Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 44
Fyrsti íslenski fjórhjólaklúbb-
urinn hefur verið stofnaður.
Unnið er að því að fá svæði
fyrir fjórhjólabraut.
Fjórhjólum fjölgar stöðugt hér-
lendis og nú hefur fyrsti opin-
beri fjórhjólaklúbburinn verið
stofnaður. Hann kallast Fjórhjóla-
klúbbur Reykjaness og er öllum
opinn. „Markmið klúbbsins er að
sameina áhugamenn um sportið
og stuðla að því að menn séu ekki
að djöflast á hjólum á umferðar-
götum,“ segir Davíð Jón Kristj-
ánsson varaformaður klúbbsins.
„Við viljum heldur að fólk komi
saman á lokuðum svæðum til að
stunda aksturinn.“
Nú standa yfir viðræður við
Reykjanesbæ um úthlutun svæð-
is undir fjórhjólabraut en slík
braut er nauðsynleg ef koma á
upp mótaröð hérlendis fyrir fjór-
hjól. „Það hefur orðið gríðarleg
aukning í sportinu og bara síðan
í maí í fyrra hefur hjólum fjölg-
að um 600,“ segir Davíð. „Uppselt
er í fyrstu ferð klúbbsins til Víkur
og því augljóst að áhuginn er mik-
ill.“
Fjórhjólaklúbbur Reykjaness
heldur kynningu á klúbbnum og
fjórhjólum almennt í Reykjanes-
höll um helgina í tengslum við frí-
stundahátíðina Frístundasumar í
Reykjanesbæ.
Nánari upplýsingar um klúbb-
inn er að finna á http://blogcent-
ral.is/iceatv.
600 ný fjórhjól á síðasta ári
Bílablaðamenn víðs vegar að
völdu á dögunum vél ársins.
BMW sigraði þriðja árið í röð.
BMW hefur hlotið viðurkenn-
inguna „Vél ársins“ þriðja árið
í röð. Dómnefnd skipuð yfir 60
bílablaðamönnum frá 30 löndum
ákvað að verðlaunin féllu í skaut
BMW fyrir 3,0 lítra twin-
turbo vél BMW 325. Vélin
fær verðlaunin fyrir að
vera ekki bara kraftmikil
heldur einnig sparneyt-
in og að forþjöppuhik sé
nánast ekkert.
Als sigraði BMW
í sjö flokkum af tólf.
Volkswagen sigraði í
tveimur flokkum með 1,4 lítra TSI
vél sinni og 2,0 lítra TFSI. Porsche
vann til sinna fyrstu verðlauna frá
upphafi valsins og brutust út mikil
fagnaðarlæti er kynnt var um val
3,6 lítra twin-turbo vélar þeirra í
flokki 3,0 til 4,0 lítra véla.
Eini framleiðandinn utan Þýska-
lands til að vinna til verðlauna var
Toyota. Hann var verð-
launaður fyrir spar-
neytnustu vélina í,
jú mikið rétt, Prius.
Hann hlaut einnig
verðlaun fyrir vél-
ina í Aygo og Yaris
en hana er líka að
finna í Peugeot 107
og Citroën C1.
BMW með vél ársins
Jeppadekk
Alorka • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080
Heilsársdekk
31" kr. 12.900
(31x10.50R15)
33" kr. 15.900
(33x12.50R15)
Úrval annarra stærða upp í 38".
Felgustærð 15", 16" 17" og 18".
Sendum frítt um land allt!
Við mælum með míkróskurði
P
IPA
R
• S
ÍA
• 70
622
Nánar á jeppadekk.is
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FJAÐRIR OG GORMAR
Í FLESTAR GERÐIR
JEPPA
Japan/U.S.A.
umboðið, Bílaraf, Auðbrekku 20, s. 564 0400.
Euro Mover *Nýtt frá
Rafmagnsdrif til að aka hjólhýsum.
Einnig mögulegt fyrir hestakerrur,
Eins öxla fyrir 1.800 kg, tveggja fyrir 2.250 kg
Ekur upp 25% halla miðað við 1.200 kg.
Ryðfrítt.
Ekkert streð
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI