Fréttablaðið - 02.06.2007, Qupperneq 8
„Ræningjar mínir
hafa farið vel með mig, gefið mér
góðan mat, ekki beitt mig neinu
ofbeldi og ég er við góða heilsu,“
sagði breski fréttamaðurinn Alan
Johnston í myndbandi sem birt
var opinberlega í gær á Al Ehklaas,
vefsíðu sem herskáir múslimar
hafa oft notað. Þetta var fyrsta
lífsmarkið sem sást frá Johnston
frá því honum var rænt í Palestínu
fyrir þremur mánuðum.
Á myndbandinu mátti sjá merki
samtaka sem nefna sig Her íslams.
Lítið er vitað um þessi samtök en
þau eru talin hafa Johnston í haldi
sínu. Ekki er vitað hvenær mynd-
bandið var tekið upp, en Johnston
virtist vera í góðu formi og hann
var rólegur í þær þrjár mínútur
sem hann talaði.
Meginefni þess sem Johnston
sagði í myndbandinu er gagnrýni
á framferði Ísraela gagnvart Pal-
estínumönnum og jafnframt gagn-
rýni á Breta og Bandaríkjamenn
fyrir hernaðaraðgerðir þeirra í
Írak og Afganistan og framferði
gagnvart Palestínumönnum.
„Þau þrjú ár sem ég hef dvalið á
Palestínusvæðunum hef ég orðið
vitni að hinni gríðarlegu þjáningu
palestínsku þjóðarinnar. Skilaboð
mín eru þau að þessi þjáning sé
enn til staðar og sé óþolandi,“
segir Johnston, sem hefur verið
fréttamaður bresku sjónvarps-
stöðvarinnar BBC í Palestínu.
Myndbandinu fylgdu kröfur
mannræningjanna, sem vilja að
fangar verði látnir lausir í skipt-
um fyrir Johnston, þar á meðal
róttækur múslimaklerkur sem er í
fangelsi í Bretlandi og grunaður
um tengsl við Al Kaída.
Shaker Shabat, prófessor við
háskóla í Gaza-borg, segir birt-
ingu myndbandsins nú vera til
marks um að Johnston verði brátt
látinn laus.
„Þeir eru að sýna okkur sönnun
þess að Johnston sé á lífi, og það
er til að innsigla samkomulagið,“
segir hann. „Þetta er til marks um
að samningum sé nánast lokið og
að Johnston verði brátt frjáls.“
Palestínustjórn hefur staðið í
samningaviðræðum við mannræn-
ingjana og bresk stjórnvöld hafa
einnig átt viðræður við Abu
Katada, einn af félögum Osama
bin Laden, sem Palestínustjórn
hefur í haldi sínu.
Fjölskylda Johnstons sendi frá
sér yfirlýsingu í gær þar sem for-
eldrar hans sögðust mjög ánægðir
með að fá að sjá son sinn, en jafn-
framt væri það mjög erfitt að sjá
hann á þessu myndbandi.
Segist ekki
illa haldinn
Myndband er fyrsta merkið um að breski fréttamaður-
inn Alan Johnston sé á lífi. Birting myndbandsins er
sögð til marks um að hann verði brátt látinn laus.
Þingflokkur Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs vill
að Ísland viðurkenni ríkisstjórn
Palestínu og hefur lagt fram til-
lögu til þingsályktunar þess efnis.
Jafnframt er hvatt til að ríkis-
stjórnin beiti sér á alþjóðavett-
vangi fyrir að önnur ríki geri hið
sama.
VG vill, í annarri þingsályktunar-
tillögu, að fallið verði frá áform-
um um Norðlingaölduveitu í
Þjórsárverum og að ekki verði
virkjað meira í Þjórsá en orðið er.
Þá vill þingflokkurinn að stækkað
friðland Þjórsárvera verði tilnefnt
á heimsminjaskrá UNESCO.
Þingflokkur VG hefur einnig
lagt fram frumvarp sem kveður á
um að vatnalög falli brott og taki
því ekki gildi 1. október eins og
Alþingi hafði áður samþykkt.
Segir í greinargerð að með lögun-
um sé hróflað með óábyrgum og
óvarlegum hætti við farsælli
niðurstöðu Alþingis frá 1923 um
nýtingarrétt á vatni.
Á fyrsta þingfundi sumarþings
lagði þingflokkur VG enn fremur
fram beiðni um skýrslu frá for-
sætisráðherra með tæmandi upp-
lýsingum um öll þau tilvik og allar
þær fjárhæðir sem ráðherrar hafa
með samningum, fyrirheitum og
viljayfirlýsingum lofað að veita
eða beita sér fyrir að veittar verði
frá því að fjárlög ársins 2007 voru
samþykkt og þar til ríkisstjórnin
lét af störfum.
Háskólinn á Akureyri og
VGK-Hönnun undirrituðu í gær
samning um samstarf á sviði
orkulíftækni til næstu fimm ára.
Sérstök áhersla verður lögð á
verkefni tengd endurnýjanlegu
eldsneyti og nýsköpun.
Samningurinn byggir á
óformlegu samstarfi sem HA og
VGK-Hönnun á Akureyri hafa átt
á þessu sviði síðan í ársbyrjun
2005.
Orkulíftækni er þverfagleg
fræðigrein sem sameinar
verkfræði, efnafræði og líffræði
ásamt umhverfisfræðum.
Samningur á
sviði orkulíf-
tækni
Kjörbréfanefnd
úrskurðaði í fyrradag sjö
atkvæði úr kosningunum
12. maí gild en yfirkjör-
stjórn í Reykjavíkurkjör-
dæmi suður hafði áður
úrskurðað þau ógild.
Strikað hafði verið yfir
nöfn frambjóðenda á
kjörseðlunum en ekki
merkt við lista þeirra.
Ekki hafði verið átt við
aðra lista á seðlunum
eða önnur merki gerð.
Fimm atkvæðanna
voru greidd Sjálfstæðis-
flokki, eitt Framsóknar-
flokki og eitt Samfylk-
ingu. Ákvörðunin hefur
ekki áhrif á niðurstöðu
kosninganna.
Sjö vafaatkvæði gild
Opið laugard. 10–16 og sunnud. 12–16
H
im
in
n
o
g
h
af
/S
ÍA
AFMÆLISAFSLÁTTUR
Afmælisveisla!
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.isTryggvabraut 1–3, Akureyri • Sími 460 3630
Stjórnvöld ætla
að fresta frjálsri för Búlgara og
Rúmena inn á íslenskan vinnu-
markað að minnsta kosti fram til
1. janúar 2009 en Rúmenar og
Búlgarar gengu í Evrópusam-
bandið um síðustu áramót. Í
samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið er heimild til að
nýta frestinn lengur en til 2009 en
taka verður ákvörðun um það við
endurskoðun fyrir 1. janúar 2009.
Bjarnheiður Gautadóttir,
lögfræðingur í félagsmálaráðu-
neytinu, segir að utanríkisráð-
herra leggi á næstunni fram
frumvarp sem gerir ráð fyrir
stækkun EES-svæðisins sem
nemur þessum tveimur þjóðum.
Jafnframt verði lagt til að nýtt
verði heimild til að fresta frjálsri
för Rúmena og Búlgara
Frjálsri för
frestað