
en það þoldi lifrin ekki og því var
hann fluttur í skyndingu á spítala.
Aftur á spítala
Hnefaleikakappinn Mike
Tyson heldur áfram að koma á
óvart en nýjasta nýtt hjá honum
er að hann mun leika í tónlist-
armyndbandi sem er ætlað að
kynna væntanlega kvikmynd.
Myndin er indversk og kemur
úr framleiðslulínunni í Bolly-
wood. Tyson mun væntanlega
fljúga til Indlands á næstu dögum
til að taka þátt í gerð myndbands-
ins.
Leikur í tónlist-
armyndbandi
*ATH: Á meðan birgðir endast.
HVE LANGT
MYNDIR
ÞÚ GANGA?
1.499
Halle Berry Bruce Willis
VERSLAÐU INTO THE BLUE, UNDERWORLD 2,
FUN WITH DICK AND JANE EÐA HOSTAGE
Á 1499 kr. OG BÍÓMIÐI FYLGIR Á ÞENNAN
MAGNAÐA SPENNUTRYLLI!*
Gildir fyrir einn á meðan myndin
er í sýningu.Afhendist í miðasölu.
FYLGIR