Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 18
Þ
orsteinn
Ingi Sigfús-
son, nýráð-
inn forstjóri
Nýsköpunar-
miðstöðvar, fékk á dög-
unum Alheimsorku-
verðlaunin rússnesku.
Eins og frægt er orðið
var það Vladimír Pútín
Rússlandsforseti sem
afhenti þau, til viður-
kenningar fyrir fram-
lag til orkumála. Við-
mælendur Fréttablaðs-
ins eru sammála um
að á sínu sviði sé Þor-
steinn einkar vel að
viðurkenningu kominn.
„Ég veit ekki um neinn
betri,“ sagði samstarfs-
maður hans til margra
ára. Hinn ágætasti full-
trúi Íslands, sem eins
konar erindreki vís-
indanna.
Þorsteinn fæddist í
Vestmannaeyjum árið
1954. Hann sýndi fljót-
lega af sér leiðtoga-
hæfileika og stofn-
aði knattspyrnufélagið
Knött. Snemma beygð-
ist krókurinn því þótt
leiðtoginn væri ekki
drengja fimastur á
vellinum sá hann vel
um fjármál félags-
ins og framgang á
öðrum sviðum. Hann
þótti snemma góður
námsmaður og sleppti
einum árgangi í grunn-
skólanum. Í æsku var
Þorsteinn áhugasamur
um fræðin og fram-
kvæmdi margs konar
tilraunir, til að mynda
á yngri systkinum
sínum, sem eru fimm
talsins. Þau eru Árni,
sem nú er bæjarstjóri
í Reykjanesbæ, Gylfi
framkvæmdastjóri í
Bandaríkjunum, Þór,
forstjóri Sjóvá, Mar-
grét innanhússarki-
tekt og Sif, varaborgar-
fulltrúi Sjálfstæðis-
flokks. Sagt er að
Þorsteinn hafi litið
mjög upp til afa síns,
Þorsteins Þ. Víglunds-
sonar, skólastjóra við
gagnfræðaskólann í
Eyjum. Menntahneigð
var honum því í blóði
borin og lá beint við
fyrir hann að ganga
þann veginn, þótt lang-
skólaganga hafi ekki
verið sjálfgefin á þeim
tíma í Vestmannaeyj-
um. Þegar Þorsteinn
var fimmtán ára gam-
all fluttist fjölskyld-
an til Reykjavíkur og
gekk hann þá í Mennta-
skólann við Hamrahlíð. Þorsteinn hélt síðan til
náms utan landsteinanna og nam meðal annars við
hinn fornfræga háskóla í Cambridge. Þar var hann
valinn í skólaliðið í reiptogi og þótti fastur fyrir og
sterkur.
Þorsteinn þykir traustur vinur og fórnfús. Vinir
segja hann sýna ræktarsemi sem gengur stund-
um lengra en þeir áttu endilega von á. „Það má
bera mikið traust
til Þorsteins, hann
hleypur í skarðið
ef með þarf,“ segir
vinur til margra ára.
Sá bætir við að Þor-
steinn sé ávallt óspar
á að hampa öðrum og
eigni sér ekki ann-
arra verk. Hann er
sagður prúður maður
sem eigi auðvelt með
að umgangast aðra.
„Það fer ekki á milli
mála að hann er einn
ágætasti maður sem
ég hef kynnst,“ sagði
einn mætur maður
um hann. Þorsteinn
fer leikandi með að
koma sínum sjónar-
miðum og áherslum
á framfæri. Gerir
flókna hluti auðskilda
og festir sig ekki í
smáatriðum, held-
ur er stór þáttur í fari
hans hæfnin til að sjá
og sýna heildarmynd-
ina skýra. Þrátt fyrir
kurteisina er Þor-
steinn „fullfær að sjá
um sig sjálfur,“ eins
og einn viðmælandi
orðar það. Ekki er
hann skaplaus maður
og fólki dylst ekki ef
honum mislíkar eitt-
hvað. Hann er hvort
tveggja alvörugef-
inn og léttur í lund.
„Ekkert selskaps-
dýr kannski, en allt-
af mjög léttur. Mikill
húmoristi.“
Þegar forvitnast er
um hugðarefni Þor-
steins, utan eðlis-
fræði, er nefnt að
hann hafi gaman
af tungumálinu
og íslenskum
bókmenntum.
Persónulegur metn-
aður Þorsteins er
mikill og djúpur og
nýtir hann mikla at-
orku sína til fulln-
ustu. „Ekki týpan sem
vill vera í friðsælu
háskólaumhverfi til
að sinna fræðilegum
verkefnum eingöngu,“
sagði einn viðmæl-
andi. Hann lætur ekk-
ert tækifæri úr hendi
sleppa til að ýta áfram
sínum baráttumál-
um og fer bróðurhluti
tíma hans í þau.
Þrátt fyrir að hafa
gengið svo langt að
hafa lýst því yfir að
hann standi í plat-
ónsku ástarsambandi
við vetni er Þorsteini
lýst sem afskap-
lega miklum fjöl-
skyldumanni. Hann á og „efnileg börn í sérklassa,
glæsilegt fólk“. Þorsteini verður enda tíðrætt um
afkvæmin og ber mikla umhyggju fyrir þeim. Einn
viðmælandi bendir á dæmi sér til stuðnings að
þegar Þorsteini var boðið að taka með sér hóp til
Rússlands að hitta Pútín ákvað hann að taka börnin
og eiginkonuna með sér, en margur hefði talið silki-
húfur hæfa betur með í för.
Erindreki vísindanna
„Það hefur vissulega verið verkefni mitt að temja rót-
eindina; að virkja léttasta og útbreiddasta atómið,
vetni, í þjónustu heimsins.“
t
o
n
/
S
Í
A
Sumartilboð Vildarþjónustunnar
Osló, Stokkhólmur
og Gautaborg
með Iceland Express
aðeins
19.900,-
með sköttum
Tilboðið er bókanlegt frá 15. - 30. júní
og er ferðatímabilið 15. - 15. júlí www.spar.is
MARKAÐURINN
með Fréttablaðinu
alla miðvikudaga