Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 24
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. „Ég þarf ekki að óttast dauðann. Eini ótti minn er snúa aftur endurholdgaður.“ Í ár eru hundrað ár liðin frá komu Friðriks kon- ungs VIII en þá var lokið við gerð Konungsvegar- ins um Þingvelli, Laugar- vatn, Gullfoss og Geysi. Konungsvegurinn er sennilega ein dýrasta vegaframkvæmd Íslands- sögunnar eða um fjórtán prósent af ársútgjöldum ríkisins á þeim tíma. Í tilefni af afmælinu efna Ferðafélag Íslands og Fornbílaklúbburinn til ferðar í um þrjátíu forn- bílum frá Reykjavík um Þingvelli og austur að Laugarvatni. Lagt verður upp í ferð- ina frá höfuðstöðvum FÍ Mörkinni 6 klukkan 9 að laugardagsmorgni. Ólafur Örn Haraldsson er farar- stjóri í ferðinni og Sigurð- ur G. Tómasson og Gísli Sigurðsson sjá um leið- sögn. Áætlað er að ferð ljúki á Laugarvatni um klukkan tvö. Kóngsvegur ekinn í fornbílum Fyrsta konan í geiminum Afstaða, félag fanga, hefur opnað nýja vefsíðu undir www.timamot.is. Þar má meðal annars skoða nýjustu fréttir, fræðast um forvarn- armál og lesa pistla. Afstaða var stofnað af föngum á Litla-Hrauni 23. janúar 2005. Markmið fé- lagsins eru fyrst og fremst þau að vinna að tækifæri fyrir fanga til ábyrgðar, endurreisnar og að búa þeim skilyrði til farsællar endur- komu út í samfélag manna. Hugað er að aðstandendum fanga, fjölskyldum, vinum og öllum öðrum sem sitja í fangelsi úti í hinu frjálsa samfélagi vegna tengsla við fanga. Tímamót.is Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, Hilmar J. Hauksson Kóngsbakka 10 og Aflagranda 20, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut fimmtudaginn 14. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Monika Blöndal Sara Hilmarsdóttir Haukur Steinn Hilmarsson Svava J. Brand Þórunn Helga Hauksdóttir Björn Torfi Hauksson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Ása Engilbertsdóttir Grýtu, Djúpavogi, lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað þriðjudaginn 12. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Steingrímur Ingimundarson Ingimundur Steingrímsson Óskar Steingrímsson Sólrún Sverrisdóttir Hafsteinn Steingrímsson Kristbjörg Eiríksdóttir Ragnhildur Steingrímsdóttir Vilberg M. Ármannsson Drífa Ragnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. 50 ára afmæli Díana Vera Jónsdóttir hárskurðarmeistari býður til veislu vegna 50 ára afmælis síns hinn 15. júní. Veislan verður haldin að Kristnibraut 9 neðri hæð Grafarholti hinn 17. júní klukkan 15.00. Allir vinir og vandamenn eru velkomnir. Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ragnheiður Ólöf Pálsdóttir Gaukshólum 2, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut miðviku- daginn 13. júní. Útförin verður auglýst síðar. Aðstandendur. Björn Pétursson er nýr skólastjóri Mela- skóla en hann er fjórði skólastjórinn í sextíu ára sögu skólans. Björn, sem hefur verið aðstoðarskóla- stjóri síðan 1994, var sjálfur nemandi í Melaskóla sem barn og hefur nú kennt við skólann í þrjátíu ár. „Þegar ég byrj- aði að kenna árið 1977 var það ekki óal- gengt að kennarar væru með tvo bekki því þá voru skólarnir tvísetnir,“ segir Björn og rifjar upp að fyrsta veturinn í kennslu var hann með 45 kennslustundir á viku. „Það hefur mjög margt breyst á þess- um tíma, sérstaklega við einsetning- una í kringum aldamótin og þegar við þurftum að sjá um mat fyrir börnin. Það hefur tekið talsverða orku og tíma af því að við búum svo þröngt hér í Mela- skóla, þannig að við þurftum að gera heilmiklar breytingar,“ segir Björn, sem sér ekki fyrir sér að miklar breyt- ingar verði gerðar á stjórn skólans þrátt fyrir að nýr skólastjóri taki við. „Skól- inn stendur á mjög traustum grunni og þar eru gömul og góð gildi við lýði. Við reynum þó að vera dálítið fram- farasinnuð í kennslunni. Ég mun leggja enn meiri áherslu á upplýsingatækni en hefur verið og nýta hana sem best, ekki síst með tilliti til einstaklingsmið- aðs náms. Þar sé ég ákveðna möguleika sem mætti nýta.“ Björn segir það aðalatriði að bæði börnum og starfsfólki líði vel í skólan- um, en nemendur skólans eru um 600 í fyrsta til sjöunda bekk. „Melaskóli er einn af fjölmennustu skólum borgarinn- ar og þeir sem eru fjölmennari eru með nemendur frá fyrsta til tíunda bekk, þannig að ég hygg að við séum fjöl- mennasti barnaskólinn á landinu,“ segir Björn og bætir því við að þegar skólinn varð einsetinn hafi verið byggð nýbygg- ing við skólann. „Sú bygging er nokkuð vegleg og þar nutum við þess hvað gamli skólinn er glæsileg bygging. Þá var ekki hægt annað en að hafa nýju bygginguna í stíl við hann.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.