Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 43
Valdís Steinarrsdóttir kynntist mótorhjólum á
Landsmóti Sniglanna og er nú sjálf formaður
samtakanna.
„Ég tók prófið síðasta vor og keypti í kjölfarið Buell
Lightning hjól, árgerð 2003. Þetta er svokallað street-
fighter hjól með Harley Davidson Sportster mótor,
984 cc,“ segir Valdís Steinarrsdóttir formaður bif-
hjólasamtakanna Sniglanna.
Hjólaáhuginn kviknaði fyrst þegar vinkona Valdís-
ar tók hana með sér á Landsmót Sniglanna og þá varð
ekki aftur snúið. Nokkru síðar skráði hún sig í samtök-
in og í dag er hún formaður.
Samtökin voru stofnuð 1. apríl 1984 og eru að sögn
Valdísar fyrst og fremst hagsmunasamtök.
„Það þarf hvorki hjól né próf til að gerast meðlim-
ur eða fá meðmæli eins og áður. Þó þarf samþykki for-
eldra ef umsækjendur eru yngri en 18 ára,“ segir Val-
dís sem á sjálf þrjú börn og mann sem þeysist líka um
á hjóli.
Dóttirin sem er elst, er að taka mótorhjólaprófið en
tvö yngri börnin ferðast um með pabba sínum í litlum
mótorhjólagöllum.
Í Sniglunum eru 1.910 meðlimir frá átján ára aldri
og upp úr. Að sögn Valdísar eru einnig meðlimir sem
eru ekki virkir en borga ársgjöld til styrktar starfi
samtakanna.
„Stjórnin skipuleggur allar uppákomur eins og
hópkeyrslur, hjólamessur og Landsmót. Auk þess er
unnið mikið forvarnarstarf og að umferðaröryggi,“
segir Valdís og nefnir hópkeyrslu 1. maí þar sem 670
hjól voru saman komin á forvarnardeginum.
Dagurinn var haldinn í Smáralind í samvinnu við
Púkann, Nítró, Umferðarstofu, Rannsóknarnefnd um-
ferðarslysa, Forvarnarhúsið og hljómsveitina Storm-
ur í aðsigi ásamt Vetrargarðinum.
Valdís segir mótorhjólaeign landsmanna hafa aukist
gríðarlega og nánast ómögulegt sé að komast að hjá
ökukennara þessa dagana. „Fólk er að uppgötva hvað
það er rosalega gaman að hjóla og hvað þetta er þægi-
legur ferðamáti,“ segir Valdís.
Sniglarnir eru fyrir alla
550 5600
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið