Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 6
opið til kl. 22.00 öll kvöld Amina í Mál og menningu Laugardag klukkan 15:00. Láttu sjá þig! Óþrjótandi verkefni! Ef þú ert arkitekt og langar að vinna að fjölbreyttum og ögrandi verkefnum, þá erum við hjá deiliskipulagsdeild Skipulags- og byggarsviðs Reykjavíkur að leita að frjóum og skemmtilegum starfsfélaga. Hér er góður hópur teymisarkitekta sem hlakkar til að fá þig um borð. Nánari upplýsingar um starfið má finna á vefsíðu sviðsins, skipbygg.is. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál konu sem er grunuð um að hafa stundað að misnota kennitölur fólks til þess að svíkja út lyf. Lögregla vinnur meðal annars að því að safna saman þeim tilvikum sem þar sem konan hefur svikið úr lyf. Það var Landlæknisembættið sem kærði lyfja- svindlarann til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nýlega. Svindlarinn, sem er kona á miðjum aldri, er grunuð um að hafa notað kennitölur allmargra einstaklinga. Hún hafði stundað iðju sína á flestum heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins og einnig utan þess, að sögn Matthíasar Halldórssonar landlæknis. Að hans sögn sveik hún einkum út íbúkód sterkar, sem er verkjalyf með kódeini. Embættið kærði hana fyrir skjalafals, að sögn landlæknis. Hann skrifaði lögreglunni ítarlegt bréf vegna þessa máls. Að sögn hans hafði hún stundað það að svíkja út lyf á fölskum forsendum í að minnsta kosti eitt ár. Hún var víða komin á svartan lista, að sögn landlæknis, en leitaði þá jafnharðan á ný mið. Þetta er orðið einstakt mál vegna umfangs. Lögregla rannsakar lyfjasvik Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, telur líklegt að bifhjól mannanna sem óku á ofsahraða framhjá stöðvunarmerkjum lögreglunnar aðfararnótt mánudags verði gerð upptæk. Akstrinum lauk með alvarlegu slysi. „Krafan verður gerð en síðan er það dómara að taka afstöðu til hennar,“ segir Ólafur. Í nýjum umferðarlög- um sem tóku gildi í apríl segir að þegar um stórfelldan eða ítrekaðan hraðakstur sé að ræða megi gera öku- tæki ökumanns upptækt til ríkissjóðs. „Það er komin mjög skýr heimild frá löggjafanum um að þetta megi gera og eins og málið lítur út í dag virðist sem ákvæði þessarar nýju lagagreinar eigi vel við í þessu tilfelli,“ segir Ólafur en þessu ákvæði hefur ekki verið beitt áður. Komið hefur í ljós að annar mannanna, sá sem minna slasaðist, var sviptur ökuréttindum í fyrra fyrir að aka á 181 kílómetra hraða og sinna ekki stöðvunarmerkj- um. Hann var einnig sviptur ökuréttindum í fjóra mán- uði árið 2004 fyrir hraðakstur. Einar Guðmundsson, forstöðumaður Forvarnahúss Sjóvár, tekur í sama streng og Ólafur og segir eðlilegt að beita þessum viðurlögum. „Þarna er sýndur ein- beittur brotavilji. Mennirnir virða ekki lögregluna og ætla sér greinilega að keyra svona hratt,“ segir Einar. Bifhjólamaðurinn sem slasaðist í slysinu liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. Honum er haldið sofandi í öndunarvél. Bæjarstjórar smærri sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu eru hissa á þeirri ákvörðun bæjarráðs Kópavogs að leggja til við bæjarstjórn að gefið verði frítt í strætó frá næstu áramótum. Þeir segja óeðlilegt að sveitarfélög taki ákvarðarnir um málefni strætó hvert í sínu horni og kalla eftir meira samstarfi á vettvangi Sam- bands sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu (SSH) eða stjórnar Strætó bs. Bæjarstjórar Álftaness, Garða- bæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnar- ness segja ákvörðun meirihlutans í Kópavogi koma á óvart, ekki síst í ljósi þess að Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, hafi verið talsvert gagnrýninn á þá ákvörðun Reykjavíkurborgar að gefa náms- mönnum ókeypis í strætó frá og með haustinu. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir að fulltrúi Garða- bæjar í stjórn Strætó hafi óskað eftir fundi í stjórninni vegna máls- ins. Þá verður og fundað um Strætó hjá stjórn SSH 25. júní. „Það verður klárlega havarí á þeim fundi,“ segir Ragnheiður Ríkharðdóttir, bæjar- stjóri Mosfellsbæjar. Gunnar segir ekki hafa verið rætt formlega í bæjarstjórn eða bæjar- ráði Garðabæjar hvort bærinn eigi að fylgja fordæmi Kópavogs eða annarra sveitarfélaga sem ákveðið hafa að gefa frítt í strætó – ýmist öllum eða ákveðnum hópum. „Ég hef ekki verið talsmaður þess að gefa frítt í strætó,“ segir hann. „En með þessum aðgerðum er að vissu leyti verið að stilla öllum sveitar- félögunum upp við vegg.“ Ragn- heiður er sammála. „Það hefur auð- vitað ruðningsáhrif að stærstu sveitarfélögin skuli ákveða að gera þetta.“ Sigurður Magnússon, bæjarstjóri Álftaness, segir sérkennilega að málum staðið. „Við höfum áhyggjur af þessari þróun mála í Strætó.“ Jónmundur Guðmarsson, bæjar- stjóri Seltjarnarness, segir bæjar- stjórnina ekki andvíga aðgerðinni í sjálfu sér, bærinn hafi talað fyrir samskonar tilraun. Betur hefði þó farið á því að slík ákvörðun hefði verið tekin í stjórn Strætó. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur frá áramótum gefið eldri borgurum ókeypis aðgang að strætó. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segist þó vera skýr talsmaður þess að sveitar- félögin gangi sameinuð í mál sem þessi. Annað gangi ekki upp. Þá segir hann mikilvægt að gengið verði til viðræðna við ríkisstjórnina um að hún beiti sér í þessum málum. Ármanni Kr. Ólafssyni, stjórnar- formaður Strætó bs., sagðist í útvarpsfréttum í gær lítast vel á þá tilraun sem Kópavogsbær hygðist leggja út í. Þó sagði Ármann, sem jafnframt er forseti bæjarstjórnar í Kópavogi, að óráðlegt væri að önnur sveitarfélög færu að fordæmi Kópa- vogsbæjar. Skynsamlegra væri að bíða og sjá hvort tilraunin í Kópa- vogi væri hagkvæm. Kollegarnir hissa á ákvörðun um Strætó Bæjarstjórar eru hissa á sinnaskiptum meirihlutans í Kópavogi hvað varðar Strætó. Kallað er eftir meira samráði. Búist er við hitafundi um málið 25. júní. Stjórnarfor- manni Strætó líst vel á tilraunina en biður aðra bæi að bíða eftir niðurstöðunni. Leiðtogi hryðju- verkasamtakanna Jemaah Islamiyah var handtekinn í síðustu viku ásamt næstráðanda sínum, að því er lögreglan á Indónesíu greindi frá í gær. Handtökurnar eru taldar vera mikið áfall fyrir samtökin sem eru sögð ábyrg fyrir hryðju- verkaárásunum á Balí árið 2002 ásamt fleiri árásum í Indónesíu, sem er fjölmennasta múslima- þjóð veraldar. Markmið Jemaah Islamiyah er að koma á fót íslömsku ríki í suðausturhluta Asíu. Liðsmenn samtakanna hafa staðið fyrir fjölda árása á kristna á svæðinu. Hryðjuverkafor- ingi handtekinn Hefur þú gefið blóð? Skoðar þú klám reglulega?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.