Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 105
Geir Þorsteinsson, for-
maður KSÍ, telur ekki eðlilegt að
leikmenn í Landsbankadeildinni
veðji á eigin leiki, hvað þá á opin-
berum vettvangi. Á vefsíðunni
fótbolti.net hófst í gær nýr liður
undir nafninu Tippað á Lengjuna.
Fyrsti þáttakandinn er Davíð
Þór Viðarsson, miðjumaður FH.
en það eru Íslenskar getraunir
sem greiða 3.000 kr. fyrir seðil-
inn. Davíð getur unnið 155 þúsund
krónur ef hann spáir öllum leikj-
um réttum og myndi féð renna í
leikmannasjóð hjá FH.
Davíð Þór tippar á fimm leiki og
þar á meðal leik ÍA og FH þar sem
hann verður væntanlega sjálfur að
spila. Hann spáir sigri FH-inga.
„Leikmenn og dómarar eiga
ekki að standa í veðmálum á eigin
leiki. Þetta kannski endurspegl-
ar þann sakleysislega stimpil sem
er á íslenskri knattspyrnu og ég
held að þetta hljóti að hafa verið
gert í einhverju hugsunarleysi,“
sagði Geir Þorsteinsson í gær en
Íslenskar getraunir eru einn af
styrktaraðilum KSÍ og Geir situr
í stjórn þar á bæ.
„Ég mun taka upp símann og
hringja í félaga mína á Lengj-
unni. Almennt séð er það þannig
að leikmenn og dómarar eiga ekki
að veðja á eigin leiki og það verð-
ur að vera ljóst. Það er eðlilegasta
ástandið þó ég óttist ekki þetta
atvik í sjálfu sér en það má ekki
gefa fordæmi fyrir slíku,“ sagði
Geir.
Leikmenn eiga ekki
að veðja á eigin leiki
Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum Fréttablaðsins
verður Einar Jónsson næsti þjálf-
ari kvennaliðs Fram. Einar tekur
við starfinu af Magnúsi Kára
Jónssyni, sem mun sjá um þjálfun
yngri flokka hjá félaginu.
„Ég er laus allra mála hjá ÍBV
og hef heyrt í Frömurum. Það
er samt ekki búið að ganga frá
neinu,“ sagði Einar við Frétta-
blaðið í gær en hann er uppalinn
hjá félaginu, þjálfaði áður yngri
flokka í Safamýrinni og veit því
af hverju hann gengur.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að gengið verði frá samningum
um helgina eða strax eftir helgi.
Einar tekur við
Fram-stelpum
Floyd Landis greindi
frá því í gær að honum hefði
verið boðinn mildari dómur í
lyfjamáli sínu ef hann myndi
gefa saknæman vitnisburð um
hjólreiðagoðsögnina Lance Arm-
strong.
Landis vann Tour de France-
hjólreiðakeppnina árið 2006 en
var sviptur titlinum þegar hann
féll á lyfjaprófi. Landis held-
ur því fram að honum hafi verið
boðinn stysti mögulegi dómur ef
hann gæfi vitnisburð sem kæmi
Armstrong mjög illa.
„Þetta tilboð var svo glórulaust
að það þurfti ekki að svara því,“
sagði Landis. „Ég gerði ekki það
sem ég er sakaður um og ekkert
af þessu snertir Lance.“
Travis Tygart hjá Lyfjaeftirlit-
inu er maðurinn sem Landis segir
hafa lagt fram boðið. Hann segist
ekki geta tjáð sig um málið sam-
kvæmt reglum lyfjaeftirlitsins.
Landis þarf að gefa því leyfi til að
tjá sig og Tygart segist vera til í
það með leyfi Landis.
Armstrong og Landis eru fyrr-
verandi félagar en vinskapur
þeirra fór út um þúfur árið 2004.
Engu að síður hefur Armstrong
staðið með Landis í þeirri orra-
hríð sem hann stendur í og Landis
virðist vera að endurgjalda greið-
ann.
Sagt að vitna
gegn Lance
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting með morgunverði. Verð miðast við að bókað
sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega.
TORRE ALMONTE – UMBRIA
Glæsilegur turn frá 17. öld trónir yfir smábænum
Frontignano, umkringdur trjám og útsýni sem gleður
sálina. Hér ríkir glæsileg hönnun í bland við
ættargersemar og forna grjótveggi. Öll þægindi
nútímans með sjarma liðinna alda.
Verð frá: 94.867,-
á mann eina viku, brottför 5. júní, m.v. 4 í íbúð.
Verð frá: 58.967,-
á mann í eina viku, brottför 3. júlí,
m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð Fedora.
Sveitarómantík í Umbria
klukkutíma frá Róm
BEINT FLUG ALLA ÞRIÐJUDAGA FRÁ 5. JÚNÍ TIL 21. ÁGÚST
Íbúðahótel með 9 íbúðum, sem eru með sameiginlega
sundlaug og standa í 2 km fjarlægð frá Collazzone,
sem er ekta ítalskt sveitaþorp. Ef gestir vilja láta dekra
sértaklega við sig þá býðst sú þjónusta að fá matreiðslu-
mann í eldhúsið þitt og elda gómsæta ítalska rétti.
BORGO LE CINISCHIE Umbria hefur oft verið kölluð Ítalía
lífsstílsins og á það vel við. Þetta
fallega sveitahérað er aðeins
klukkutíma frá hinni fögru Róm
og er sannkallaður staður sælkera,
rómaður fyrir ræktun á gæðavínum,
ólífum og trufflusveppum.
Tilvalið er að dvelja í sumarhúsi
eða kastala með alla fjölskylduna.
Þar er hægt að slaka á og leika sér
í sundlaugagarði í einu fegursta
umhverfi sem hugsast getur fyrir
neðan miðaldarbæin Todi sem er
eins og málverk af ævintýraþorpi.
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
www.uu.is