Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 76
Listinn yfir þá söngvara og hljóm-
sveitir sem ætla að koma fram á
minningartónleikum um Díönu
prinsessu 1. júlí næstkomandi
verður sífellt stærri og glæsi-
legri og í gær bættust Anastacia,
Andrea Bocelli, Josh Groban og
Fergie úr Black Eyed Peas í hóp-
inn. Hjartnær tíu ár eru liðin frá því
að Díana lést í umferðarslysi
í París og af því tilefni hafa
synir hennar, prinsarnir
Vilhjálmur og Harry, skipu-
lagt tónleika sem fram fara
á Wembley-leikvanginum.
Tónleikarnir verða í raun
einn allsherjar söngleik-
ur þar sem listamennirn-
ir koma fram hver í sínu
lagi. Enginn annar en
Andrew Lloyd Webber sér um stjórn söng-
leiksins.
Meðal annarra sem hafa boðað komu
sína á Wembley þetta kvöld eru Take
That, Duran Duran, Bryan Ferry, Rod
Stewart, Kanye West og að sjálfsögðu Sir
Elton John, sem var náinn trúnaðarvinur
Díönu á meðan hún lifði.
Allir vilja spila til heiðurs Díönu
Gríman, íslensku leiklistar-
verðlaunin, voru haldin
í fimmta sinn í íslensku
óperunni í gærkvöldi.
Benedikt Erlingsson var
óumdeildur sigurvegari
kvöldsins.
Sýningin Dagur vonar hreppti
eftirsóttustu verðlaun Grímunnar
í gærkvöldi og var kjörin besta
sýning ársins. Leikfélag Reykja-
víkur setti upp sýninguna, sem
er eftir Birgi Sigurðsson, en
Hilmir Snær Guðnason leikstýr-
ir. Það var hins vegar áðurnefnd-
ur Benedikt sem stal senunni en
hann hlaut þrenn verðlaun.
Benedikt var kjörinn leikstjóri
ársins fyrir Ófögru veröld, einnig
í sviðsetningu Leikfélags Reykja-
víkur, og þá hlaut hann tvenn
verðlaun fyrir frammistöðu sína
í Mr. Skallagrímssyni, sem leik-
ari ársins og leikskáld ársins.
Þetta er í annað sinn sem Bene-
dikt reynist sigursæll á Grímunni
en fyrir tveimur árum var hann
valinn leikstjóri ársins þegar
hann stýrði Draumaleik, sem þá
var einnig valin besta sýning árs-
ins. Þetta er í fyrsta sinn sem
Hilmir Snær stýrir verðlauna-
leiksýningu en hann hefur tví-
vegis hlotið Grímuna fyrir best-
an leik í aðalhlutverki, árið 2003
fyrir Veisluna og í fyrra fyrir
frammistöðu sína í sýningunni
Ég er mín eigin kona.
Leikararnir Herdís Þorvalds-
dóttir og Róbert Arnfinnsson
hlutu heiðursverðlaun Leiklistar-
sambands Íslands í gær fyrir
ævistarf sitt í þágu leiklistar á
Íslandi. Voru þau hyllt af við-
stöddum í Óperunni í gær þegar
forseti Íslands, Herra Ólafur
Ragnar Grímsson, afhenti þeim
verðlaunin.
Úrslitin í gær komu fáum á
óvart og voru í takt við það sem
flestir gagnrýnendur höfðu spáð.
Dr. Jón Viðar Jónsson leiklist-
arfræðingur spáði Degi vonar
verðlaununum í viðtali við
Fréttablaðið fyrir skemmstu og
þá hefur Sveinn
Einarsson, leik-
húsfræðingur og
fyrrverandi Þjóð-
leikhússtjóri, látið
hafa eftir sér að
Dagur vonar sé í
hópi bestu leikrita
sem skrifuð hafa
verið hér á landi á
síðustu árum.
Benedikt hefur
hlotið einróma lof
fyrir túlkun sína á
Agli Skallagríms-
syni í leiksýningu
sinni sem sýnd er
á Landnámssetr-
inu í Borgarnesi.
Benedikt var ein-
mitt upptekinn við leik í sýning-
unni framan af kvöldi í gær en
var fluttur með þyrlu frá Borgar-
nesi til Reykjavíkur í gærkvöldi.
Benedikt mætti á hátíðina í tæka
tíð til að taka á móti verðlaunum
sínum.
Fyrr á árinu hlaut Benedikt
Samfélagsverðlaun Fréttablaðs-
ins sem uppfræðari ársins fyrir
Mr. Skallagrímsson. Þá sagði
Benedikt að vinsældir verksins
kæmu sér mikið á óvart. „Mér
datt ekki í hug að svona stór hluti
þjóðarinnar hefði þennan Íslend-
ingasagnanörd í sér,“ sagði Bene-
dikt.