Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 8
Íslenska loftvarna-
kerfið verður lagað að varnarkerf-
um annarra evrópskra NATO-ríkja
og endurnýjað í framtíðinni. Við-
ræður embættismanna um framtíð
kerfisins fóru fram samhliða við-
ræðum Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur utanríkisráðherra og
Nicholas Burns, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, á fimmtu-
dag.
Bjarni Vestmann, sendifulltrúi á
varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, segir að viðræðurnar
hafi gengið vel og Bandaríkjamenn
séu jákvæðir. „Það er verið að ræða
hvernig við tökum yfir reksturinn
á kerfinu, en einnig hugsanlegt
framlag Bandaríkjamanna til upp-
færslu á hugbúnaði loftvarna-
kerfisins.“
Bandarísk stjórnvöld sjá um
rekstur loftvarnakerfisins fram til
15. ágúst, þegar íslensk stjórnvöld
taka við. Utanríkisráðherra upp-
lýsti í Fréttablaðinu í gær að kostn-
aður Íslands vegna reksturs
kerfisins yrði um 800 milljónir
króna á ári.
Bjarni segir íslenska loftvarna-
kerfið með því fullkomnasta í
heimi. Hlutverk þess er tvíþætt.
Annars vegar má í gegnum ratsjár-
kerfi fylgjast með flugumferð við
landið, þar með talið umferð flug-
véla sem ekki nota sjálfvirkan rat-
sjársvara, sem borgaraleg flugum-
ferðarstjórn fylgist með. Hins
vegar er kerfið notað til að stýra
orrustuþotum í íslenskri lofthelgi.
Ratsjárstofnun hefur frá síðasta
hausti fylgst með upplýsingum úr
loftvarnarkerfinu. Ólafur Örn Har-
aldsson, forstjóri Ratsjárstofnunar,
segir starfsmenn stofnunarinnar
fylgjast með lofthelginni allan
sólarhringinn, sérstaklega flugvél-
um sem ekki séu með sjálfvirkan
ratsjársvara í gangi. Hann vildi þó
ekki gefa upp hvort slík óþekkt
loftför hefðu komið inn í lofthelg-
ina á því tæpa ári sem starfsmenn
stofnunarinnar hefðu staðið vakt-
ina.
Loftvarnakerfið er nauðsynlegt
til þess að æfingar erlendra her-
flugvéla geti farið fram hér á landi,
en slíkar æfingar eru meðal annars
fyrirhugaðar í ágúst. Kerfið er
einnig nauðsynlegt ákveði NATO
að hefja lofthelgiseftirlit við
Ísland, en ákvörðun verður vænt-
anlega tekin í næstu viku um hvort
af slíku eftirliti verður.
Íslenska loftvarnakerfið liggur á
milli tveggja stórra kerfa, annars
vegar Bandaríkjanna og Kanada
en hins vegar evrópskra NATO-
ríkja. Bjarni segir að til standi að
samræma kerfið evrópska kerfinu,
sem geri það meðal annars að verk-
um að uppfærslur þess verði ódýr-
ari í framtíðinni.
Varnarkerfi lagað að
kerfum Evrópuríkja
Til stendur að endurbæta íslenska loftvarnarkerfið og laga það að kerfum
evrópskra NATO-ríkja. Kerfið fylgist með óþekktum loftförum við Ísland og er
nauðsynlegt til að erlendar orrustuþotur geti athafnað sig í íslenskri lofthelgi.