Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 98
Michael Imperioli er staddur
hér á landi til að leika í kvik-
mynd Ólafs Jóhannessonar,
Stóra planið, þar sem hann
fer með hlutverk glæpa-
foringjans Alexanders.
Freyr Gígja Gunnarsson
hitti leikarann við sjávar-
síðuna á Seltjarnarnesi.
„Ég verð í tökum einn dag í við-
bót en fæ síðan helgina til að ferð-
ast um landið með eiginkonunni
minni,“ segir Michael. Hann fær
sér sæti á sófanum og Jóhann G.
Jóhannsson, aðstoðarleikstjóri
myndarinnar, færir honum kaffi
með mjólk. „Mig hefur alltaf lang-
að til að heimsækja Ísland. Vin-
kona mín vann hérna með Frið-
riki Þór Friðrikssyni og þegar mér
bauðst hlutverk í íslenskri mynd
kviknaði strax áhugi,“ heldur
Imperioli áfram. „Ég las handrit-
ið, fannst það skemmtilegt og per-
sónan mín áhugaverð þannig að ég
sló bara til,“ segir Michael. Hann
talar með þessum týpíska New
York/Ítala-hreim sem hefur verið
gerður ódauðlegur í mafíósa-kvik-
myndunum.
Imperioli leikur glæpaforingjann
Alexander og segir helstu ástæð-
una fyrir því að hann tók hlutverk-
ið að sér vera þá að Alexander er
mjög ólíkur hinum ítölsku mafíós-
um sem hann hefur leikið í sjón-
varpsþáttaröðinni Sopranos. Og
íslenskir sjónvarpsáhorfendur
ættu að kannast við. „Mafíósarnir
ítölsku eru oft illa menntaðir, of-
beldisfullir ruddar sem hafa alist
upp í kringum ofbeldi. En Alex-
ender er ekki þannig. Hann er víð-
lesinn og finnst ógn við beitingu
ofbeldis mun áhrifameiri en of-
beldið sjálft,“ útskýrir leikarinn
en viðurkennir síðan að jafnvel
þótt Alexender hefði verið þessi
týpiski ítalski glæpamaður hefði
hann nú sennilega tekið hlutverk-
ið að sér. „Bara til að hafa góða af-
sökun fyrir að koma til Íslands.“
Imperioli hefur ekki lagt lag sitt
við Hollywood-kvikmyndir heldur
kýs frekar að leika í sjálfstæðum
kvikmyndum sem eru helst gerð-
ar nálægt New York. „Ég er New
York-búi og kann best við mig þar.
Ég á þar að auki þrjú börn og vil
helst ekki vera of lengi í burtu
heiman frá,“ segir Imperioli. „Ef
mér býðst hlutverk í Hollywood er
það auðvitað fínt en ég er ekkert
að sækjast neitt sérstaklega eftir
því. Við hjónin rekum auk þess
leikhús í New York þannig að þar
eru mínar rætur,“ segir Imperioli.
„Auk þess hrífur það mig hversu
kjarkaðir menn eru í sjálfstæða
kvikmyndageiranum. Þeir þora að
gera öðruvísi hluti,“ heldur hann
áfram.
Stóra planið er þriðja evrópska
kvikmyndin sem Imperioli tekur
þátt í og hann segist kunna vel við
þetta afslappaða andrúmsloft sem
ríkir á tökustað í Evrópu. „Þetta
kallar fram það besta í leikaran-
um. Maður verður einhvern veg-
inn svo óheftur og hugmyndirn-
ar flæða fram. Í Bandaríkjunum
hangir klukkan alltaf fyrir ofan
höfuðið á þér og tifar. Þar verða
hlutirnir að gerast strax. Senni-
lega hefur þetta líka eitthvað með
bandarísku þjóðarsálina að gera,“
útskýrir Imperioli.
Og leikarinn stendur á ákveðn-
um tímamótum. Verið er að sýna
sjöundu og síðustu seríuna af
Sopranos og segir Micheal að
hálfgert æði ríki í Bandaríkj-
unum yfir endalokunum. „Allir
vilja vita hvernig þetta endar allt
saman, hver deyr og hver lifir af,“
útskýrir hann og viðurkennir að
hann eigi eflaust eftir að sakna
þáttanna. „En ég er líka ánægður
með að þessu sé lokið og er spennt-
ur að sjá hvað tekur við eftir Sopr-
anos. Þetta var skemmtilegur tími
en allt hefur sinn enda. Sem betur
fer var ákveðið að ljúka þáttaröð-
inni þegar henni átti að ljúka en
ekki verið að teygja lopann,“ segir
Imperioli.
En það er varla hægt að sleppa
Imperioli án þess að spyrja hann
út í eina frægustu senu hans í
kvikmyndasögunni þegar Joe
Pesci skaut hann í fæturna á
pókerkvöldi í Goodfellas. „Þetta
var auðvitað rosaleg lífsreynsla
fyrir 23 ára ítalskættaðan New
York-búa að leika við hliðina á Ro-
bert DeNiro undir stjórn Mart-
in Scorsese,“ segir Imperioli. „Og
fólk man þetta atriði enn þann
dag í dag. Enda er kvikmyndin al-
gjör klassík,“ segir Imperioli, sem
bjóst reyndar ekki við að þetta at-
riði yrði svona opinskátt og hrátt.
„En eftir það vissu einhvern veg-
inn allir hver ég var.“
Leikkonan Drew
Barrymore
hefur verið gerð
að sendiherra
hjá Sameinuðu
þjóðunum. Mun
hún einbeita sér
að því að berj-
ast gegn hungri.
Fetar hún þar
með í fótspor
þekktra nafna á
borð við Angel-
ina Jolie, George Clooney, Michael
Douglas og Geri Halliwell.
„Þetta er mikill heiður og ég
tek þessari áskorun og mikilvægu
stöðu af mikilli auðmýkt,“ sagði
Barrymore. „Ég get ekki hugsað
mér neitt mikilvægara en að reyna
að koma í veg fyrir hungursneyð á
meðal barna.“ Á meðal þekktustu
mynda Barrymore í gegnum tíðina
eru Charlie´s Angels og E.T.
Drew verður
sendiherra
Sumarvörurnar
komnar
Munið Gjafabré n okkar
VATNSSTÍG 3, S: 552 0990
„Litla Ellý fæddist í gærkvöldi
klukkan 19:36. 13 merkur og 51
cm. Allt gekk eins og í sögu og við
vorum komin heim skömmu eftir
miðnæti. Með kveðju, Freyr, Ellý
og börn,“ skrifaði stolt móðir, Ellý
Ármanns, til vina og vandamanna í
gærmorgun.
Hún og dagskrárstjórinn Freyr
Einarsson eignuðust sitt fyrsta
barn saman um svipað leyti og Ei-
ríkur Hauksson steig á sviðið á
fimmtudagskvöldinu. Fréttablað-
ið reyndi að ná sambandi við hina
nýbökuðu foreldra en ekki reyndist
unnt að ná í þau. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins ríkir þó mikil
gleði og hamingja á heimili þeirra í
Hlíðunum.
Ellý varð nýlega vinsælasti
bloggari landsins og lét sig ekki
muna um að setja inn nýja færslu
í gær, undir heitinu „Ég get alveg
sætt mig við trúðanefið og indí-
ánafjaðrirnar en nú er þetta farið út
fyrir öll velsæmismörk,“ sagði hún
uppspennt...“. Í viðtali við Sirkus,
fylgirit Fréttablaðsins á föstu-
daginn, sagðist Ellý ætla að fylla
heimilið af börnum. Og er óhætt
að segja að Ellý sé komin vel á veg
með það takmark sitt því fyrir eru
fjögur börn á heimilinu; Ellý á tvo
stráka af fyrra sambandi en Freyr
á tvær stelpur fyrir. „Það er ekki
að ástæðualausu að ég valdi Frey.
Við erum samstíga í þessu og vilj-
um bæði eiga stóra samheldna fjöl-
skyldu,“ sagði Ellý við Sirkus.
Litla-Ellý fædd