Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Þetta kom nú þannig til að hann
var áberandi í Bandaríkjunum og
sölusvæði okkar þar efndi til smá
samstarfs við hann,“ segir Guð-
jón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair en á vefsvæði
tónleikaferðar Pete Best kemur
fram að flugfélagið styrkir ferðir
hans til Bandaríkjanna.
„Hann lék á tónleikum fyrir
okkur í Minneapolis og við styrkj-
um flugið hans á móti,“ bætir
Guðjón við. „Því má eiginlega
segja að við notfærum okkur
nafnið hans og hljómsveitina til
að kynna okkur þar vestra,“ segir
hann.
Á heimasíðu Dr. Gunna kemur
fram að einn lesandi síðunnar
taldi sig hafa barið Best augum
í Skífunni uppi á Keflavíkurflug-
velli. Guðjón taldi það alls ekki
ólíklegt enda millilentu flugvélar
Icelandair í Keflavík á leið sinni
vestur um haf.
Pete Best er sennilega eitt-
hvert þekktasta „no-name“ tón-
listarsögunnar. Hann var fyrsti
trommari Bítlanna en var rekinn
eftir að upptökustjórinn George
Martin lýsti því yfir við þá Paul
McCartney og John Lennon að
hann kynni ekki við trommuslátt
Best. Og var Ringo Star fenginn
í staðinn.
Eftirleikinn þekkja síðan flest-
ir því skömmu eftir að Best
hafði gengið út úr hljóðverinu
með trommukjuðana sína slógu
Bítlarnir öll met og urðu undir
eins að einhverju mesta æði sem
heimurinn hefur augum litið.
„Mér skilst reyndar að hann
hafi haft ágætt upp úr því að
vera trommarinn sem var rek-
inn úr Bítlunum,“ segir Guðjón
en viðurkenndi að hann hefði lítið
heyrt af afrekum Best á tónlistar-
sviðinu þrátt fyrir að hafa drukk-
ið tónlist Bítlana nánast með móð-
urmjólkinni.
Tónleikaferð Pete Best styrkt af IcelandairTeitur Þórðarson
Tugir vistkvenna á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni tóku síðastlið-
inn miðvikudag þátt í hinu árlega
Kvennahlaupi sem verður haldið
um allt land í dag.
Tóku þær forskot á sæluna og
fóru hringinn í kringum hjúkr-
unarheimilið, margar hverjar í
hjólastólum. Árangur hlaupsins
má sjá á heimasíðunni vinsælu
Youtube.com.
Ættingjar og starfsmenn voru
konunum til halds og trausts.
Var yngsti keppandinn fimm ára
en sá elsti 97 ára og voru þær
báðar að taka þátt í fyrsta skiptið.
Karlarnir áttu einnig hlut að máli
með því að afhenda konunum
verðlaunapeninga er þær komu í
mark, kyssa þær á kinnarnar og
gefa þeim djús. Inni í húsi beið
þeirra síðan djasskvartettinn Te-
pokar sem hélt uppi góðu stuði.
Þetta var annað árið í röð sem
Sóltún tekur þátt í hlaupinu og
að sögn Önnu Birnu Jensdóttur
framkvæmdastjóra hefur verið
mikil ánægja með þátttökuna.
Lifa konurnar lengi á þessum at-
burði. „Dæmi um það hvað þetta
er ánægjulegt og gefandi er að
einn íbúinn svaf með verðlauna-
peninginn og er örugglega ekki
búinn að taka hann af sér,“ segir
Anna Birna. „Við köllum þetta
að „fara Kvennahlaupið“ því
hérna eru 54 prósent af íbúunum
í hjólastólum og ekki margir af
hinum íbúunum geta sjálfir geng-
ið hringinn einir og óstuddir. En
við tökum virkan þátt, allir með
sínu nefi og sumir sem eru með
rafknúinn hjólastól settu bara í
hraðgír.“
Kvennahlaupið hefst sem fyrr
segir í dag.
Svaf með verð-
launapeninginn
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
Sigurður V. Steinþórsson, eig-
andi vefsíðunnar klam.is, hyggst
framleiða íslenskt netklám og
hefur auglýst eftir áhugasöm-
um „leikurum“ til að taka þátt.
Þetta kemur fram á Panama.is Að
sögn Sigurðar hefur fjöldi fólks
sýnt verkefninu áhuga og hann er
þegar kominn með sex fyrirsæt-
ur; tvær stelpur og fjóra stráka.
Þegar Fréttablaðið hafði sam-
band við Sigurð kvaðst hann
hvergi banginn við löggjafar-
valdið og benti á að þrátt fyrir
að bannað væri að sýna og dreifa
klámi fengi Bleikt & Blátt að koma
óhindrað út. „Ég ætla bara að láta
reyna á þetta,“ segir Sigurður,
sem er pizzusendill hjá Domino‘s
um þessar mundir. Sigurður taldi
líklegt að efnið myndi birtast á
vefsíðunni og að í fyrstu myndu
þetta vera ljósmyndir. Leikið efni
væri hins vegar ekki út úr mynd-
inni. Hann var þó ekki kominn
með dagsetningu á því hvenær
þetta verkefni færi af stað.
Að sögn Sigurðar stendur hann
einn í þessari framleiðslu en
býður engu að síður upp á launa-
greiðslur fyrir þátttöku. „Fólk
getur fengið allt upp í 150 þúsund
krónur í laun,“ segir Sigurður og
bætti því við að þekktur aðili úr
þjóðlífinu hefði sýnt þessu mikinn
áhuga en vildi ekki gefa upp hver
það væri.
Samkvæmt 210. grein al-
mennra hegningarlaga segir að
„ef klám birtist á prenti, skal sá,
sem ábyrgð ber á birtingu þess
eftir prentlögum, sæta sektum
eða fangelsi allt að 6 mánuðum.
Sömu refsingu varðar það að búa
til eða flytja inn í útbreiðsluskyni,
selja, útbýta eða dreifa á annan
hátt út klámritum, klámmynd-
um eða öðrum slíkum hlutum, eða
hafa þá opinberlega til sýnis, svo
og að efna til opinbers fyrirlestr-
ar, eða leiks, sem er ósiðlegur á
sama hátt.“