Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 10
Með fisk milli Egilsstaða og
Akureyrar flýgur Antonov-12 vél sem
rekin er af hinu kasakstanska ATMA Air.
Vélin var gerð árið 1973 í Sovétríkjunum.
Evrópskur flug-
rekstraraðili fengi
ekki leyfi til að reka
vélina í Evrópu. Þar
sem flugreksturinn er
skráður í Kasakstan
snýr málið öðruvísi
við, því vélin uppfyllir
kröfur Alþjóðaflug-
málastofnunar, sem
eru ekki eins strang-
ar.
Unndór Jónsson,
framkvæmdastjóri
fraktfélagsins Norðanflugs, sem leigir
þjónustu ATMA Air, staðfestir þetta en
segir ekkert að óttast. „Ef mér væri boðið
að fljúga í þessari vél til Belgíu myndi ég
stökkva um borð,“ segir hann. „Ef þær
væru ekki öruggar þá væru þær ekki að
fljúga.“
Útbúnaður vélarinnar er gamaldags og
til að fljúga henni þarf fimm menn, þar á
meðal flugvélstjóra, loftskeytamann og
siglingafræðing.
„Við fengum undanþágu hjá Flugmála-
stjórn og höfum verið í samræðum við hana
um þessar vélar. Það er ekki alveg fyrirséð
með hvernig það fer,“ segir hann.
Leyfi Flugmálastjórnar gilti í þrjár
ferðir og sú síðasta verður farin 17. júní.
Unndór heitir því að Norðanflug fljúgi
áfram eftir það, hvort sem það verði með
Antonov-vélum eða ekki.
Samkvæmt yfirliti frá Flugmálastjórn
hefur nokkrum sinnum verið veitt heimild
til svona flugs. Það er gert við sérstakar
aðstæður, til dæmis þegar hagsmunir
Íslendinga krefjast þess.
Pétur K. Maack flugmálastjóri telur að
svo hafi verið í þessu tilfelli. Engir aðrir
samningar hafi verið fyrir hendi til að
fljúga með fiskinn út.
Í yfirlitinu er einnig fjallað um sanngirni
þess að meiri kröfur séu gerðar til íslenskra
flugrekenda en til dæmis ATMA Air og
hvatt til þess að fara gætilega í þeim
efnum. Því hafi Flugmálastjórn ekki leyft
nema þrjú flug. Samgönguráðuneytið hafi
leyft þrjú til viðbótar, eftir kæru Norðan-
flugs. Ákvörðunin um að leyfa svona flug
sé „flugpólitísk“.
Spurður hvort hann telji flugið hættu-
laust segir Pétur það „alveg ljóst að þessi
flug uppfylla ekki þau skilyrði sem við
gerum til flugrekenda. Það er ekki í sama
flugöryggisflokki.“
Fengi ekki lofthæfisskírteini
Antonov-12 flugvélin frá Kasakstan sem flýgur með fisk milli Akureyrar og Egilsstaða uppfyllir ekki Evr-
ópustaðla. Hún gæti ekki fengið íslenskt lofthæfisskírteini. „Flugpólitísk ákvörðun,“ segir Flugmálastjórn.
Talsverð ölvun var á tjaldstæð-
inu Hömrum við Kjarnaskóg
aðfaranótt föstudags. Gestir
tjaldstæðisins og gæslumenn
kvörtuðu til lögreglu undan
hávaða og ölvun unglinga á svæð-
inu. Lögreglu gekk vel að stilla til
friðar og enginn var handtekinn.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu