Fréttablaðið - 02.06.2007, Síða 89
Eyjólfur Sverrisson var
duglegur að minna blaðamenn á
í gær að það væri ekki raunhæft
að búast við léttum sigri íslenska
liðsins gegn Liechtenstein í dag.
„Það er langt frá því að við vinn-
um þennan leik með vinstri. Menn
þurfa að vera alveg hundrað pró-
sent klárir á því,“ sagði hann á
blaðamannafundinum á Hótel
Loftleiðum í gær.
„Liechtenstein er á sínu blóma-
skeiði núna. Þeir fengu átta stig
í síðustu keppni og það hefur
gengið vel hjá þeim í þessari.
Þeir unnu Letta sannfærandi í síð-
asta leik á heimavelli og voru til
að mynda sterkir á móti Norður-
Írum, sérstaklega í fyrri hálfleik.
Við höfum því enga ástæðu til að
vanmeta þá núna,“ sagði hann.
Hann sagði að eðlilega muni
hann gera taktískar breytingar
á leik liðsins frá síðasta leik sem
var gegn Spánverjum ytra. „Ég
býst við því að við verðum meira
með boltann nú og sækjum meira
en gegn Spáni. Við ætlum okkur
að skapa mikið af færum og við
ætlum okkur að vinna þennan leik.
Til þess þurfum við þó að leggja
okkur mikið fram og eiga mjög
góðan leik.“
Aðspurður bjóst hann ekki við
að Liechtenstein myndi sækja
afar grimmt á íslensku vörnina en
sagði þó að liðið væri vel spilandi.
„Það er mikil yfirferð á leikmönn-
um liðsins og þeir eru óhræddir
við að spila boltanum mikið á milli
sín. Inni á milli eiga þeir framúr-
skarandi leikmenn eins og Mario
Frick sem er afar skæður sókn-
armaður og leikur í efstu deild á
Ítalíu. Markvörðurinn leikur svo
með Boavista í Portúgal. En fyrst
og fremst er liðið með gríðarlega
öfluga liðsheild og hefur til að
mynda leikið tvöfalt fleiri lands-
leiki en Ísland í gegnum tíðina.“
Það mátti einnig heyra á honum
að hann ætlaði að nota Grétar Rafn
Steinsson í þeirri stöðu sem hann
er vanur að spila í hjá sínu félagi,
AZ Alkmaar. Þar er hann í stöðu
hægri bakvarðar en í síðasta lands-
leik lék hann á hægri kantinum.
„Ég vil helst nota leikmenn í
þeim stöðum sem þeir þekkja best
þó það sé kannski ekki alltaf hægt.
En ég býst við því að það verði
tilfellið nú.“
Og hann býst við
því að gefa ungu
leikmönnunum
tækifæri. „Það
kemur vel til
greina,“
sagði
hann
án
þess að láta uppi meiri upplýsing-
ar um byrjunarliðið.
Að lokum lagði hann mikla
áherslu að stefnan væri sett á
sigur gegn Liechtenstein. „Við
höfum sýnt það áður að við getum
spilað vel eins og við gerðum gegn
Norður-Írum. Við erum með öflugt
lið og verðum að kalla fram það
besta í því á nýjan leik. Við þurf-
um að vera ákveðnir og hundrað
prósent klárir í slaginn.“
Eyjólfur Sverrisson ætlar að tefla fram sókndjörfu liði gegn Liechtenstein og
ætlar að spila til sigurs. „Þurfum þó að eiga mjög góðan leik til að sigra.“
Íslenska karlalandsliðið
í knattspyrnu hefur unnið fimm
síðustu heimaleiki sína gegn
liðum sem hafa komið úr neðsta
styrkleikaflokki í riðladrætti
fyrir undankeppni HM eða EM.
Ísland mætir í dag Liechten-
stein, sem kom einmitt úr sjö-
unda og neðsta styrkleikaflokkn-
um þegar dregið var í riðla fyrir
undankeppni EM 2008.
Það er ekki hægt að kvarta
yfir genginu gegn litlu þjóðun-
um undanfarin ár. Íslenska liðið
hefur unnið fimm heimasigra í
röð gegn þeim og alls náð í 27
af 30 mögulegum stig frá því að
liðið vann báða leiki sína 4-0 gegn
Liechtenstein í undankepppni HM
1998.
Fimm heima-
sigrar í röð
Svo gæti farið að Theó-
dór Elmar Bjarnason fengi tæki-
færi í byrjunarliði íslenska lands-
liðsins sem mætir Liechtenstein í
dag. Sjálfur bindur hann vonir við
að fá að spila.
„Ég geri það alltaf enda er ég
í fótbolta til að fá að spila. Ann-
ars er ég mjög spenntur yfir því
að vera kominn í landsliðið og
mér finnst að mér hafi gengið vel
á æfingum. Nú er það undir mér
komið að sanna að ég eigi heima
hér,“ sagði Theódór Elmar.
Samningur hans við Celtic á
Skotlandi rennur út í sumar en
hann segir líklegt að gengið verði
frá nýjum á næstu vikum. „Ég
hef fengið jákvæð viðbrögð frá
stjóranum og hann segir að ég sé
í hans plönum fyrir næstu leiktíð.
Ég bíð því spenntur.“
Gæti fengið
tækifærið í dag