Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 4
 Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur ítrekað við stjórn Lífsýnasafns Rannsóknar- stofu Háskólans í meinafræði fyrri beiðni dómsins um að gerð verði mannerfðafræðileg rann- sókn á lífsýnum úr Lúðvík Gizurar- syni, móður hans, svo og Her- manni Jónassyni fyrrum forsætisráðherra. Ítrekunin var send formanni stjórnar safnsins 11. júní. Lúðvík og tvö börn Hermanns hafa átt í langvinnum málaferlum. Lúðvík krafðist þess að gerð yrði mannerfðafræðileg rannsókn á lífsýnum úr móður hans og Her- manni til viðurkenningar á því að Hermann sé faðir hans. Málið hófst með því að Lúðvík höfðaði véfengingarmál árið 2003 fyrir dómstólum til staðfestingar á því að Gizur, eiginmaður móður hans, væri ekki faðir hans. Dómur gekk í því máli í byrjun árs 2004. Sannað hafði verið með mann- erfðafræðilegum rannsóknum að Gizur gæti ekki verið faðir Lúð- víks. Lúðvík er því föðurlaus í dag. Faðernismálið var síðan þingfest haustið 2004 og hefur síðan verið rekið ýmist fyrir héraðsdómi eða Hæstarétti. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði þrisvar sinnum heimilað mannerfðafræðilega rannsókn, en börn Hermanns jafnharðan kært til Hæstaréttar, sem hnekkti dóm- unum þar til 9. mars að hann stað- festi úrskurð héraðsdóms. Stjórn lífsýnasafnsins taldi það orðalag í dómi Hæstaréttar, „...að þess væri farið á leit...“ við Rann- sóknarstofu að rannsóknin yrði gerð, óljóst, og skrifaði Héraðs- dómi bréf þess efnis. Í svari dóms- ins er vitnað í dóm Hæstaréttar sem ótvírætt heimili mannerfða- fræðilega rannsókn á umræddum lífssýnum. Beiðni þar um er jafn- framt ítrekuð eins og áður sagði. Jóhannes Björnsson, formaður stjórnar Lífsýnasafns RH, kveðst ekki geta tjáð sig um hvort rann- sóknin á lífsýnunum sé hafin. „Nú liggur fyrir úrskurður hér- aðsdóms um að hún verði gerð og hún verður gerð,“ segir Jóhannes. Spurður um hversu langan tíma rannsókn af þessu tagi taki, segir hann gera megi ráð fyrir tveimur til fjórum vikum. Spurður hvers vegna rannsókn hefði ekki hafist strax eftir dóm Hæstaréttar segir Jóhannes skýringar vera á því. „Hæstiréttur heimilaði einungis rannsókn, en nú liggur fyrir þriggja eða fjögurra daga gamall úrskurður frá Héraðsdómi um að hún skuli gerð. Hún verður gerð og niðurstöður munu liggja fyrir á næstu vikum.“ Ítrekar beiðni um rannsókn á lífsýnum Dómari við Héraðsdóm hefur ítrekað beiðni til stjórnar Lífsýnasafns Rann- sóknarstofu Háskólans í meinafræðum þess efnis að gerð verði mannerfða- fræðileg rannsókn á sýnum úr Hermanni Jónassyni og Lúðvíki Gizurarsyni. Viðræður Serbíu við Evrópusam- bandið, sem eru undirbúningur að hugsanlegri framtíðaraðild landsins, voru á miðvikudag teknar upp að nýju eftir árshlé. Þeim hafði verið slegið á frest vegna skorts á að stjórnvöld í Belgrad hefðu uppi á og framseldu eftirlýsta meinta stríðsglæpamenn. Endurupptaka viðræðna um svonefndan Stöðugleika- og aðlögunarsamning er liður í viðleitni ESB til að hjálpa Serbum að segja skilið við þjóðernisein- angrunarstefnu liðinna ára. Fulltrúar frá Serbíu sátu jafnframt í gær í fyrsta sinn fund varnarmálaráðherra NATO-ríkja og samstarfsríkja þeirra í Samstarfi í þágu friðar. Viðræður tekn- ar upp að nýju Eftir atburði síðustu fimm daga er Palestína klofin í tvennt. Gaza-ströndin og Vestur- bakkinn, sem liggja sitthvoru megin við Ísrael, eru nú undir stjórn sitthvorrar palestínsku fylkingarinnar þar sem Hamas stýrir Gaza-ströndinni og Fatah fer með völd á Vesturbakkanum. Mahmoud Abbas, forseti Palest- ínu og leiðtogi Fatah, skipaði í gær fjármálaráðherra Palestínu, hinn óháða Salam Fayyad, forsætisráð- herra í stað Ismail Haniyeh, leið- toga Hamas, sem hann rak daginn áður ásamt ríkisstjórninni sem fylkingarnar mynduðu fyrir þrem- ur mánuðum. Haniyeh neitar hins vegar að láta af embætti og segir stöðu ástands slíka að ekki sé hægt að taka einhliða ákvarðanir. Abbas lýsti yfir neyðarástandi eftir að ljóst var að Hamas hafði náð yfirráðum á Gaza og hyggst stjórna með forsetatilskipunum þar til aðstæður bjóði upp á snemmbúnar kosningar. Tilskipun Abbas um myndun nýrrar ríkis- stjórnar mun ekki breyta því að Hamas hefur stjórn á Gaza en gæti styrkt frekar völd Fatah yfir Vesturbakkanum og lagt grund- völl að tveimur aðskildum palest- ínskum stjórnvöldum. Yfir níutíu manns létust í átök- unum á Gaza síðustu daga og tugir særðust. Mannræningjarnir sem hafa haft Alan Johnston, fréttamann BBC, í haldi á Gaza tilkynntu í gær að þeir myndu sleppa honum innan sólarhrings eftir samningaviðræður við Hamas. Stuttu áður hafði Hamas heitið því að tryggja lausn Johnstons, sem virðist vera til marks um viðleitni samtakanna til að fá ekki alþjóðasamfélagið upp á móti sér. Hamas þykir með þessu hafa sent skilaboð til herskárra hópa um að þau hyggist koma á reglu á svæðinu. Johnston hefur verið í haldi í þrjá mánuði, lengur en nokkur annar vestrænn fréttamaður sem hefur verið rænt á Gaza. Mál manns, sem grunaður er um að hafa falsað peninga og komið þeim í umferð hefur verið sent til ákæruvaldsins. Maðurinn, sem er um tvítugt, var úrskurðaður í gæsluvarðhald í lok apríl. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu hefur farið með rannsókn málsins. Maðurinn játaði sök við yfirheyrslur. Um allnokkra fjárhæð er að ræða sem hann falsaði með tölvubúnaði. Sam- kvæmt upplýsingum Fréttablaðs- ins eru allir fölsuðu seðlarnir komnir í leitirnar. Allt að tólf ára fangelsi getur legið við því að falsa, stuðla að dreifingu eða koma fölsuðum peningaseðlum í umferð. Peningafalsari til ákæruvalds Nokkrir vinstri- flokkar á Norðurlöndunum skora á ríkisstjórnir landa sinna að viðurkenna sjálfstæði Vestur- Sahara. Landið hefur verið hersetið af Marokkó í 35 ár, síðan Spánverjar yfirgáfu þessa fyrrverandi nýlendu sína. Einnig segja vinstriflokkarnir að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi nýlega bókað að unnið skuli að því að Vestur- Sahara fari með stjórn eigin mála. Samningaviðræður um stjórnskipan fari fram í júní. „Íbúar Vestur-Sahara þurfa því nauðsynlega á stuðningi að halda í sjálfstæðisbaráttu sinni næstu daga,“ segir í yfirlýsingu. Ísland aðstoði Vestur-Sahara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.