Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 32
Nýjum sjúkrabílum Rauða
krossins er breytt úr sendibíl-
um í sjúkrabíla á Ólafsfirði.
Breytingarnar fara fram hjá
Sigurjóni Magnússyni ehf.
Í vetur tókust samningar milli Sig-
urjóns Magnússonar ehf. og Rauða
kross Íslands um smíði á nítján
sjúkrabílum. Þar að auki gerði
fyrirtækið samning við Brunamála-
stofnun um smíði á þrjátíu yfir-
byggðum kerrum. Heilmikil vinna
liggur að baki hverjum bíl og hverri
kerru, enda þurfa farartækin að
þola mikið álag.
Þegar sjúkrabílarnir koma norður
á Ólafsfjörð er fátt sem bendir til að
hér séu sjúkrabílar framtíðar á
ferð. Þeir eru að vísu með breyttri
afl- og drifrein en að öðru leyti er
um venjulega sendibíla að ræða.
Þegar umbreytingin hefst er
fyrsta verk Sigurjóns og félaga er
að klippa þakið ofan af bílunum og
koma fyrir innréttingunum sem
nauðsynlegar eru í bílana. „Við
framleiðum allar innréttingar
sjálfir. Þær eru smíðaðar í miklu
samráði við sjúkraflutningamenn
því þeir vita nákvæmlega hvað þarf
að vera í bílunum og hvað ekki,“
segir Sigurjón Magnússon, fram-
kvæmdastjóri og einn aðaleigandi
Sigurjóns Magnússonar ehf.
„Reynsla þeirra er notuð til grund-
vallar að allri vinnuvistfræði í bíln-
um.“
Rafkerfið í bílunum þarf einnig
að endurnýja og koma fyrir bæði
220 og 12 volta kerfi. „Það liggur
um 250 til 300 tíma vinna að baki
hverjum bíl,“ segir Sigurjón. „Þetta
er því nokkur vinna.“
Kerrurnar fyrir Brunamálastofn-
un eru byggðar hjá Sigurjóni frá
grunni. Um kerrur fyrir mengunar-
varnarbúnað og reykkafara er að
ræða en þeim verður dreift til
slökkviliða um land allt. „Við sjáum
líka um smíði tveggja slökkvibíla
og það er heilmikil vinna,“ segir
Sigurjón. „Við fáum grindina að bíl-
unum en húsin eru smíðuð úr trefja-
plastið hjá okkur.“
Eðlilega er mikil lyftistöng fyrir
lítið fyrirtæki að fá svo stóran
samning. „Þetta er harður bransi og
síðast er við buðum í smíði slökkvi-
liðsbíla munaði 0,027 prósentum á
bíl, sem er eiginlega hvort maður
skilar þeim með fullum eða tómum
bensíntank,“ segir Sigurjón og hlær.
„En grínlaust þá finnst mér sorg-
legt að sveitarfélög séu að leita
beint út fyrir landsteinana eftir til-
boðum í stað þess að leita hér heima
þar sem hægt er að fá vöruna á
sambærilegu ef ekki miklu betra
verði.“
300 tímar fara
í hvern bíl
Bílasala hefur dregist saman
um 0,5 prósent á Evrópska
efnahagssvæðinu. Samdráttur-
inn er langmestur á Íslandi.
Bílasala í löndum Evrópska efna-
hagssvæðisins hefur dregist
saman um sem nemur 0,5 prósent-
um það sem af er árinu miðað við
síðasta ár. Samdrátturinn er lang-
samlega mestur á íslandi, eða 26,4
prósent. Frá þessu er greint á vef
FÍB.
Mest seldu bílar á Evrópska
efnahagssvæðinu er sem fyrr
framleiddir af Volkswagen en það
sem af er árinu hafa 690.665 bílar
verið nýskráðir. Næst í röðinni er
Opel/Vauxhall og í þriðja sæti
kemur Ford.
Bílasala
dregst saman
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI