Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 82
Franska landsliðið hefur
unnið báða leiki sína í riðlinum 6-
0 og situr í sæti númer 7 á styrk-
leikalista FIFA. Ísland er í 21.
sæti. Landsliðsþjálfarinn Sigurður
Ragnar Eyjólfsson er þó hvergi
banginn fyrir leikinn.
„Það er raunhæft að stefna á
sigur, en þetta verður mjög erfiður
leikur. Frakkar eru sterk þjóð en
það má ekki gleyma því að við erum
líka með marga leikmenn sem eru
framúrskarandi á alþjóðlegan
mælikvarða,“ sagði Sigurður.
„Frakkar spila mjög góða knatt-
spyrnu, þær halda boltanum vel
og spila skemmtilega. Þær eru
með nokkra mjög fljóta leikmenn,
meðal annars eina allra fljótustu
stelpu sem ég hef séð. Við þurf-
um að hafa góðar gætur á þeim því
þær eru sterkar sóknarlega. Ef við
spilum þéttan varnarleik og beitum
öguðum skyndisóknum eigum við
eftir að fá okkar færi. Þau þurfum
við að nýta og þá eigum við fulla
möguleika á að vinna, ég fer ekkert
ofan af því,“ sagði Sigurður.
Landsliðsþjálfarinn hefur skoðað
lið Frakka vel og meðal annars sá
hann leik þeirra gegn Grikkjum.
„Ég mun gera leikmönnum mínum
ljóst fyrir leikinn hvernig Frakk-
ar spila. Maður sér ákveðna rútínu
hjá þeim, við þurfum að vera vak-
andi fyrir því. Ég hef séð nokkra
leiki með þeim á spólum og svo fór
ég á leikinn gegn Grikkjum.“
Gegn jafn sterku liði er eðli-
legt að landsliðsþjálfarinn leggi
áherslu á varnarleikinn. „Við
munum leggja áherslu á þéttan
varnarleik. Við erum með sterkt
lið sóknarlega, liðið hefur skorað
í öllum leikjum undir minni stjórn
nema einum og við erum að skora
meira en tvö mörk að meðaltali í
leik. Við erum líka sterk í föstum
leikatriðum, það þurfum við að
nýta okkur,“ sagði Sigurður.
Í næstu viku mæta Íslending-
ar Serbum, sem munu auk Frakka
keppa við Ísland um laust sæti á
EM. „Þessir tveir leikir núna eru
gríðarlega mikilvægir fyrir okkur,
líklega mikilvægustu leikirnir. Við
þurfum á góðum úrslitum á heima-
velli að halda,“ sagði þjálfarinn.
Íslenska kvennalandsliðið mætir því franska í undankeppni EM á Laugardals-
velli í dag. Frakkar hafa á að skipa einu besta liði heims en landsliðsþjálfarinn
er bjartsýnn fyrir leikinn. Hann segir að varnarleikurinn verði í fyrirrúmi.
Stephen Frail, aðstoðar-
þjálfari Hearts, fer fögrum
orðum um unglingalandsliðs-
manninn Eggert Gunnþór Jóns-
son sem er á mála hjá félaginu.
Frail vonast til að Eggert fái fleiri
tækifæri til að sýna sig á næsta
tímabili en hann kom við sögu í
fimm leikjum liðsins í vetur.
„Maður sér hversu góður leik-
maður hann er þegar orðinn
þegar hann spilar með aðalliðinu,
jafnvel í æfingaleikjum. Hann er
góður íþróttamaður og hefur gott
viðhorf. Hann er ávallt tilbúinn
til að læra meira og leggja meira
á sig. Hann bætir sig í hverjum
leik með aðalliðinu og ég hef séð
hann standa sig gríðarlega vel
með varaliðinu. Stundum hefur
hann meiri áhyggjur af því sem
aðrir eru að gera í liðinu en að
einbeita sér að eigin frammi-
stöðu. Ég vona að hann komi sér
almennilega fram á sjónarsviðið
á næsta tímabili,“ sagði Frail í
samtali við The Scotsman.
Fyrr í sumar var það ljóst að
Frakkinn Julien Brellier færi frá
liðinu og segir greinarhöfundur
að Eggert gæti vel fyllt skarð
hans á miðjunni.
Frail líkir honum einnig við
Theodór Bjarnason hjá Celtic.
„Þeir eru báðir gríðarlega hungr-
aðir í árangur.“
Í byrjunarliðinu í haust?
Klausturhvammur 1
220 Hafnarfjörður
Tvær íbúðir
Stærð: 306 fm
Fjöldi herbergja: 8
Byggingarár: 1980
Brunabótamat: 38.750.000
Bílskúr: Já
Verð: 59.900.000
Glæsilegt endaraðhús sem skiptist í tvær íbúðir. Á jarðhæð er 4ra herbergja íbúð sem er mjög góð til
útleigu. Aðalíbúðin er einnig 4ra herbergja sem skiptist í tvennar stofur, stórt unglingaherbergi og rúmgott
hjónaherbergi ásamt 29fm innbyggðum bílskúr. Húsið að utan er í mjög góðu ástandi. Glæsileg eign sem
mikið hefur verði lagt í. Lítið mál er að sameina íbúðirnar tvær aftur saman. Sjón er sögu ríkari.
Lind
Þórarinn Jónsson
Lögg. fasteignasali
Brynjar Ingólfsson
Sölufulltrúi
thorarinn@remax.is
brynjar@remax.is
Opið
Hús
Í DAG kl. 15-16. Verið velkomin!
RE/MAX Lind - Bæjarlind 14-16 - 201 Kópavogur - Sími: 5209500 - www.remax.is
823 1990
TM styður kvennaknattspyrnu