Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 50
Sænski kvikmyndaleik-
stjórinn Ingmar Berg-
man lést á dögunum.
Hann lét eitt sinn hafa
eftir sér að hann von-
aðist til þess að verða
aldrei svo gamall að
hann yrði trúaður. Það
er spurning hvort hon-
um varð að ósk sinni, en hann hefði
orðið níræður á næsta ári, hefði
hann lifað.
Ég get ekki sagt að trúarbrögð
séu mér mjög hugleikin. Eins og
flestir aðrir var ég skírður áður
en ég lærði að tala og staðfesti það
svo með tilheyrandi veisluhöldum
þegar ég var rétt skriðin af frum-
bernskuskeiði. Þetta hefur því allt
verið frekar sjálfgefið hjá mér.
Ég fór hins vegar að velta trúnni
fyrir mér í kjölfar kirkjuþings
í vor. Þar var felld með miklum
meirihluta tillaga hóps presta og
guðfræðinga um að prestum yrði
heimilt að annast hjónavígslu sam-
kynhneigðra.
Viðhorf samfélagsins til sam-
kynhneigðar hafa breyst mikið á
undanförnum árum og skilningur
aukist. Það er því dálítið skrítið að
kirkjan sem boðar skilning og kær-
leik skuli vera það afturhaldsafl
sem raun ber vitni og reka lestina
þegar kemur að réttindabaráttu
samkynhneigðra. Raunar rekur
kirkjan ekki bara lestina, heldur
má segja að hún standi ein eftir.
Nú hafa samkynhneigðir fengið
í gegn öll sín baráttumál, önnur en
þau að fá að giftast frammi fyrir
guði sínum, og ekki er að sjá að
það náist í gegn í bráð.
Nú berast þær fréttir frá Svíþjóð
að prestar og prófastar þar í landi
ætli að fjölmenna á Gay Pride-há-
tíðarhöldin sem fram fara í Stokk-
hólmi á morgun. Svíar hafa lengi
staðið framarlega þegar kemur að
réttindabaráttu samkynhneigðra
og eru líkur á að þar verði gifting-
ar samkynhneigðra í kirkju leyfð-
ar snemma á næsta ári.
Ég skora því íslenska presta,
prófasta, biskup og aðra þá sem
eru í forsvari fyrir þjóðkirkjuna
að fylgja fordæmi sænskra starfs-
bræðra sinna að fjölmenna í göng-
una á Hinsegin dögum 11. ágúst
næstkomandi.