Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 54
Vörur hönnunarhópsins Vík
Prjónsdóttir eru nú til sölu í
New York. Fimmmenningarnir
eru með kynningarfulltrúa
til að koma sér á framfæri
vestra.
Teppasería og húfur með yfirvarar-
skegg frá íslenskum hönnuðum eru
nú til sölu í búðinni Scandinavian
Grace í New York en frá þessu er
greint á heimasíðu bandaríska Vogue,
Style.com. Það er hönnunarhópurinn
Vík Prjónsdóttir sem hannar vörurn-
ar sem fást einnig í Kronkron á Vita-
stíg, í Þjóðminjasafninu og Epal.
„Þetta hefur verið í farvegi lengi. Það
hafa birst greinar um okkur í banda-
rískum blöðum og eftir það fór að
myndast eftirspurn eftir vörunum.
Við ákváðum svo að kynna verkefnið
á blaðamannafundi og blaðamaður
frá Style.com kom þangað. Einnig
erum við komin með PR-manneskju
sem sér um að koma okkur inn á
bandarískan markað. Viðtökur gesta
á blaðamannafundinum voru mjög
góðar og fólk sýndi teppunum mikinn
áhuga þrátt fyrir steikjandi hita úti
fyrir,“ segir Brynhildur Pálsdóttir,
ein fimmmenninganna í Vík Prjóns-
dóttur.
„Við erum bæði með seríu af tepp-
um og svona skegghúfur í sölu en við
hönnum allar vörurnar saman sem
hópur. Þetta er framleitt í Vík í Mýr-
dal af Víkurprjóni og við sækjum
mikið innblástur í umhverfið og sög-
urnar sem koma þaðan. Varan er
þannig tengd uppruna sínum en það
skiptir máli í dag þar sem hlutir eru
oft fjöldaframleiddir við aðstæður
sem maður veit ekki nema séu mjög
slæmar.“
Aðspurð hvað sé fram undan hjá
hinum spennandi hönnunarhópi segir
hún: „Við munum fylgja þessu eftir
og vinna í því að koma vörunum í sölu
í fleiri búðum. Þetta tekur allt sinn
tíma. Í október höldum við svo til
Oslóar þar sem við sýnum vörurnar
okkar á sérstöku hönnunar- og arki-
tektasetri.“
Útgáfufyrirtæki
rapparans
Eminem, Eight
Mile Style, hefur
höfðað mál gegn
tölvufyrirtækinu
Apple fyrir að
selja tónlist hans
á iTunes án leyfis.
Í málshöfðun-
inni kemur fram
að um sé að ræða
á milli 70 til 80
lög, þar á meðal
lög af plötunni
The Eminem
Show.
Eminem hefur
áður lent í útistöðum við Apple
því árið 2004 höfðaði hann mál
gegn fyrirtækinu. Þá hélt hann
því fram að það hefði notað lag
hans Lose Yourself í sjónvarps-
auglýsingu án hans leyfis.
Höfðar mál
gegn Apple
Idol-dómarinn og sjónvarpsþátta-
framleiðandinn Simon Cowell
ætlar að búa til kvikmynd um tíu
einstaklinga sem reyna að komast
áfram í hæfileikakeppni í líkingu
við Idol. Hefur myndin fengið
nafnið Star Struck.
Innblásturinn að myndinni fékk
Cowell úr dans- og söngvamynd-
inni Fame eftir Alan Parker sem
kom út árið 1980. „Sagan er sögð
út frá sjónarhóli þessara tíu kepp-
enda,“ sagði Cowell, sem mun
framleiða myndina. „Við viljum að
þetta verði söngleikjaútgáfa af
Rocky. Saga um lítilmagnann sem
fær mann til að líða vel.“
Að sögn Cowells er kjörið að
nota raunveruleikaþátt eins og
Idol sem sögusvið myndarinnar.
„Fame fjallaði um ungt fólk sem
vildi slá í gegn og til að gera það
skráði það sig í söng- og leiklistar-
skóla. Núna, 25 árum síðar, skrá
allir sem vilja verða frægir sig í
American Idol.“
Býr til Star Struck
Söngkonan Lísa Einarsdóttir hefur sent frá
sér lögin Ferð ekki fet og Ég er að leita að
þér. Eru þau að finna á safnplötunni Gleði-
legt sumar sem kom út á dögunum.
Bæði lögin hafa fengið töluverða spilun í
útvarpinu og er lagið Ég er að leita að þér
áberandi um þessar mundir. „Ég er mjög
ánægð með þessar viðtökur,“ segir Lísa, sem
var áður í hljómsveitinni Ísafold. „Ég er að
byrja með sólóferil og stefni á að gefa út
plötu fyrir jólin 2008.“
Áður en Lísa gekk til liðs við Ísafold fyrir
tveimur árum gaf hún út lagið Litir, sem er
eftir Einar Bárðarson, sem hefur verið henni
til halds og trausts varðandi sólóferilinn.
Meðfram sólóferlinum er Lísa að læra
djasssöng í FÍH hjá Kristjönu Stefánsdóttur.
Nánari upplýsingar um þessa efnilegu
söngkonu má finna á síðu hennar, myspace.
com/lisaeinars.
Söngkonan Lísa hefur sólóferil sinn
Sýningar haustsins komnar í sölu á netinu!
Miðasala á netinu!
www.leikhusid.is
Hannes Pétursson, hagfræðinemi og geimfari, treystir á reiknivélar og geimskip frá HP.
HP Compaq 6710b
Verð: 149.900 kr.