Fréttablaðið - 03.08.2007, Side 1

Fréttablaðið - 03.08.2007, Side 1
Föstudagur *Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í maí 2007 Lestur meðal 18–49 ára á höfuðborgarsvæðinu 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 37% B la ð ið M o rg u n b la ð ið F ré tt a b la ð ið D V 38% 74% 11% D „Straight friendly“ matseðill Búið er að setja upp markaðs-tjald þar sem afslátturinn er allt að 70 prósent Búið er að setja upp markaðstjaldfyrir utan versl i Matvara af eyfirskum upp-runa verður meðal söluvara á markaðinum í gamla bænumað Laufási í Eyjafirði 6. ágústmilli kl. 13.30 og 16. „Við verðum með alls konar brauð, bæði fjölþjóðleg og séríslensk, svo sem franskbrauð, fjallagrasabrauð, sveitabrauð og rúgbrauð. Öll eru þau heimabökuð,“ er það fyrsta sem Ingibjörg Sigurlaugsdóttir, staðarhaldari í Laufási, nefnirþegar hún er beðin að lýsa matvörunum á Laufásmarkað-inum á mánudaginn. Fleira telur hún upp. „Við erum með rabarbarasultu, rabarbarasaft,berjasultu og rabarbarahlaup. Svo höfumvið bakað rabarbarapæ. Þetta flokkast allt undir mat úr héraði. Við erum líka að selja harðfisk utan af Grenivík og nýuppteknar kartöflur úreyfirskri mold.“ Einnig verða þjóðlegar veitingar seldar á gamlaprestssetrinu. Q-bar opnar eldhúsið fyrir hommum, lesbíum og öllum hinum. Við Ingólfsstræti í Reykjavík var fyrir nokkrum mánuðum opnaður skemmtistaðurinn Q-bar. Þar koma samkynhneigðir saman ásamt gagnkyn- hneigðum vinum sínum, en staðurinn er það sem kall- ast „Straight-Friendly“ – öllum opinn án tillits til kyn- hneigðar þó að samkynhneigðir séu þó í meirihluta. Fram til þessa hefur staðurinn verið rekinn sem bar og skemmtistaður á kvöldin og um helgar, en nú hafa Óli Hjörtur Ólafsson og Anna Brá Bjar dó rekstrarstjórar einnig ur að koma á borðið og fólk kann vel að meta það. Fyrsta daginn var mjög gott að gera hjá okkur miðað við það að við auglýstum ekki neitt og allir voru mjög ánægðir,“ segir Óli.Fyrir framan Q-bar er rúmgóður pallur þar sem gestir geta setið úti ef vel viðrar og hægt er að yfir- skyggja pallinn ef tilefni er til. Opnunartími staðar- ins hefur verið lengdur eftir að eldhúsið opnaði, en eldhúsið er opið frá klukkan 11.30 fyrir hádegi til klukkan níu á kvöldin, alla daga ikAnnar k kk E N N E M M / S ÍA ÚTSÖLULOK 90% Ritstýrir nýju ung- menningarblaði „Mér þykir þetta mjög miður. Ég ætlaði aldrei að gera þetta,“ sagði 27 ára hollenskur maður við aðalmeðferð í fíkniefna- máli í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Hann og nítján ára hollensk stúlka viðurkenna bæði að hafa flutt kókaín til landsins innanklæða og innvortis í apríl síðastliðnum. Fólkið var handtekið af tollvörðum í Leifsstöð við komuna frá Amsterdam 6. apríl með samtals tæplega 1.100 grömm af kókaíni innvortis og innanklæða. Hann var með um 750 grömm og hún ríflega 300. Þau hafa verið í gæsluvarðhaldi síðan. Þau segjast bæði hafa haldið í fyrstu að þau ættu að fara ein í ferðina, og hvorugt segist hafa vitað hversu mikið magn efna hitt hafði meðferðis. Stúlkan og maðurinn eru bæði fædd á eyjunni St. Vincent í Karíbahafi og þekktust þaðan í sjón. Maðurinn, sem er nær algjörlega heyrnarlaus, hafði búið í nokkur ár í Hollandi fyrir smyglið. „Ég var heimilislaus og átti enga peninga,“ sagði hann. „Ég hafði þurft að greiða skuldir og fara í læknisaðgerð út af eyrunum á mér.“ Stúlkan hefur nýlokið framhaldsskólanámi í Hollandi og hefur haldið áfram námi í gæsluvarðhaldi hér. Hún hyggst taka próf nú í ágúst. Bæði stúlkan og maðurinn fullyrða að aðrir hafi fengið þau til verksins. Stúlkan segir konu að nafni Ivette hafa skipulagt smyglið en maðurinn nefnir karlmann, Mario að nafni. Þau dvöldu í sama húsi daginn fyrir ferðina en segjast lítið sem ekkert hafa hist. „Við máttum ekki tala saman og vorum látin dvelja í aðskildum herbergjum,“ sagði stúlkan. Þau áttu síðan að þykjast vera par í ferðinni. „Þegar ég var að koma fíkniefnunum fyrir inni í mér þá kastaði ég þeim upp þannig að ég þurfti að koma hluta þeirra fyrir í endaþarmi,“ sagði maðurinn. Á flugvellinum í Amsterdam var fólkið stöðvað vegna þess hve illa farið vegabréf mannsins var. Tollverðir leituðu að fíkniefnum á þeim. „Þeir leituðu ekki vel, því þá hefðu þeir fundið efnin,“ sagði maðurinn. Þau voru að verða of sein í flugið svo leitinni var hætt. Maðurinn segir tollverðina úti hafa sagt þeim að þeir myndu hafa samband við yfirvöld á Íslandi um að leita betur á þeim. Stúlkan segist ekki vita hvort hún hafi átt von á greiðslu fyrir verkið umfram ferðalagið til Íslands. „Ég vildi gera þetta því mig langaði í ferðalag. Mig langaði að komast burt frá Hollandi,“ sagði hún. Maðurinn sagðist hafa verið lofað 7.400 evra greiðslu, sem jafngildir um 640 þúsund krónum. Vildi borga heyrnaraðgerð Tveir Hollendingar viðurkenna að hafa flutt inn rúmt kíló af kókaíni. Vafamál hvort þeir stóðu saman að innflutningi efnisins. Leitað var á fólkinu á leið frá Amsterdam. Íslensk yfirvöld voru beðin að leita betur. GSM-samband er komið á í Flatey á Breiðafirði. Fólk í eynni vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar farsímar tóku að hringja á þriðjudag. Áður hafði verið til- kynnt að GSM-sambandi yrði komið á í Flatey og á hluta af sunnanverð- um Vestfjörðum í nóvember. Í vikunni fór kvikmyndatökufólk að streyma til eyjarinnar með Balt- asar Kormák í fararbroddi til að taka upp myndina Brúðgumann. „Við spurðumst fyrir um það hjá Símanum hvort við gætum verið nettengd í eynni og hvort hægt væri að liðka til með það,“ sagði Agnes Johansen, framleiðandi kvikmyndarinnar. „Þá var okkur sagt að það væri langt komið með GSM-samband og að þeir ætluðu bara að nota tækifærið og drífa í þessu.“ Viðbrögð íbúa og gesta í Flatey við GSM-sambandinu eru blendin. Á Hótel Flatey er búið er að hengja upp miða á hótelinu þar sem stend- ur: „Góðir gestir, vinsamlega notið ekki GSM-síma á hótelinu, verönd- inni, útiborðum eða í veitingasal. Takk fyrir að varðveita friðinn í Flatey.“ „Menn verða bara að læra að slökkva á símum og varðveita frið- inn sem er það sem fólk sækist eftir hér,“ segir Álfheiður Ingadótt- ir, einn af eigendum hótelsins. Óvænt símasamband í Flatey Þjóðhátíðargestum í Eyjum var ráðlagt að gista ekki í tjöldum sínum í Dalnum í fyrrinótt vegna veðurútlits. Starfsmenn þjóðhátíðarnefnd- ar gengu á milli tjalda og buðu fólki að gista í íþróttahúsi í staðinn, endurgjaldslaust. „Við vildum bara fyrir- byggja að tjöldin fykju og fólkið lenti í slæmu veðri,“ segir Tryggvi Már Sæmunds- son, sem er í nefndinni. „Flestir tóku mjög vel í þetta, en einhverjir voru eftir í dalnum.“ Hann segir veðrinu eiga að slota á hádegi í dag, og þá muni Dalurinn aftur fyllast af tjöldum. Yfir sextíu fíkniefnamál hafa komið upp á landinu öllu síðan fíkinefnaeftirlit lögreglu vegna verslunarmannahelgar- innar hófst mánudaginn 23. júlí. Páll Winkel aðstoðarlög- reglustjóri segir magnið heldur meira en undanfarin ár, enda sé meiri áhersla lögð á eftirlit en áður. Beðnir að gista ekki í Dalnum 3. ÁGÚST 2007 Silvía syngur fyrir samkynhneigða Svía Björgólfur og bílarnir Elma Lísa og Reynir Lyngdal selja íbúðina 30 álitsgjafar velja næsta forsetaefni SNIÐIN FYRIRBESSASTAÐI Sniðin fyrir Bessastaði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.