Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 4

Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 4
Mikill viðbúnaður er hjá lögreglu vegna kosninganna í dag og kosninganæturinnar sem fram undan er. Í flestum umdæmum lögreglunnar eru kallaðar út aukavaktir. „Í dag verða um sjötíu lögreglumenn við störf á höfuðborgarsvæðinu vegna kosninganna. Það er svipað og var í kringum síðustu kosningar en mun meira en við eigum að venjast á venjulegum laugar- degi,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan sinnir ýmsum verkefnum vegna kosninganna, fylgist með að allt sé í röð og reglu á kjörstað og tekur þátt í flutningi kjörgagna. „Það má einnig búast við að það verði mikið um að vera í nótt en þá verða í kringum 45 lögregluþjónar á vakt, sem er aðeins meira en um venjulega helgi,“ segir Geir Jón. Hjá lögreglunni á Akureyri verður aukamannskapur á vakt í dag vegna kosninganna og það sama er uppi á teningnum annars staðar. Kjör- dæmin eru víðfeðm og víða þarf lögregla að keyra langar vegalengdir með kjörkassa. Mikil umferð kann að myndast í grennd við kjörstaði og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar sérstaklega við umferðar- þunga í miðborginni. Búast má við að margir leggi leið sína í Ráðhúsið til þess að kjósa en á sama tíma er mikið um að vera í miðborginni vegna Listahátíðar. 0,00 2,00 4,00 6,00 8,00 10,00 12,00 14,00 16,00 2003 2004 2005 2006 2007 Stýrivextir Seðlabankans STÝRIVEXTIR Á YFIRSTANDANDI KJÖRTÍMABILI ER ÞETTA EFNAHAGSLEGUR STÖÐUGLEIKI??? ALLT ANNAÐ LÍF! – með vinstri grænum Fjórar nýjar skoð- anakannanir um fylgi flokkanna birtust í gær en engar þeirra voru samhljóma um hvernig kosning- arnar gætu farið í dag. Mestu munar á fylgi Sjálfstæð- isflokksins í þessum könnunum. Í könnun Félagsvísindastofnunnar mældist fylgið 36,0 prósent en 44,7 prósent hjá Blaðinu. Allar kannanir mæla flokkinn nokkuð yfir kjörfylgi síðustu kosninga þegar flokkurinn hlaut 33,7 pró- sent atkvæða, en sögulega var það nokkuð slök útkoma. Næstmestur munur er á fylgi Samfylkingar, 5,9 prósentustig, en eftir því sem flokkarnir mælast með meira fylgi eru skekkjumörkin hærri. Mest mælist fylgið hjá Félagsvísindastofnun, 29,3 prósent, en minnst mælist fylgið hjá Frétta- blaðinu, 24,6 prósent. Allar kannan- irnar mæla Samfylkingu undir kjör- fylgi 2003, þegar flokkurinn hlaut 31 prósent atkvæða og allar kannan- irnar, fyrir utan könnun Félags- vísindastofnunar, mælir flokkinn undir kjörfylgi 1999 þegar hann hlaut 26,8 prósent atkvæða. Allar kannanir benda til að Fram- sóknarflokkurinn fái sína verstu útkomu í kosningunum og mælist fylgi flokksins hæst 11,0 prósent í raðkönnun Capacent. Lægst mælist fylgið hjá Fréttablaðinu, 9,1 pró- sent. Í kosningunum 2003 hlaut flokkurinn 17,7 prósent atkvæða og hafði þá ekki gengið jafn illa í kosn- ingum frá árinu 1978. Þá benda allar kannanir til fylgis- aukningar Vinstri grænna. Minnst mælist fylgið hjá Blaðinu nú, 14,1 prósent, en hæst hjá Fréttablaðinu, 16,1 prósent. Flokkurinn hlaut 8,8 prósent atkvæða í síðustu kosn- ingum, sem er svipað og í kosning- unum 1999. Allar kannanir utan Blaðsins benda til að Frjálslyndir séu örugg- ir inni með að minnsta kosti þrjá þingmenn. Mest er fylgið hjá Capacent, 6,3 prósent. Í síðustu kosningum hlautu Frjálslyndir hins vegar 7,4 prósent atkvæða. Þá benda allar kannanirnar til að Íslandshreyfingin komi ekki manni að. Mest mælist fylgið hjá Félags- vísindastofnun, 3,2 prósent. Misvísandi kannanir á lokasprettinum Mestur munur milli kannana sem birtust í gær er á fylgi Sjálfstæðisflokksins, frá 36,0 prósentum hjá Félagsvísindastofnunnar í 44,7 prósent hjá Blaðinu. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra hefur kært Ríkisútvarpið til siðanefndar Blaðamannafélagsins fyrir umfjöllun í Kastljósi og fréttum Sjónarps um veitingu ríkisborgararéttar til sambýliskonu sonar hennar. Krefst hún þess að nefndin úrskurði að umfjöllun um málið í fjórum Kastljóssþáttum og einum fréttatíma teljist hafa farið gegn 3. grein siðareglna Blaðamannafélagsins og að brotið teljist mjög alvarlegt. Í greininni segir að blaðamaður eigi að vanda upplýsingaöflun, úrvinnslu og framsetingu og sýna fyllstu tillitssemi í vandasömum málum. Þá forðist hann allt sem valdið geti saklausu fólki óþarfa sársauka eða vanvirðu. Segir umfjöllun brot sem dæma verði alvarlegt Mjög góð kjörsókn var utan kjörfundar í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og á Akureyri. Samkvæmt upplýsing- um frá sýslumannsembættinu í Reykjavík höfðu rúmlega ellefu þúsund manns kosið þar utan kjörfundar síðdegis í gær, sem er hátt í fjörutíu prósentum meira en fyrir borgarstjórnarkosning- arnar í fyrra. Á Akureyri höfðu rúmlega 1.300 kosið síðdegis í gær, sem er heldur meira en á sama tíma í fyrra. Í Kópavogi höfðu um 1.300 manns kosið síðdegis í gær og í Hafnarfirði um 1.600. Þykja báðar tölur óvenjuháar. Hægt var að greiða atkvæði utan kjörfundar til klukkan tíu í gærkvöldi. Fjölmargir kusu utan kjörfundar Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms um að átján ára karlmaður sem grunaður er um að hafa nauðgað stúlku á salerni í kjallara Hótels Sögu sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til 20. júní. Maðurinn hefur setið í gæslu- varðhaldi frá því lok mars. Rannsókn málsins er á lokastigi og er niðurstöðu geðrannsóknar á manninum að vænta í mánuð- inum. Einn dómari, Jón Steinar Gunnlaugsson, skilaði sér- atkvæði, og taldi að ekki ætti að fallast á áframhaldandi varðhald. Grunaður um nauðgun á Sögu „Jörð og hús titruðu og skulfu í gríðarmikilli spengingu núna laust fyrir klukkan ellefu í morgun,“ sagði á heimasíðu Grindavíkur í gær. Fram kemur á heimasíðu bæjarins að verktakar við hafnargerð í Grindavíkurhöfn hafi verið að sprengja fyrir nýju stálþili sem rekið verður niður milli Kvíabryggju og Miðgarðs. „Sprengingin var mjög öflug og mikið sjónarspil.“ Sprengja skók Grindvíkinga
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.