Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 42
hús&heimili
Karen Björk Óskarsdóttir, grafísk-
ur hönnuður og starfsmaður hjá
JKE Design, fékk áhuga fyrir Feng
shui aðeins sextán ára gömul, á
þeim tíma sem fyrirbærið var lítið
þekkt hérlendis. Hún hefur ásamt
fjölskyldunni innréttað heimili sitt
í anda þessarar hugmyndafræði,
sem er aldagömul og á rætur að
rekja til kínverskra munka.
„Ég trúi því einlægt að nauðsyn-
legt sé að skapa ákveðið jafnvægi
á heimilinu. Að jafna út frumefnin
eld, vatn, jörð og loft, með mark-
vissri notkun til dæmis málms og
viðar,“ segir Karen. „Í samræmi
við Feng shui leita ég eftir lát-
lausum húsgögnum og hlutum og
þá einna helst í ljósum litum. Litir
hafa nefnilega mikið að segja. Það
er gott að hafa umhverfið svolítið
hlutlaust, því þá er það ekki orku-
frekt. Hengja síðan upp myndir í
afgerandi litum sem maður leitar
í, án þess þó að þær verði ríkjandi
á heimilinu.“
Ekki vantar listaverkin á heim-
ilið, þar á meðal eftir Karen sjálfa,
sem hefur fengist við myndlist,
frá útskrift úr Myndlistarskóla
Akureyrar. „Þetta eru abstrakt
verk, svolítið út í kúbisma,“ segir
hún hugsi. „Ég sæki mikið í línu-
form. Minna er meira.“ Þegar
talið berst að sýningahaldi verður
listakonan hins vegar hógværðin
uppmáluð og segist helst ein-
göngu mála fyrir sjálfa sig, vini
og vandamenn.
Málverk Karenar eiga sameigin-
legt með öðrum heimilismunum
að falla að kínversku hugmynda-
fræðinni. Brátt munu þessir
hlutir eignast nýjan samastað þar
sem fjölskyldan hefur fest kaup
á stærra húsnæði. „Við ætlum að
byrja á að skipta út eldhúsinu,“
segir Karen. „Setja upp ljósa inn-
réttingu blandaða einhverri teg-
und af viði og gleri og leggja stein
á gólfið. Svo verður pottur úti á
verönd, þar sem okkur þykir gott
að vera úti við. Rennandi vatn á
líka að stuðla að aukinni velgengni
samkvæmt Feng shui. Frumefnin
fjögur ættu því svo sannarlega að
fá gott svigrúm á nýja heimilinu.“
roald@frettabladid.is
Feng shui fyrir heimilið
Karen Björk Óskarsdóttir hefur innréttað heimili sitt í anda Feng shui.
Þessi glæsilega mynd er eftir yngsta listamanninn á heimilinu, Andreu Ósk dóttur
Karenar, en hún er máluð á skeljar.
Þetta málverk eftir Karen kallast
„Fjölskyldubönd“, það fyrsta sem hún
gerði. Það sýnir blóð og æðar og táknar
fjölskylduböndin.
Glerverk, eitt af mörgum eftir Karen þar sem unnið er með frumefnin, í þessu tilviki
loft.
Innrétting úr beyki sem Karen lakkaði sjálf þegar hún festi sér kaup á íbúðinni og
skipti um höld á.
Mikið er af listaverkum á heimili Karenar. Málverkið yfir sófanum er eftir Óla G.
16. JÚNÍ 2007 LAUGARDAGUR6