Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 31
Jóhann Bjarni Kjartansson eignaðist Volkswagen
bjöllu, 1971 árgerð, árið 1993 en seldi hana
nokkrum árum síðar. Nýlega fann hann bílinn
aftur og er að hefjast handa við að gera hann upp.
„Sagan á bak við þennan bíl hófst árið 1993. Þá keypti
ég bjölluna og byrjaði, ásamt Gumma Kalla vini
mínum, að gera hana upp í skúrnum hjá ömmu og afa
á Selfossi. Það var ekki mjög vinsælt þar sem það var
mikið ryk og vesen í kringum það. Það tók góða fjóra
mánuði og við sprautuðum hana í sérstaklega falleg-
um grænum lit,” segir Jóhann.
Jóhann átti bjölluna í tvö ár en seldi hana þá með
miklum trega. Bíllinn endaði á partasölu við Rauða-
vatn og í hvert skipti sem Jóhann keyrði í bæinn sá
hann bjölluna standa óhreyfða við veginn. Einn dag-
inn, nokkrum árum seinna, var bíllinn horfinn og með
honum vonin um að eignast hann aftur.
Þar til fyrir tveimur mánuðum þegar vinirnir hitt-
ust aftur. „Gummi Kalli spurði mig hvers vegna við
keyptum ekki bara bjölluna aftur og ég tók hann á
orðinu. Vinur minn fann bílinn í Reykhólasveit og ég
hringdi í eigandann.“ Þegar eigandi bílsins heyrði
söguna af bílnum féllst hann á að selja Jóhanni hann
aftur.
„Við þurfum að gera hana upp frá grunni, og leita
að sama græna litnum. Hún verður að vera í sama
lit,“ segir Jóhann og lýsir einnig sérstaklega eftir
varahlutum í bílinn þar sem erfitt sé að nálgast þá.
Hægt er að hafa samband við félagana í netfangi
josafat@internet.is.
Bjallan er komin heim
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4 • SÍMI 562 6066
SUMARDEKK
HEILSÁRSDEKK
OLÍS SMURSTÖÐ
BÓN OG ÞVOTTUR
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
RAGEYMAÞJÓNUSTA
BREMSUKLOSSAR
PÚSTÞJÓNUSTA
Fagmenntaðir kayak kennarar
og leiðsögumenn