Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 64
Þegar ég var þrettán upphófst hryðjuverkafaraldur í skólan-
um mínum, flugeldar voru
sprengdir í klósettum og ruslaföt-
um. Skólastjórinn gekk í bekki
með sundurtætta ruslatunnu undir
hendinni og einkennisklæddan
lögregluþjón undir hinni, sem
sagði að allir yrðu að ,,æxla ábyrgð
á eigin gjörðum“.
reynsla af lífinu í gettóinu
kom mér loks til góða á Heathrow-
flugvelli um daginn. Í millilend-
ingunni þvældist ég um flugvöll-
inn þveran og endilangan með
fullan poka af matarleifum í leit
að ruslafötu. Það reyndist ekki
vera ein einasta ruslafata á Heath-
row. Ég lagði strax saman tvo og
tvo: það er jú hægt að setja
sprengjur í ruslatunnur. Besta
ráðið er auðvitað að fjarlægja
ruslatunnurnar.
ráðið er að taka enga
sénsa með þjóðaröryggið. Sem
draup vissulega af hverju strái.
Fólki skrikaði fótur í þjóðarörygg-
inu þar sem það gekk lúpulegt á
sokkaleistunum í gegnum vopna-
leitarhliðið, enda má koma fyrir
heilu vopnabúri í góðum ítölskum
blankskóm. Ungbarnamæður
roðnuðu af þjóðaröryggi þegar
þær sleiktu brjóstamjólk af hand-
arbakinu undir vökulum augum
tollvarða, smá sýni úr pelanum.
Traustvekjandi útverðir þjóðar-
öryggisins voru glerkassar fullir
af tappatogurum, tannkremstúp-
um, naglaklippum, naglaskærum
og naglaþjölum – handsnyrting
utan veggja baðherbergisins er að
sjálfsögðu ógn við þjóðaröryggið.
er það eins og að
stökkva vatni á geit að spyrja á
Íslandi hvers vegna ekki sé gripið
til svipaðra öryggisráðstafana
þegar maður fer um borð í önnur
almenningsfarartæki, sem í öðrum
löndum eru fullt eins vænleg skot-
mörk. Neðanjarðarlestum er víst
ekki að dreifa og enginn myndi
græða á því að sprengja upp
íslenskan strætisvagn. (Myndi
hryðjuverkamaður einu sinni
nenna að bíða eftir næsta strætó,
eins og tímataflan er orðin? Eða
tíma að borga sig inn?)
er nú samt ástæða til þess að
spyrja. Af því að það eru svo fáir
sem virðast sjá nokkuð athuga-
vert við að geta ekki stigið upp í
flugvél án þess að taka þátt í þess-
um sirkus til varnar þjóðarörygg-
inu, sem virðist allur ganga út á
minnkandi öryggiskennd almenn-
ings samfara auknu raunverulegu
öryggi. Við lútum bara höfði,
förum úr skónum, látum hirða af
okkur djúsið og naglaþjölina og
eltum hælana á næsta manni í
gegnum hliðið.
Í gettóinu
Þegar þú notar kreditkortið þitt færðu Aukakrónur. Ef þú notar kortið hjá
samstarfsaðilum okkar færðu enn fleiri Aukakrónur. Svo getur þú notað
Aukakrónurnar til að kaupa það sem þig langar í hjá öllum samstarfsaðilum.
Þannig geta kaup þín á hjónarúmi í Betra Baki lagt þér til Aukakrónur fyrir
enska boltanum á Sýn2.
Aukakrónur eru fríðindasöfnun Landsbankans.
Við viljum umbuna fólki fyrir góð viðskipti á einfaldan
og gagnsæjan hátt. Skráðu þig á aukakronur.is, hringdu
í síma 410 4000 eða komdu við í næsta útibúi Landsbankans.
Vertu með. Það er einfalt. Aukakrónur: þær koma bara.
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
/L
B
I
3
84
33
0
8/
07
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is