Fréttablaðið - 12.05.2007, Qupperneq 110
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Þetta er nákvæmlega það sem
ég spáði fyrir um fyrir þremur
árum,“ sagði Jónatan Garðarsson,
þaulreyndur Eurovision-speking-
ur, um úrslitin í undankeppni Euro-
vision. Mikillar óánægju hefur
orðið vart bæði á Íslandi og í lönd-
um á borð við Noreg, Danmörku
og Holland, þar sem enginn kepp-
andi frá vesturhluta Evrópu komst
áfram.
„Ég var á fundi fyrir þrem-
ur árum þar sem farið var yfir
fyrirhugaða forkeppni. Ég benti
á að það væru allar líkur á því að
þær þjóðir sem hafa mestan áhuga
á keppninni, Austur-Evrópuþjóð-
irnar sem eru að koma nýjar inn í
hana, myndu yfirtaka hana,“ sagði
Jónatan. „Fólk hélt að þetta myndi
jafna sig, og mér sýndist í fyrra að
það væri reyndin. Skiptingin var
eðlilegri þá, en núna er þetta að
koma í ljós,“ sagði hann.
Að sögn Jónatans verður keppnis-
fyrirkomulagi breytt á næsta ári.
„Ég veit ekki betur en að það verði
tvær forkepnir. Þá færu stóru
löndin fjögur og sigurþjóðin í úr-
slitakeppnina, ásamt tíu lögum úr
hvorri undankeppni. En þeir eru
að vandræðast með hvernig skipt-
ingin eigi að vera, svo sanngirni
sé gætt,“ sagði hann. Einhverjir
hafa mælt með því að skipt væri
eftir tímabeltum, en Jónatan telur
þó líklegra og jafnframt betra að
dregið verði í forkeppnirnar. „Það
verður að vera einhvers konar
jafnvægi á milli menningarheima,
eins og er núna, þó að okkur finnist
það ekki atkvæðalega séð,“ sagði
hann og hló við.
Spáir tveimur undankeppnum að ári
Eftir því hefur verið tekið á Stöðvar-
firði að nýr bíll er kominn í pláss-
ið. Um er að ræða svartan Land
Rover Discovery jeppa árgerð 2006
sem var áður í eigu ekki ómerkari
manns en Bubba Morthens. Nýi eig-
andinn er trillusjómaðurinn Guð-
björn Sigurpálsson sem geng-
ur nú undir gælunafninu Gubbi
Morthens í bænum.
„Jú, það er rétt, ég keypti
bílinn og viðurkenni að það var ekki
síst vegna þess að hann var áður í
eigu Bubba Morthens,“ segir Guð-
björn í samtali við Fréttablaðið.
„Þetta er fínasti bíll en mér fannst
þó skrítið að það var búið að
keyra hann 16 þúsund kíló-
metra án þess að setja
hann í smurningu. Ég
veit ekki hverjum er þar
um að kenna, B&L eða
Bubba, en það verður að
hugsa vel um þessa bíla.“
Guðbjörn vill ekki viður-
kenna að hann sé einn af
hörðustu aðdáend-
um Bubba en seg-
ist þó hafa gaman
af honum. „Hann
hefur nú samið
mörg góð lögin
en ég kunni
aldrei við hann í dómarahlutverk-
inu í Idol-keppninni. Hann er alltof
mikill hrokagikkur til að geta dæmt
í slíkri keppni,“ segir Guðbjörn og
má greina vott af vanþóknun í rödd-
inni.
Ekki hefur Guðbjörn hlustað á
Bubba í Land Rovernum eftir að
hann festi kaup á bílnum þar sem
hann á enga diska með kóngin-
um. „Það fylgdu engir diskar með í
kaupunum. Er ekki Sjóvá líka búin
að kaupa allt klabbið af honum?“
spyr Guðbjörn.
Það var auðsótt mál fyrir blaða-
mann að fá Guðbjörn til að stilla
sér upp í myndatöku en þó með einu
skilyrði. „Ég vil ekki svona „Guð-
björn fallinn“ fyrirsögn. Ég hætti
að reykja fyrir þremur árum og er
ekki fallinn enn,“ segir Guðbjörn og
hlær.
Eftir Eurovision-keppnina á
fimmtudag loguðu allar símalín-
ur í útvarpshúsinu við Efstaleiti.
Voru þar á ferð í það minnsta
þrjátíu ósáttir greiðendur afnota-
gjalda sem blöskraði klámfeng-
ið tal kynnisins, Sigmars Guð-
mundssonar í Kastljósinu, milli
laga.
Gerður Helgadóttir símadama
tók við símtölunum en hún harð-
neitaði að staðfesta þetta við
blaðamann Fréttablaðisins, sagð-
ist vera bundin meiri trúnaði en
leigubílstjórar í starfi sínu og að
nú væri RÚV orðið ohf. Og ekki
hægt lengur að vísa í upplýs-
ingalög. Gerður gaf hins vegar
samband við Jóhönnu Jóhanns-
dóttur, aðstoðardagskrárstjóra
innlendrar dagskrár og sérstak-
an umsjónarmann Eurovision-
keppninnar hjá RÚV ohf. Jó-
hanna staðfesti það að margir
hefðu haft samband og lýst yfir
óánægju sinni.
„Fólk hefur misjafnan smekk
fyrir húmor,“ segir Jóhanna. Þeir
sem hringja og kvarta fá að tjá
sig að sögn Jóhönnu, á þá er hlust-
að og skoðað hvort um réttmætar
athugasemdir sé að ræða.
„En það sem einum finnst
ósæmilegt finnst öðrum fyndið.
Fólk á fullan rétt á því, mislíki því
eitthvað, að setja fram þá skoð-
un sína. En ég held að ekki hafi
vakað fyrir Sigmari að vera meið-
andi. Heldur hans leið að gera
góðlátlegt grín. En við verðum að
passa upp á það, upp að
ákveðnu marki, að tala
ekki niðrandi um kepp-
endur og hampa einum á
kostnað annars.“
Að sögn Jóhönnu voru
það einkum Eista-brand-
arar Sigmars sem fóru
fyrir brjóstið á
fólki sem og nær-
buxnatal.
„Hann sagði
reyndar að þetta
væri margtugg-
inn aulabrand-
ari. Og umræður
um nærbuxur
höfðu verið í
fjölmiðlunum
áður. Kannski
er þetta einnig spurning um
aldur. Skoðanir fullorðinna
eru jafn réttháar og yngra
fólks. Við verðum að gæta
þess að öll þjóðin er að horfa
en Eurovision hefur mælst
með 87 prósenta áhorf.“
Megn óánægja með nærbuxnatal SigmarsJón Þór Júlíusson
Gó› rá› og gagnlegar
uppl‡singar um heita vatni›
www.stillumhitann.is