Fréttablaðið - 27.07.2007, Side 18

Fréttablaðið - 27.07.2007, Side 18
fréttir og fróðleikur Fótbolti og fjör á Reycup Langvinsælasti samskiptavefur heims Brimnesið, nýr frystitogari útgerðarfélagsins Brims hf., kom til hafnar í gær frá Noregi. Þormóður rammi- Sæberg hf. fær afhenta tvo eins togara og Brimnesið árin 2008 og 2009. Starfs- menn útgerðarfélaga segja að þau muni þurfa að selja skip út af kvótaskerðing- unni. „Nauðvörn“ segir útgerðarstjóri Samherja. „Það er alltaf gaman að fá nýtt skip til landsins. Það er ekki bara helvítis barlómur í sjávarútvegin- um, þorskniðurskurður og annað slíkt,“ segir Guðmundur Kristj- ánsson, forstjóri Brims, um komu nýja skipsins til landsins. Guðmundur segir að Brimnesið sé fyrsta skipið sem Brim kaupi síðan árið 2003, þegar fyrirtækið keypti togarann Guðmund í Nesi. Brimnesið mun halda til veiða á Íslandsmiðum strax á laugardag- inn segir Guðmundur. Guðmundur segir að Brimnesið sé afar tæknivætt skip, það geti dreg- ið þrjú troll í einu á rækjuveiðum, sem auki aflann mikið. Auk þess segir Guðmundur að skipið sé búið rafmagnsspili sem noti miklu minni orku og þegar að trollinu sé slakað út sé framleitt rafmagn inn á kerfi skipsins. „Það eru mjög fá skip sem hafa slíkt spil hér á landi, ekkert af stóru skipunum. Við munum því nota miklu færri lítra af olíu til að veiða hvert kíló af fiski,“ segir Guðmundur. Spurður hvort hann telji útgerðar- félög munu fækka skipum eftir kvótaskerðingu ríkisstjórnarinn- ar á þorski á næsta fiskveiðiári segir hann að tilhneigingin í sjáv- arútvegi landsins síðastliðin tut- tugu ár hafi verið sú að skipum hafi fækkað. „Þessi þróun mun ekki hætta núna en kvótaskerð- ingin mun þrengja ennþá meira að útgerðarfélögum. Þau munu bara halda áfram að fækka skipum til að gera reksturinn arðbærari,“ segir Guðmundur. Brimnesið er eins skip og tveir nýir togarar sem Þormóður rammi-Sæberg hf. er með í smíð- um hjá skipasmíðastöðinni Sol- strand As í Noregi, en Brimnesið var byggt þar árið 2003. Togararn- ir tveir, sem Þormóður rammi fær í nóvember 2008 og í apríl 2009, kosta samtals um fjóra milljarða króna. Ólafur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Þormóðs, segir að eini munurinn á skipunum sem þeir muni fá og Brimnesinu sé að þeir verði búnir öðrum veiðar- færum. Hann segir að þeir verði hannaðir til þess að draga tvö troll en ekki þrjú. Ólafur segir að Þormóður rammi hafi selt einn togara fyrirtækisins og hyggist selja tvo til viðbótar því þeir séu orðnir gamlir. „Þessi nýju skip eru miklu hagkvæmari: eitt skip á að geta afkastað eins miklu og tvö af þessum gömlu.“ Ólafur segir að forsvarsmenn Þormóðs ramma hafi vissulega haft væntanlega kvótaskerðingu á þorski í huga þegar þeir keyptu togarana tvo en að þá hafi ekki grunað að kvótinn yrði skertur eins mikið og raunin varð. „Við töldum að kvótinn myndi hugsan- lega fara niður fyrir 150 þúsund tonnin en aldrei niður fyrir 130 þúsund tonn. En við erum samt sannfærðir um að þetta hafi verið rétt hjá ríkisstjórnni, öfugt við það sem margir halda.“ Ólafur segir að sér þyki afar sennilegt að útgerðarfélög muni annað hvort fækka skipum hjá sér í kjölfar kvótaskerðingarinnar eða stytta úthöld, stunda veiðar í skemmri tíma en síðustu ár. Andrés Guðmundsson, útgerðar- stjóri hjá Þorbirni fiskanesi hf., segir að fyrirtækið hafi hætt við að kaupa sér skip þegar fréttist af væntanlegri kvótaskerðingu, og það hafi selt eitt af skipum sínum í mars. „Við ætlum ekki að fækka skipum að svo stöddu. Ætli við styttum ekki úthaldið hjá okkur frekar og sjáum svo til; vonum að menn sjái villu síns vegar og auki kvótann aftur,“ segir Andrés. Hann er sannfærður um að útgerðarfélög muni annaðhvort fækka skipum hjá sér eða stytta úthaldið. „Það gefur augaleið,“ segir Andrés. Kristján Vilhelmsson, útgerðar- stjóri hjá Samherja, segir að fyrir- tækið ætli líklega að fækka um einn togara hjá sér út af kvóta- skerðingu ríkisstjórnarinnar. Hann segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um það hvaða togari það verði en að það muni skýrast með haustinu. „Við munum fækka skip- um eftir svona sex mánuði,“ segir Kristján. „Útgerðarfélög um allt land munu þurfa að fækka skipum hjá sér, það bara hlýtur að vera. Ég vil kalla þetta nauðvörn hjá útgerðar- félögunum,“ segir Kristján. Hann segir að Samherji muni líklega verða af um milljarði króna vegna kvótaskerðingarinnar. Enn frem- ur muni fyrirtækið þurfa að segja um þrjátíu starfsmönnum upp og í heildina muni líklega um tvö- hundruð manns starfsmenn í sjáv- arútvegi í Eyjafirði missa vinn- una. Þrír eins frystitogarar til landsins

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.