Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 2
Hrafnkell, var þetta sannkallaður svanasöngur? Sveitarstjórn Flóa- hrepps útilokar ekki að Urriða- fossvirkjun verði reist í neðri hluta Þjórsár. Ekki var gert ráð fyrir virkjun í drögum að aðal- skipulagi sem samþykkt var á miðvikudag. Ákveðið var eftir fund með fulltrúum Landsvirkj- unar í gær að kynna tvær tillögur að aðalskipulagi hreppsins á íbúa- fundi 25. júní næstkomandi. Önnur tillagan gerir ráð fyrir fyrirhugaðri Urriðafossvirkjun í neðri hluta Þjórsár en hin stendur óbreytt frá samþykkt fundar sveitarstjórnar þar sem ekki er gert ráð fyrir virkjuninni. Full- trúar sveitarstjórnar og Lands- virkjunar funduðu í gær að frum- kvæði fyrirtækisins. Landsvirkjun lýsti undrun sinni og áhyggjum yfir ákvörðun sveitarstjórnarinn- ar á fimmtudag. Helgi Bjarnason, verkefnis- stjóri á verkfræði- og fram- kvæmdasviði Landsvirkjunar, sat fundinn með sveitarstjórnar- mönnum í gær ásamt Friðriki Sophussyni, forstjóra fyrirtækis- ins. Helgi segir að aðallega hafi verið rætt um samgöngur, ferða- þjónustu og vatnsvernd sem mót- vægisaðgerðir á svæðinu. „Við erum ekki þeirrar skoðunar að Flóamenn séu á móti virkjun heldur að þeir telji sig ekki hafa forsendur fyrir að hafa hana á skipulaginu án frekari upplýs- inga.“ Helgi telur meiri líkur en minni á því að Urriðafossvirkjun verði reist. „Ég hef aldrei haft það á til- finningunni að sveitarfélagið sé á móti virkjuninni sem slíkri. Þeir hafa aðeins viljað koma í veg fyrir að tjón hljótist af fram- kvæmdum með mótvægisaðgerð- um.“ Hann segir niðurstöðu fund- arins jákvæða og hafa afstýrt því að Landsvirkjun hafi „þurft að fara lagalegar krókaleiðir til að koma virkjuninni inn í aðalskipu- lagið“. Aðalsteinn Sveinsson, oddviti Flóahrepps, segir að viðræðum verði haldið áfram um hvort hægt sé að finna grundvöll sem báðir aðilar sætta sig við. „Aðal- skipulagið verður kynnt með báðum kostum inni og því haldið opnu að auglýsa tillögu með eða án virkjunar.“ Aðalsteinn neitar því að fulltrúar Landsvirkjunar hafi gert sveitarstjórninni sér- stakt tilboð til að bæta hugsan- legan skaða af virkjunarfram- kvæmdum. „En það er ýmislegt sem hefur verið upp á borðinu eins og samgöngur, raforkumál og hagsmunir varðandi ferða- þjónustu.“ Tillögur kynntar með og án Urriðafossvirkjunar Drög að aðalskipulagi Flóahrepps verða kynnt með og án Urriðafossvirkjunar. Ákvörðun um að gera ekki ráð fyrir virkjun var dregin til baka eftir fund með Landsvirkjun, sem telur að virkjunin rísi. Búast má við ágætis veðri um land allt á morgun og því ættu hátíðarhöld í tilefni þjóðhátíðar- dagsins að fara vel fram. Besta veðrið verður fyrir norðan og inn til landsins austan- og vestanlands. Á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæð- inu gætu dottið einhverjir dropar. Trausti Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að um fínasta þjóðhátíðarveður sé að ræða. Margir halda því fram að allt- af sé leiðinlegt veður á 17. júní en Trausti er alls ekki á þeirri skoðun. „Mér finnst nú að veðrið hafi yfir- leitt verið gott á þessum degi,“ segir Trausti. Besta veðrið fyrir norðan Nýtt hlutafélag mun taka við öllum eignum og skuldum Samvinnutrygginga og verður hlutafé hins nýja félags meðal annars skipt á milli fyrrverandi tryggingataka félagsins. Þetta var ákveðið á fulltrúaráðsfundi félags- ins í gær. Nýja félagið fær nafnið Gift fjárfestingarfélag. Hluthafar í nýju félagi verða á fimmta tug þúsunda, en eigið fé þess losar rúma þrjátíu milljarða króna, samkvæmt tilkynningu frá Samvinnutryggingum. Samkvæmt úttekt Fréttablaðsins má ætla að helstu eignarhlutir Samvinnu- trygginga nemi hátt á fimmta tug milljarða króna. Stærstu eignir hins nýja félags verða hlutafé í Exista hf. og íslenskum fjármálastofnunum og óbeinn eignarhlutur á tæpum þriðjungshlut í Icelandair Group hf. í gegnum Langflug ehf. Samvinnutryggingar voru áður gagnkvæmt tryggingafélag og eru eigendur þess að stórum hluta fyrrverandi tryggingatakar. Um einstaklinga og fyrirtæki er að ræða sem áttu skilyrtan eignar- hlut í Samvinnutryggingum, sem tryggðu hjá félaginu síðustu tvö heilu rekstrarár þess og hafa tryggt hjá Vátryggingafélagi Íslands fram til 1. júní 2006. Skiptalokum Samvinnutrygg- inga lýkur í fyrsta lagi næsta haust og verður eigendum tilkynnt um hluti sína í Gift fjárfestingar- félagi um leið og niðurstaða liggur fyrir. Yfir fjörutíu þúsund hluthafar Rjúpum hefur fækkað um rúman fjórðung frá síðasta ári. Þetta kemur fram í talningu Náttúrustofnunar Íslands (NÍ) sem gerð var opinber í gær. Útlit er fyrir að þeim fækki enn meira á næstu fjórum til fimm árum. „Það er alltaf einhverjar nátt- úrulegar sveiflur í stofninum en topparnir verða alltaf lægri og lægri,“ segir Ólafur Karl Nielsen, fuglafræðingur hjá NÍ. Þetta er annað árið í röð sem rjúpum fækkar eftir að rjúpnaveiðibann- inu var aflétt. Veiðibannið stóð frá árinu 2003 til 2005 en á þeim árum óx stofn- inn um áttatíu til hundrað prósent á milli ára. Sá vöxtur átti sér ekki hliðstæðu á fyrri árum og var búist við því að uppsveiflan myndi vara í fjögur til fimm ár. Fækkun- in nú þykir því koma á óvart. Ólafur segir síðasta stóra topp rjúpnastofnsins hafa verið fyrir um það bil hálfri öld. Allar ytri aðstæður séu gjörbreyttar síðan þá. Margar rjúpur drepist við að fljúga á girðingar og línur og minkurinn drepi margar. Auk þess hafi bættar samgöngur og öflugri farartæki valdið því að rjúpan hafi misst griðlönd sín undan svokölluðum veiðimönnum. „Við getum bara lýst ástandinu eins og það er en ástæðurnar fyrir því er verra að segja um,“ segir Ólafur. Mat á veiðiþoli stofnsins mun liggja fyrir í ágúst, eftir að lagt hefur verið mat á varpárangur rjúpna í sumar. Sigmar B. Hauks- son, formaður skotveiðifélags Íslands, segir veiðimenn ekki hafa áhyggjur þangað til þær tölur liggi fyrir. Betur fór en á horfðist þegar rúta með þrjátíu og fjóra franska ferðamenn fór út af veginum austan við Öndverðarnes á Snæfellsnesi. Vegkantur gaf sig og á tímabili vó rútan salt á veginum en eins metra fall var niður af honum. Verktakar sem voru við vinnu rétt hjá slysstað komu fólkinu til bjargar og drógu rútuna aftur upp á veginn. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð var virkjuð og björgunarsveitir og tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út á meðan talið var að hætta væri á ferð. Þyrlurnar voru þó afturkallaðar eftir björgun verktakans. Verktaki kemur til bjargar Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í gær skipun Ehud Barak sem varnarmálaráðherra. Skipunin, sem fylgir í kjölfar sigurs Barak í formannskjöri Verkamannaflokksins, markar endurkomu þessa fyrrverandi forsætisráðherra í stjórnmál, sex árum eftir niðurlægjandi kosninga- ósigur fyrir Ariel Sharon um forsætisráðherraembættið. Talið er að Barak muni styrkja stöðu Olmerts forsætisráðherra, sem hefur sætt harðri gagnrýni fyrir það hvernig staðið var að stríðinu við Hisbollah-samtökin í Líbanon í fyrrasumar. Barak varnar- málaráðherra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.