Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 58
Hefur bætt sig með vinstri en er réttfættur
Glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin
í punktakeppni með forgjöf 24/28.
Einnig verða veitt verðlaun fyrir
besta skor án forgjafar.
Nándarverðlaun á 4. 9. 11. og 17. holu.
Þátttökugjald kr. 3.500. Súpa og brauð innifalið.
Opna Carlsberg fer fram á Vífilsstaðavelli, á frídegi verslunarmanna,
mánudaginn 6. ágúst. Skráning á www.golf.is.
P
IP
A
R
• S
ÍA
Mark átta mínútum fyrir
leikslok dugði Häcken til að kom-
ast áfram úr fyrstu umferð UEFA-
keppninnar. Logi Ólafsson tapaði
því sínum fyrsta leik með liðið en
hann gerði fimm breytingar á
byrjunarliði KR frá síðasta leik í
fyrsta Evrópuleiknum á KR-vell-
inum í fjórtán ár. KR dugði marka-
laust jafntefli til að komast áfram
og greinilegt var að dagsskipunin
var einföld, að taka engar áhættur
og reyna svo að sækja hratt á
fáum mönnum.
Leikmenn Häcken virkuðu
frískir með léttleikandi og
skemmtilegt lið sem gerði hvað
það gat til að brjóta vörn KR á bak
aftur. Það gekk ekki vel, vörnin
var sterk og Svíarnir fengu aðeins
hálffæri ef frá er talið skot Dioh
Williams rétt framhjá snemma
leiks. Leikmenn Häcken pressuðu
en það leystu KR-ingar vel.
KR vildi fá víti í fyrri hálfleik
en annars var sóknin fámenn þar
sem Björgólfur Takefusa barðist
nánast einn. Hann gerði vel og olli
nokkrum usla en marktækifærin
voru af skornum skammti. Skalli
Gunnlaugs Jónssonar á lokamín-
útu fyrri hálfleiks var varinn á
línu og staðan í hálfleik marka-
laus.
Häcken var meira með boltann í
síðari hálfleik og reyndi að sækja
markið sem það þurfti. Á tímum
var sóknarþunginn mikill og meðal
annars varði Stefán Logi langskot
Williams vel auk þess sem KR
bjargaði á línu. Þess á milli sóttu
leikmenn Häcken lítið og sköpuðu
engin vandræði fyrir KR.
Sóknarleikur heimamanna var
áfram fámennur en liðið lék af
mikilli skynsemi og gaf fá færi á
sér. Gestirnir voru áhugalausir en
neistinn í leikmönnum KR sást
vel, þeir ætluðu að sýna sig fyrir
nýja þjálfaranum og halda Evr-
ópudraumnum lifandi.
Hann var þó skotinn niður átta
mínútum fyrir leikslok þegar
Paulo Oliveira skoraði með skalla
algjörlega upp úr þurru eftir að
Stefán Logi kom of langt út úr
marki sínu. Augnabliks einbeit-
ingarleysi hjá vörn og markmanni
og KR var refsað grimmilega.
Þrátt fyrir að leggja allt í sölurn-
ar náði KR ekki að jafna. Sigmund-
ur Kristjánsson átti gott skot sem
og Björgólfur en heppnin var ekki
með heimamönnum. Häcken vann
leikinn 1-0 og komst áfram saman-
lagt 2-1.
Evrópuævintýri KR er þar með
lokið í ár og Logi tapaði sínum
fyrsta leik með KR. Leikaðferð
hans var mjög nálægt því að ganga
upp en herslumuninn vantaði.
Ari Freyr Skúlason, leikmaður
Hacken, komst vel frá sínu í leikn-
um í gær og átti nokkra lipra
spretti. Hann var eðlilega mjög
sáttur með úrslit leiksins. „Ég er
himinlifandi með að komast áfram.
Þetta hefði getað dottið báðu
megin, KR átti mjög fín færi í
leiknum og Óskar átti sérstaklega
góða spretti. Hvort sem maður sé
að spila í Svíþjóð eða annarsstaðar
er alltaf erfitt að koma á KR-völl-
inn og stuðningsmenn þeirra voru
til fyrirmyndar. Við urðum að
skora eitt mark og það tókst. Þetta
var sætt,” sagði Ari Freyr Skúla-
son, leikmaður Häcken, og tók
fram að það væri alltaf gaman að
spila á Íslandi.“
KR var hársbreidd frá því að komast áfram í Evrópukeppni félagsliða en 1-0
tap gegn Häcken í gær gerði þann draum að engu. KR-ingar gerðu sig seka um
slæm mistök á lokakaflanum og sænska liðið refsaði þeim grimmilega.
Logi Ólafsson, þjálfari
KR, var hreinskilinn í leikslok.
„Markið kom eftir mistök af
okkar hálfu en við fengum fullt
af möguleikum til að klára leik-
inn. Ég viðurkenni að þetta var
erfitt í byrjun og menn voru
stressaðir. Það var greinilegt að
leikmenn vantaði trú á sjálfa
sig,“ sagði Logi sem horfir björt-
um augum fram á veginn.
„Eins og ég sagði við strákana
þá er þetta ekki það mót sem við
einblínum mest á þrátt fyrir að
það hefði verið gaman að fara
áfram. Nú drögum við bara það
jákvæða úr þessum leik fyrir
framhaldið og skiljum hitt eftir.
Það er liður í því að vinna að
bættu sjálfstrausti,“ sagði Logi.
Þjálfarinn virðist enn ekki hafa
fengið samið um sig lag af stuðn-
ingsmönnum KR sem sungu
aftur á móti hástöfum fyrir Teit
Þórðarson í leiknum.
Rúnar Kristinsson játti því að
herslumuninn hefði vantað hjá
KR. „Við fengum á okkur klaufa-
legt mark eins og gerist í boltan-
um. Við spiluðum eins og við
gerðum í Svíþjóð en náðum upp
meira spili. Menn voru frískari
núna og vildu láta gott af sér
leiða þrátt fyrir að spilið hafi
dottið niður inn á milli. Við þurft-
um að halda hreinu til að komast
áfram og við vorum ekki langt
frá þessu en héldum bara ekki út
allan leikinn,“ sagði Rúnar.
Við héldum bara ekki út